-
SIKKERTHJEMÖryggiskerfi Sikkerthjem S7pro43.895 kr.
-
LEDVANCEUndirskápaljós LED 3000K Linear 6W 37cm7.495 kr.
-
MARKSLÖJDKastari LED 3W Garden 24 30 cm9.495 kr.
-
MARKSLÖJDLjósasería LED Garden 24 550cm12.095 kr.
-
MARKSLÖJDLjósasería LED Garden 24 550cm12.095 kr.
-
EGLOKúpull Mars, E27, 25W Eglo, þv.24,5cm, hvítur3.895 kr.
-
MARKSLÖJDÚti ljósborði LED 13W Garden 24 3m7.395 kr.
-
EGLOLoftljós Frania kúpull Eglo hvítur með stjörnum þv28cm6.495 kr.
-
MARKSLÖJDBirtuskynjari og tímastillir fyrir Garden 244.495 kr.
-
ANETA LIGHTINGLoftljós 7xG9 Molekyl Aneta 58cm62.995 kr.
-
MARKSLÖJDFramlenging 5m fyrir Garden 241.995 kr.
-
SIKKERTHJEMÖryggismyndavél 1080p utandyra/innandyra Sikkerthjem hvít16.595 kr.
-
EGLOLoftljós Marunella, 18W, innbyggt LED-ljós Eglo, þv.347.495 kr.
-
PROBAUBensli margar stærðir 1000 stk svört og hvít2.795 kr.
-
NORDLUXBaðherbergisljós LED Fallon hvítur Ø10 cm6.395 kr.Tilboð gildir til 30 októberÞú sparar: 1.600 kr. Almennt verð: 7.995 kr.
-
MARKSLÖJDGarðljós LED 3W Garden 24 45 cm15.700 kr.
-
EGLOLoftljós Ariscani 3x40W E27 Eglo reyklitað/svart þv.42,5cm24.895 kr.
-
LEDVANCELampi LED 17W Submarine 126,5cm5.995 kr.
-
MARKSLÖJDKastari LED 6W Garden 24 30 cm9.495 kr.
-
MARKSLÖJDFramlenging 10m fyrir Garden 243.495 kr.
-
MARKSLÖJDSamtengi Y fyrir Garden 241.495 kr.
-
PHILIPS HUEFramlenging á Ledborða Plus 1m Philips Hue WCA4.895 kr.
-
SIKKERTHJEMÖryggismyndavél 1080p með sólarsellu Sikkerthjem hvít26.295 kr.
-
EGLOKúpull E27 Plafond Mars Ø24,5 cm3.795 kr.
-
EGLOLoftljós Lasana1 24W Eglo króm23.995 kr.
-
EGLOKúpull E27 Venezuela 25x38,5 cm4.995 kr.
-
PHILIPS HUELjósborði LED RGB 38W Philips Hue 5m39.995 kr.
-
NORDLUXKúpull LED Oja hvítur dimmanlegur 3000K Ø42,4 cm14.995 kr.
-
MARKSLÖJDFramlenging 2m fyrir Garden 24995 kr.
-
PHILIPS HUEVeggljós LED RGBW 13,5W IP44 Philips Hue29.995 kr.
-
EGLOLED kúpull Nieves 24W Eglo hvítur/silfur þv41cm12.995 kr.
-
MARKSLÖJDLoftkastari Barcelona 5xGU10 Markslöjd svart/gyllt29.395 kr.
-
MARKSLÖJDInnfeldur ljóslisti LED Combine 100cm13.195 kr.
-
NORDLUXKúpull LED Oja hvítur Ø24,4 cm7.995 kr.
-
MARKSLÖJDVeggljós 3W Garden 24 15 cm9.995 kr.
Ljós
Velkomin í heim ljósanna, þar sem hvert herbergi hefur möguleika á að breytast í töfrandi og notalegan stað. Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að velja rétta ljósabúnaðinn og perurnar til að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu á heimilinu. Þess vegna bjóðum við upp á breitt úrval af ljósum í ýmsum stærðum og gerðum sem gera þér kleift að aðlaga lýsingu heimilisins að þínum þörfum.
Birtan inni á heimilinu getur skipt sköpum þegar það kemur að því að skapa stemmingu og hlúa að almennri vellíðan heimilisfólksins. Hærra og kaldara birtustig hjálpar okkur að vakna og koma okkur af stað á morgnana á meðan hlýrra og lægra birtustig skapar þægilega og róandi stemmingu á kvöldin. Að velja rétta lýsingu fyrir heimilið snýst einnig um jafnvægið á milli virkni og stíls. Ljósabúnaðurinn verður að virka fyrir þig og þínar þarfir, en á sama tíma er mikilvægt að hann samræmist þínum stíl og falli vel inn í rýmið.
Loftljós sem brennidepill rýmisins
Ef þú ert að leita að praktískum ljósum sem vekja athygli, þá eru loftljós góður staður til að byrja á. Loftljós eru fullkomin til þess að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu í stofunni, borðstofunni eða svefnherberginu. Eftirtektarvert loftljós verður að brennidepli rýmisins, svo það er gott að vanda valið! Úrvalið okkar af loftljósum inniheldur m.a. hengiljós, innfelld og yfirborðslöguð ljós og mismunandi gerðir af kösturum.
Notaleg en praktísk veggljós
Veggljós eru frábær valkostur fyrir þau sem vilja mildari lýsingu í rýmið , og eru m.a. fullkomin fyrir ganga, innganga og baðherbergi. Það eru margar gerðir af veggljósum til að velja úr, þar á meðal vegglampar, kastarar, hreyfanleg ljós og fleiri. Veggljós geta annaðhvort snúið upp eða niður, eða dreift birtunni jafnt yfir allt rýmið eða vegginn sem þau eru fest við, og eru annaðhvort í fastri stöðu eða hreyfanleg og þannig hægt að aðlaga þau að rýminu að hverju sinni. Við eigum veggljós í ýmsum gerðum í BAUHAUS svo þú finnur pottþétt ljós sem passa við þinn stíl.
Lampar﹘nytsamlegir skrautmunir
Borð- og gólflampar eru tilvaldir til að bæta við mjúkri birtu í hvaða herbergi sem er og eru um leið fallegir skrautmunir fyrir rýmið. Borðlampar henta vel ef þig vantar praktíska lýsingu þegar þú ert að lesa fyrir svefninn á meðan gólflampar eru tilvaldir til þess að skapa notalega stemmingu fyrir bíókvöldin í stofunni. Við eigum gott úrval af borð- og gólflömpum í mismunandi stærðum og stílum sem henta vel í öll rými heimilisins.
Hvernig vel ég réttu ljósin?
Áður en þú velur þér ljós er gott að teikna upp rýmið sem ljósið fer í. Hvað er gert inni í rýminu? Hvar í rýminu eru hvaða athafnir framkvæmdar? Þetta eru spurningar sem er vert að hafa í huga til þess að fá sem mest út úr lýsingu rýmisins. Hér eru nokkrar hlutir sem þarf að hafa í huga við val á ljósum:
- Hlutverk herbergisins: Í svefnherberginu viltu mýkri lýsingu fyrir notalegra andrúmsloft en á heimaskrifstofunni gætirðu þurft bjartari lýsingu fyrir betri einbeitingu.
- Litarhitastig peranna: Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og vinalegt andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur þar sem þú þarft bjartara ljós sem gefur þér þrótt.
- Stærð rýmisins: Hangandi loftljós passa vel í stærri rými með hærra loft en í minni herbergjum eru veggljós eða innfelld loftljós sem taka ekki of mikið pláss hentugri.
Í BAUHAUS finnurðu allt sem þú þarft frá LED ljósaperum og loftljósum til veggljósa og gólflampa. Hvort sem þú ert að gera upp heimilið þitt eða einfaldlega að hressa upp á eitt herbergi, þá finnurðu rétta ljósið fyrir öll rými heimilisins í BAUHAUS.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Ekki vera hrædd við að vera skapandi í ljósavalinu, hvort sem þú ert að velja einn gólflampa eða lýsingu í heilt rými, þá getur valið bætt miklum persónuleika við rýmið og bætt vellíðan þína í leiðinni. Skoðaðu úrvalið af ljósum í netversluninni okkar eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið. Við erum hér til að hjálpa þér að velja bestu lausnina fyrir rýmið þitt
FAQ:
Hvaða ljós gefa bestu birtuna?
- Það er ekkert eitt ljós sem gefur bestu lýsinguna þar sem það fer eftir tilgangi og andrúmslofti sem þú vilt skapa í herbergi. Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og velkomið andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur fyrir verklýsingu og svæði þar sem þú þarft bjart ljós.
Hversu mikið ljós ætti að vera í herbergi?
- Magn ljóss sem þarf í herbergi fer eftir tilgangi og stærð rýmisins. Í stofunni og svefnherberginu er betra að hafa hlýja og notalega birtu á meðan eldhús og heimaskrifstofur þurfa góða og ferska lýsingu svo þú sjáir vel hvað þú ert að gera. Þú getur einnig valið dimmanleg ljós og snjallperur þar sem þú getur breytt hitastigi birtunnar eftir eigin smekk.
Jólaljós fyrir heimilið og garðinn
Þegar jólin nálgast er tími til að skapa hlýlega stemningu bæði inni og úti. Við hjá BAUHAUS bjóðum upp á fjölbreytt úrval af jólavörum fyrir heimilið og garðinn, þar á meðal LED jólaljós og jólaseríur sem gera jólin enn hátíðlegri. Hvort sem þú ert að leita að jólaljósum til að lýsa upp stofuna eða útiskreytingum fyrir jólin, þá finnur þú það hjá okkur.
Jólaseríur og LED jólaljós eru fullkomin til að lýsa upp útiskreytingarnar og skapa töfrandi stemmingu í garðinum. Einnig höfum við úrval af jólatrjám og jólavörum til sölu, sem hjálpa þér að skapa fullkomið jólaandrúmsloft. Skreytingar fyrir jólin þurfa ekki að vera flóknar; með réttum jólaljósum og útiskreytingum verður bæði heimilið og garðurinn að töfrandi jólaveröld.