Sendum frítt - Gildir núna og aðeins í vefverslun - Lesa nánar
Síur
Sýna 7 vörur

Jólaseríur og jólaljós

 

Það er ekkert notalegra en falleg jólalýsing á jólunum. Jólalýsing gleður og skapar notalega stemningu fyrir þig, fjölskylduna þína og vini í desember. Desember er myrkur og kaldur mánuður, svo af hverju ekki að gera mánuðinn enn notalegri með fallegri jólalýsingu? BAUHAUS býður upp á fjölbreytt úrval af jólalýsingu fyrir bæði innan- og utandyra notkun, sem býr til hina fullkomnu stemningu. Skoðaðu allt úrvalið hér: Jólaljós og jólaseríur

 

Komdu í jólastemningu með notalegri jólalýsingu

Jólin eru uppáhalds hátíð fjölmargra íslendinga. Desember er tími kerta, jólakonfekts, aðventu og notalegheita með fjölskyldunni. En af hverju ekki að gera jólin enn notalegri með fallegri jólalýsingu? Jóla Lýsingin er ekki bara falleg, heldur lýsir hún einnig upp skammdegið þegar að það er dimmt meiri hluta sólarhringsins.

 

Hvort sem þú vilt skreyta mikið eða hóflega, þá höfum við jólalýsinguna sem hentar þínum stíl. Úrval okkar af jólalýsingu inniheldur meðal annars:

 

Jólaseríur sem skipta um lit

Hvítar jólaseríur

Grílukertaseríur

Jólatré með LED-ljósum

Og margt fleira...

 

Hvenær er tímabært að setja upp og taka niður jólaseríurnar?

 

Nú eru engin lög um það hvenær megi setja jólaljósin upp eða taka þau niður. Ef þú vilt jólaskreyta í miðjum júlí, þá fögnum við því. En margir íslendingar byrja að skreyta fyrsta sunnudag í aðventu, og margir jafnvel fyrr. En þegar að öllu er á botninn hvolft ættir þú auðvitað að skreyta þegar þú ert komin í jólastemningu.

 

En hvenær ætti að taka jólaljósin niður? Ef þú vilt halda fallegu jólaljósunum þínum uppi allan janúar, getur þú alltaf beðið með að taka niður jólaljósin niður. Þau lýsa upp skammdegið og gera dimmasta tímann aðeins bjartari.



Snjall jólalýsing

Það kemur kannski ekki á óvart, en þú getur líka fengið snjöll jólaljós, sem hentar fullkomlega fyrir tæknivætt snjallheimili. Það er til fjöldinn allur af seríum og annarri jólalýsingu, sem þú getur stjórnað auðveldlega og án vandræða með appi í snjallsímanum þínum. Þú getur til dæmis stillt lýsingarstyrkleika, breytt litum og kveikt eða slökkt á ljósunum.

 

Ef þetta er of nútímalegt fyrir þig, hafðu ekki áhyggjur. Við eigum auðvitað líka hefðbundnar seríur og aðra jólalýsingu sem þarf að tengja við rafmagn og hefur kveikja/slökkva takka. Þú getur líka fengið jólaljós með rafhlöðu, þá losnaru við leiðinlegar snúrur, og þarft ekki að vera háð/ur rafmagni. Að lokum, höfum við að sjálfsögðu líka jólalýsingu með tímastillingu, svo þú getir stillt tímann á lýsingunni sjálf/ur.

 

Pantaðu jólaljósin á bauhaus.is

Ef þú vilt skapa notalega jólastemningu, þá ertu komin/n á réttan stað. Hjá BAUHAUS höfum við fjölbreytt úrval af fallegri jólalýsingu, sem hentar þínum stíl og heimili. Þegar þú hefur fundið jólalýsinguna sem hentar, getur þú fengið hana senda beint heim að dyrum.

Jólaljós

Sýna 7 vörur
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil