
Mánudaga til föstudaga: 08:00 - 17:00
Helgar: Lokað
Fyrirtækjasvið Bauhaus er hugsað fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga sem eru í stórviðskiptum. Bæði fyrirtæki og einstaklingar njóta sérkjöra í gegnum sitt viðskiptamannanúmer en afslættir eru veltutengdir. Sé um að ræða magnkaup eða óskað eftir verðhugmynd er þér velkomið senda okkur tölvupóst, kíkja til okkar eða með símhringingu. Skrifstofa fyrirtækjasviðs er staðsett hliðin á Drive-in timbursölu.
Sértu með spurningar um vöruúrval og verð máttu endilega hafa samband við þjónustuver s: 515-0800, og þjónustuverið vísar þér á viðeigandi deild. Sé varan sem þú leitar að ekki í okkar vöruúrvali er í sumum tilfellum hægt að sérpanta frá birgja.
Fyrirtækjasviðið býður upp á ýmsar leiðir fyrir þig til að kanna verð/panta vörur eða setja í reikning.
Reikningsmál: Þegar verslað er gegnum viðskiptamannreikning er reikningur fyrir viðskiptunum sendur á skráð tölvupóstfang. Einnig er hægt að sækja um rafræna reikninga. Fyrirspurnir varðandi reikninga skal senda á debitor@bauhaus.is
Þú fyllir einfaldlega út umsókn hér: Skrá fyrirtæki í viðskipti
Þetta er notað þegar vörur eru að fara úr húsi samdægurs. Oft notað þegar þú ert með vörurnar við hendi og ert að ganga frá kaupum.
Þetta er notað þegar þú vilt panta vöru sem er ekki til eða taka frá ákveðna vöru. Sölupöntun telst staðfest þegar hún er komin í reikning eða staðgreidd.
Þegar tilboð er notað eru engar vörur fráteknar eða hægt að nota það sem greiðsluseðil. Tilboð er einungis notað til að gefa þér verðhugmynd. Til þess að ganga frá tilboði þarf að búa til sölupöntun eða hraðpöntun en hægt er að gera það með því að hafa samband með vísun í tilboðsnúmer.
Þegar sendingin þín er tilbúin til afhendingar færðu tölvupóst tengt þínum viðskiptamannareikningi með tilvísun í pöntunarnúmer. Þegar sendingin er sótt skaltu fara á þjónustuborð og vísa í þitt pöntunarnúmer.
Hægt er að panta í netverslun og setja kennitölu á kvittun. Eins og er er ekki í boði að skrá á reikning eða nýta fasta afslætti í netverslun.
Sem aðili í fyrirtækjaviðskiptum hjá BAUHAUS átt þú möguleika á að stofna til fyrirtækjareiknings með lánsmöguleikum og hagstæðum skilmálum sem nýtast þér vel og endurspegla umfang viðskipta þinna við BAUHAUS á ársgrundvelli. Komdu við og fáðu að heyra nánar um það sem þér býðst í fyrirtækjaviðskiptum hjá BAUHAUS.
Sé um að ræða reikningsviðskipti á krafa fyrir innkaupum mánaðarins að birtast í heimabanka í byrjun næsta mánaðar sem er eindaga í lok mánaðarins. Fyrirspurnir varðandi reikninga skal senda á debitor@bauhaus.is
Auðvelt er að stunda viðskipti en mikilvægt er að vita viðskiptanúmer sem er 1000xxxxxx. Almenn sala fer fram í gegnum afgreiðslukassa en þar skal vísa í viðskiptamannanúmer og taka fram hvort um sé að ræða staðgreiðslu eða reikningsfærslu.
Mikilvægt getur verið að vita hver er að taka út vörur hverju sinni og skal því senda lista yfir úttektaraðila á sala@bauhaus.is þar sem kemur fram bæði nafn og kennitala.
Skil og gallamál fara fram við þjónustuborð en þar skal sýna fram á kvittun fyrir kaupum. Kvittanir eru sendar á tölvupóst viðskiptamannareiknings. Einungis er tekið við heilum umbúðum eða vörum í söluhæfu ástandi við skil. Þú getur lesið nánar um skilareglur BAUHAUS hér: Skilareglur