-
Halo DesignPerustæði E27 Halo Design antík-kopar3.995 kr.
-
NORDLUXVeggljós LED Fold 10 Corten stál 14,8 cm27.995 kr.
-
NORDLUXVeggljós E27 Aludra 16,8cm málmbrúnt19.995 kr.
-
NORDLUXGarðljós E27 Aludra 45 Ø12,4x45,4 málmbrúnt29.995 kr.
-
EGLOLoftljós Amsfield, E27, 60W frá Eglo, þv.38 cm, brúnt/tré14.995 kr.
-
NORDLUXSkermur Villo Ø60cm brúnn4.495 kr.
-
NORDLUXVeggljós LED Fold 15 Corten stál 21 cm34.995 kr.
-
EGLOBorðlampi LED Boyal 30x42,5 cm28.995 kr.
-
Halo DesignBorðlampi LED Halo Design Lumen 2,7W IP44 latte8.495 kr.
-
EGLOLoftljós Townshend 4, E27, 60W frá Eglo, lengd 35cm, brúnt22.995 kr.
-
NORDLUXVeggljós 2xE27 Aludra 33,7cm brúnn19.995 kr.
-
NORDLUXGarðljós E27 Aludra 45 Ø12,4x95,4 málmbrúnt39.995 kr.
-
EGLOBorðlampi E27 Prestwick 2 9,5x9,5 cm3.995 kr.
-
NORDLUXLoftljós E27 Aludra Ø12,4cm málmbrúnt22.995 kr.
-
EGLOGólfljós Townshend 4, E27, 10W frá Eglo, lengd 169cm, brúnt28.995 kr.
-
EGLOVeggljós E27 Rampside 30cm svart16.995 kr.
-
NORDLUXLoftljós svart strap 36 Nordlux29.995 kr.
-
Halo DesignGólflampi E27 Paris Ø56 cm hvítur/messing85.995 kr.
-
EGLOBorðlampi E27 Prestwick 1 10x10 cm4.995 kr.
-
EGLOVeggljós E27 Sambatello Ø12 cm9.395 kr.
-
EGLOKastari E27 Barnstaple 40W 16 cm11.195 kr.
-
EGLOGólflampi E27 Lubenham 160 cm39.995 kr.
-
Halo DesignBorðlampi rafhlöðu Paris Ø24 cm hvítur/messing38.295 kr.
-
Halo DesignBorðlampi Paris Ø24 cm hvítur/messing53.395 kr.
-
EGLOBorðstofuljós Townshend 4, E27, 60W frá Eglo, lengd 150cm57.495 kr.
-
EGLOLoftljós, Siracusa, 6x60W, E27 frá Eglo, brons/gler, þv. 50c84.995 kr.
-
EGLOBorðstofuljós Townshend 4, E27, 60W frá Eglo, lengd 100,5cm46.995 kr.
-
EGLOLoftljós Port Seton, E27, 60W frá Eglo, þv.13 cm, brúnt12.995 kr.
-
EGLOBorðstofuljós Townshend 4, E27, 60W frá Eglo, lengd 70cm, br34.995 kr.
-
EGLOLoftljós Conessa1 E27 Eglo brúnt h150cm43.995 kr.
-
TilboðNORDLUXHangandi ljós E27 Strap 27 svart Ø27 cm21.495 kr.Tilboð gildir til 29 júníÞú sparar: 5.500 kr. Almennt verð: 26.995 kr.
-
TilboðNORDLUXHangandi ljós E27 Strap 27 hvítt Ø27 cm21.495 kr.Tilboð gildir til 29 júníÞú sparar: 5.500 kr. Almennt verð: 26.995 kr.
-
NORDLUXHangandi ljós E27 Strap 27 ópalgler Ø27 cm26.995 kr.
-
NORDLUXLoftljós hangandi Nordlux strap 36 hvítt29.995 kr.
-
EGLOHangandi ljós E27 Amsdield Ø35cm tré19.995 kr.
Ljós
Velkomin í heim ljósanna, þar sem hvert herbergi hefur möguleika á að breytast í töfrandi og notalegan stað. Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að velja rétta ljósabúnaðinn og perurnar til að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu á heimilinu. Þess vegna bjóðum við upp á breitt úrval af ljósum í ýmsum stærðum og gerðum sem gera þér kleift að aðlaga lýsingu heimilisins að þínum þörfum.
Birtan inni á heimilinu getur skipt sköpum þegar það kemur að því að skapa stemmingu og hlúa að almennri vellíðan heimilisfólksins. Hærra og kaldara birtustig hjálpar okkur að vakna og koma okkur af stað á morgnana á meðan hlýrra og lægra birtustig skapar þægilega og róandi stemmingu á kvöldin. Að velja rétta lýsingu fyrir heimilið snýst einnig um jafnvægið á milli virkni og stíls. Ljósabúnaðurinn verður að virka fyrir þig og þínar þarfir, en á sama tíma er mikilvægt að hann samræmist þínum stíl og falli vel inn í rýmið.
Loftljós sem brennidepill rýmisins
Ef þú ert að leita að praktískum ljósum sem vekja athygli, þá eru loftljós góður staður til að byrja á. Loftljós eru fullkomin til þess að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu í stofunni, borðstofunni eða svefnherberginu. Eftirtektarvert loftljós verður að brennidepli rýmisins, svo það er gott að vanda valið! Úrvalið okkar af loftljósum inniheldur m.a. hengiljós, innfelld og yfirborðslöguð ljós og mismunandi gerðir af kösturum.
Notaleg en praktísk veggljós
Veggljós eru frábær valkostur fyrir þau sem vilja mildari lýsingu í rýmið , og eru m.a. fullkomin fyrir ganga, innganga og baðherbergi. Það eru margar gerðir af veggljósum til að velja úr, þar á meðal vegglampar, kastarar, hreyfanleg ljós og fleiri. Veggljós geta annaðhvort snúið upp eða niður, eða dreift birtunni jafnt yfir allt rýmið eða vegginn sem þau eru fest við, og eru annaðhvort í fastri stöðu eða hreyfanleg og þannig hægt að aðlaga þau að rýminu að hverju sinni. Við eigum veggljós í ýmsum gerðum í BAUHAUS svo þú finnur pottþétt ljós sem passa við þinn stíl.
Lampar﹘nytsamlegir skrautmunir
Borð- og gólflampar eru tilvaldir til að bæta við mjúkri birtu í hvaða herbergi sem er og eru um leið fallegir skrautmunir fyrir rýmið. Borðlampar henta vel ef þig vantar praktíska lýsingu þegar þú ert að lesa fyrir svefninn á meðan gólflampar eru tilvaldir til þess að skapa notalega stemmingu fyrir bíókvöldin í stofunni. Við eigum gott úrval af borð- og gólflömpum í mismunandi stærðum og stílum sem henta vel í öll rými heimilisins.
Hvernig vel ég réttu ljósin?
Áður en þú velur þér ljós er gott að teikna upp rýmið sem ljósið fer í. Hvað er gert inni í rýminu? Hvar í rýminu eru hvaða athafnir framkvæmdar? Þetta eru spurningar sem er vert að hafa í huga til þess að fá sem mest út úr lýsingu rýmisins. Hér eru nokkrar hlutir sem þarf að hafa í huga við val á ljósum:
- Hlutverk herbergisins: Í svefnherberginu viltu mýkri lýsingu fyrir notalegra andrúmsloft en á heimaskrifstofunni gætirðu þurft bjartari lýsingu fyrir betri einbeitingu.
- Litarhitastig peranna: Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og vinalegt andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur þar sem þú þarft bjartara ljós sem gefur þér þrótt.
- Stærð rýmisins: Hangandi loftljós passa vel í stærri rými með hærra loft en í minni herbergjum eru veggljós eða innfelld loftljós sem taka ekki of mikið pláss hentugri.
Í BAUHAUS finnurðu allt sem þú þarft frá LED ljósaperum og loftljósum til veggljósa og gólflampa. Hvort sem þú ert að gera upp heimilið þitt eða einfaldlega að hressa upp á eitt herbergi, þá finnurðu rétta ljósið fyrir öll rými heimilisins í BAUHAUS.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Ekki vera hrædd við að vera skapandi í ljósavalinu, hvort sem þú ert að velja einn gólflampa eða lýsingu í heilt rými, þá getur valið bætt miklum persónuleika við rýmið og bætt vellíðan þína í leiðinni. Skoðaðu úrvalið af ljósum í netversluninni okkar eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið. Við erum hér til að hjálpa þér að velja bestu lausnina fyrir rýmið þitt
FAQ:
Hvaða ljós gefa bestu birtuna?
- Það er ekkert eitt ljós sem gefur bestu lýsinguna þar sem það fer eftir tilgangi og andrúmslofti sem þú vilt skapa í herbergi. Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og velkomið andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur fyrir verklýsingu og svæði þar sem þú þarft bjart ljós.
Hversu mikið ljós ætti að vera í herbergi?
- Magn ljóss sem þarf í herbergi fer eftir tilgangi og stærð rýmisins. Í stofunni og svefnherberginu er betra að hafa hlýja og notalega birtu á meðan eldhús og heimaskrifstofur þurfa góða og ferska lýsingu svo þú sjáir vel hvað þú ert að gera. Þú getur einnig valið dimmanleg ljós og snjallperur þar sem þú getur breytt hitastigi birtunnar eftir eigin smekk.
Jólaljós fyrir heimilið og garðinn
Þegar jólin nálgast er tími til að skapa hlýlega stemningu bæði inni og úti. Við hjá BAUHAUS bjóðum upp á fjölbreytt úrval af jólavörum fyrir heimilið og garðinn, þar á meðal LED jólaljós og jólaseríur sem gera jólin enn hátíðlegri. Hvort sem þú ert að leita að jólaljósum til að lýsa upp stofuna eða útiskreytingum fyrir jólin, þá finnur þú það hjá okkur.
Jólaseríur og LED jólaljós eru fullkomin til að lýsa upp útiskreytingarnar og skapa töfrandi stemmingu í garðinum. Einnig höfum við úrval af jólatrjám og jólavörum til sölu, sem hjálpa þér að skapa fullkomið jólaandrúmsloft. Skreytingar fyrir jólin þurfa ekki að vera flóknar; með réttum jólaljósum og útiskreytingum verður bæði heimilið og garðurinn að töfrandi jólaveröld.