-
MARKSLÖJDLoftljós 6xE27 Capital króm Ø62 cm43.595 kr
-
EGLOKúpull Frania, innbyggt LED-ljós Eglo, þv.22cm, hvítur4.495 kr
-
EGLOLoftljós Marunella, 18W, innbyggt LED-ljós Eglo, þv.347.495 kr
-
EGLOLoftljós Frania kúpull Eglo hvítur með stjörnum þv28cm6.495 kr
-
MARKSLÖJDLoftkastari Barcelona 5xGU10 Markslöjd svart/gyllt29.395 kr
-
EGLOLED kúpull Nieves 24W Eglo hvítur/silfur þv41cm12.995 kr
-
MARKSLÖJDHangandi ljós E27 Paris 48,7cm73.495 kr
-
MARKSLÖJDLoftljós 6xE27 Capital kopar Ø62 cm44.695 kr
-
EGLOLoftljós Selvino E27 Eglo burstað stál þv10cm8.995 kr
-
EGLOKúpull Pogliola, innbyggt LED-ljós Eglo, þv.50cm, hvítur9.495 kr
-
MARKSLÖJDLoftljós LED Luna Ø22 cm Markslöjd svart16.295 kr
-
MARKSLÖJDHangandi ljós 4xG9 Quattro 66 cm26.295 kr
-
EGLOLoftljós Ariscani 3x40W E27 Eglo reyklitað/svart þv.42,5cm19.895 krTilboð gildir til 3 desemberÞú sparar: 5.000 kr Almennt verð: 24.895 kr
-
MARKSLÖJDLoftljós GU10 Barcelona 109cm29.395 kr
-
MARKSLÖJDHangandi ljós E27 Kirkenes Ø48cm19.495 kr
-
EGLOLoftljós LED Access Salobrena-A 30x120 cm41.995 kr
-
EGLOHangandi ljós E27 Brenda Ø39,5x110 cm11.495 kr
-
EGLOKúpull, Frania, LED-ljós, 7W frá Eglo, þv.22cm, dimmanlegur,4.495 krTilboð gildir til 3 desemberÞú sparar: 1.000 kr Almennt verð: 5.495 kr
-
PHILIPS HUELoftljós LED Being 39W m/dimmer Philips Hue25.995 kr
-
EGLOLoftljós Lasana1 24W Eglo króm23.995 kr
-
EGLOLoftljós Frania kúpull Eglo, hvítur, þv28cm5.495 kr
-
EGLOLED kúpull Musurita Eglo tré þv34cm9.995 kr
-
EGLOKúpull, Frania, LED-ljós, 11W frá Eglo, þv.28cm, dimmanlegur7.495 kr
-
EGLOKúpull LED Fueva 5 Ø28,5 cm8.995 kr
-
EGLOHangandi ljós E27 Mantunalle Ø20 cm13.995 kr
-
EGLOLED kúpull Nieves 33W Eglo hvítur/silfur þv51cm19.995 kr
-
EGLOLoftljós LED Fueva 5 Ø28.5 cm IP4413.995 kr
-
EGLOHangandi ljós E27 Truro Ø39x110 cm14.495 kr
-
EGLOLED-innbyggður kastari Sartiano frá Eglo, þv.9 cm, hallandi,5.995 kr
-
EGLOLoftljós Rondo Ø30 cm Eglo hvítt7.995 kr
-
EGLOKúpull LED Frania-S Ø22 cm4.995 kr
-
PHILIPS HUELoftljós LED Struana hvítur 32W IP44 m/dimmer Philips Hue24.995 kr
-
EGLOLoftljós Cossano Ø50cm Eglo tré21.495 kr
-
EGLOLoftljós LED Canicosa Ø49.5 cm51.495 kr
-
EGLOKúpull LED Frania 28x28 cm6.195 kr
Loftljós
Birtan inni á heimilinu getur skipt sköpum þegar það kemur að því að skapa stemmingu og hlúa að almennri vellíðan heimilisfólksins. Hærra og kaldara birtustig hjálpar okkur að vakna og koma okkur af stað á morgnanna á meðan hlýrra og lægra birtustig skapar þægilega og róandi stemmingu á kvöldin. Öll herbergi þurfa einhvers konar ljós og loftljós eru oft þægilegasti valkosturinn.
En ákvarðanatakan endar ekki þar - þú þarft líka að velja hvers konar loftljós þú vilt. Til dæmis er algengt að hafa hangandi loftljós fyrir ofan borðstofuborðið, eitthvað stærra og flottara sem sker sig úr. Inni á baðherbergjum velur fólk oft klassískan kúpul sem hentar umhverfinu vel og gefur rýminu hressandi birtu. Í svefnherbergjum getur verið gott að hafa stærri og dekkri skerma, svo auðveldara sé að dimma ljósin fyrir þægilegri birtu á kvöldin.
Lýsing heimilisins er mikilvægur hluti þess, sama hvort um sé að ræða inniljós eða útiljós, veggljós, stofuljós eða innfelld ljós. Í BAUHAUS finnurðu rétta ljósið fyrir öll rými heimilisins .
Mismunandi gerðir loftljósa
Til eru margar mismunandi gerðir loftljósa en aðal flokkarnir eru þó hangandi, innfelld, yfirborðslöguð og kastarar.
Hangandi loftljós
Hangandi loftljós, eins og nafnið gefur til kynna, hanga úr loftinu. Oftast er skermur utan um ljósaperuna á endanum, en þó eru til hangandi loftljós þar sem ljósaperurnar eru berar. Hangandi loftljós koma í ýmsum stærðum og gerðum og því eru margir valmöguleikar í boði, hvort sem þú vilt hafa þau minni og einfaldari eða stærri og mikilfenglegri. Ljósaperan er oft sýnileg í hangandi loftljósum og því skiptir meira málið að vanda valið hvað varðar lögun og lit. Í BAUHAUS finnurðu gott úrval af ýmsum gerðum ljósapera.
Innfelld loftljós
Innfelld loftljós eru minni í ummáli og falla alveg inn í loftið svo það fer minna fyrir þeim. Innfelld ljós geta veitt rýminu betri og meiri birtu þar sem birtan virðist koma innan úr loftinu sjálfu. Gott er að hafa í huga að innfelld loftljós henta ekki öllum loftum og því er nauðsynlegt að hafa þykkt, staðsetningu og gerð loftsins á hreinu áður en fest eru kaup á slíkum ljósum.
Yfirborðslöguð loftljós
Yfirborðslöguð loftljós eru þau ljós sem liggja alveg upp að loftinu. Oft eru slík ljós í formi kúpuls, en nútímalegri gerðir eru margar þynnri og flatari. Yfirborðslöguð loftljós eru mjög vinsæl, enda henta þau í flest rými og taka lítið pláss.
Kastarar
Kastarar eru eitt eða fleiri ljós sem hægt er að snúa og færa til. Ljósaperan er fest á plötu í loftinu og hreyfist á öxli sem gerir þér kleift að breyta því hvert birtan beinist í rýminu.
Hvernig vel ég rétta loftljósið?
Áður en þú velur þér loftljós er gott að teikna upp rýmið sem ljósið fer í. Hvað er gert inni í rýminu? Hvar í rýminu eru hvaða athafnir framkvæmdar? Þetta eru spurningar sem er vert að hafa í huga til þess að fá sem mest út úr lýsingu rýmisins. Hér eru nokkrar tillögur um val á loftljósi:
- Stofa: Þegar það kemur að því að velja stofuljós, er gott að hugsa um mismunandi króka og kima stofunnar. Hangandi loftljós líta vel út fyrir ofan borðstofuborðið og veita huggulega birtu yfir kvöldmatnum. Í sjónvarpsholinu er þægilegra að hafa dimmanlegt ljós sem dreifir vel úr sér og stangast þá minna á við birtuna frá sjónvarpinu.
- Anddyri/gangur: Í anddyrinu eða á ganginum eru kastarar gott val, þar sem hægt er að beina þeim þannig að þeir nái að lýsa upp allt rýmið.
- Svefnherbergi: Í svefnherberginu hafa allar gerðir loftljósa sína kosti. Það fer bara eftir smekk hvers og eins hvað hentar best. Viltu tempraða birtu og afslappaðra andrúmsloft? Þá hentar hangandi loftljós vel. Viltu hressandi birtu sem nær vel yfir allt rýmið? Þá henta bæði yfirborðslöguð ljós og kastarar. Viltu eiga möguleika á því að skipta á milli þessara tveggja lýsinga? Veldu þér þá dimmanlegt loftljós og snjallperur þar sem þú getur breytt hitastigi birtunnar eftir eigin smekk.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Skoðaðu úrvalið af loftljósum eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið.
FAQ:
Hvernig hengi ég upp loftljós?
- Þótt það kunni að virðast flókið að hengja upp loftljós getur framkvæmdin verið einföld. Lestu leiðbeiningarnar sem fylgja ljósinu vandlega og gakktu úr skugga um að allt sé til taks sem þarf til að festa það. Ef þú ert óviss um uppsetninguna geturðu alltaf heyrt í starfsfólki BAUHAUS og fengið aðstoð eða ráðið sérfræðing til að setja ljósin upp.
Hvernig loftljós ætti ég að velja?
- Hangandi loftljós passa við borðstofuborð í stofu en dimmanleg ljós virka best nálægt sjónvörpum. Notaðu kastara á göngum til að ná góðri birtu og veldu það ljós sem þér líst best á fyrir svefnherbergið. Prófaðu hangandi loftljós fyrir afslappað andrúmsloft og kastara eða yfirborðslöguð ljós fyrir hressandi birtu. Dimmanleg ljós og snjallperur veita þér svo sveigjanleika og endalausa möguleika.