
Frá árinu 2023 hefur BAUHAUS deilt jólagleðinni með viðskiptavinum sínum með því að styrkja góð málefni fyrir jólin. Markmiðið er að láta gott af sér leiða og styðja við einstaklinga og samtök sem vinna mikilvægt starf í samfélaginu.
Í ár heldur BAUHAUS þessari fallegu hefð áfram og veitir þremur málefnum styrk að fjárhæð 500.000 krónur hvert, samtals eina og hálfa milljón króna.
Viðskiptavinum og almenningi er boðið að taka þátt með því að tilnefna málefni sem þeim þykir eiga skilið aukinn stuðning. Tekið verður við tilnefningum til 12. nóvember.
Þrjú málefni verða valin að þessu sinni og hljóta þau hvert um sig 500.000 króna styrk frá BAUHAUS. Við vonum að framlögin komi að góðum notum og stuðli að aukinni gleði og hlýju yfir hátíðarnar.
„Jólin eru tími gleði og samveru, en við vitum að hátíðarnar geta reynst mörgum erfiðar. Hjá BAUHAUS viljum við leggja okkar af mörkum til að létta undir með þeim sem þurfa á stuðningi að halda og styðja við þau fjölmörgu góðu málefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu vel viðskiptavinir okkar hafa tekið þessari hefð frá því að við hófum hana árið 2023. Með þeirra þátttöku getum við haldið áfram að dreifa jólagleðinni og látið gott af okkur leiða.“
Jóhann Bjarni Pétursson, Senior Store Manager hjá BAUHAUS

Fyrsta málefnið sem við heimsóttum í ár var að þessu sinni Ljósið. Alls voru 28 manns sem tilnefndu Ljósið í ár og hlutu þau flestar tilnefningar. Það var því gaman að verða við þeirri ósk og gefa þeim jólaglaðning!
Fyrir þá sem ekki vita þá er Ljósið endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem fengið hefur krabbamein og aðstandendur þeirra. Frá árinu 2007 hefur starfsemin verið til húsa við Langholtsveg og hefur húsnæðið stækkað með starfseminni. Þörf er á stærra húsnæði og mun 500.000 kr. inneign í BAUHAUS nýtast vel í flutningunum.
Við þökkum Ernu framkvæmdarstýru Ljóssins og öðru starfsfólki fyrir frábærar móttökur. Framlag ykkar til samfélagsins er ómentanlegt.
Að þessu sinni heimsóttum við sumarbúðirnar í Reykjadal. Reykjadalur hefur verið starfræktur frá árinu 1963 og hefur í áratugi verið vettvangur tómstunda og vináttu fyrir fötluð börn og ungmenni.
Margir tilnefndu Reykjadal í ár og gaman var að gleðja þau með jólagjöf. Gjöfin innihélt 500.000 kr. inneign í BAUHAUS sem mun nýtast í ýmsar framkvæmdir á staðnum og jólaskraut, en áætlað er að halda jólaball fyrir jólin.
Við þökkum Reykjadal fyrir frábærar móttökur. Barátta ykkar fyrir málefnum fatlaðra er ómentanleg fyrir samfélagið!
Síðasta málefnið sem við heimsóttum í ár voru Karlar í skúrum í Hafnarfirði og fengu þeir 500.000 kr. inneign frá BAUHAUS í jólagjöf sem mun nýtast í ýmis verkefni á staðnum.
Samtökin eru samkomustaður fyrir karlmenn þar sem þeir geta hist í kaffibolla og unnið saman að fjölbreyttum verkefnum. Hugmyndafræðin á bak við Karla í skúrum er það að auka lífsgæði karla með samveru og handverki sem forvörn gegn félagslegri einangrun. Skúrinn í Hafnarfirði var sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi og hafa fleiri skúrar opnað á nokkrum stöðum á landinu síðan þá.
Fjölmennt var á staðnum þegar við kíktum í heimsókn og tóku meðlimir hlýlega á móti okkur með pönnukökum og kaffi. Það var gaman að sjá vinnuaðstöðuna þeirra og þau fjölbreyttu verkefni sem þeir voru að vinna í.
Við þökkum Körlum í skúrum fyrir frábærar móttökur og á sama tíma viljum við þakka öllum þeim sem tilnefndu í ár, við vonum að jólin ykkar allra verði sem ánægjulegust!

Mæðrastyrksnefnd er eitt af þremur málefnum sem valin voru í ár! Margir tilnefndu Mæðrastyrksnefnd og því þótti okkur ánægjulegt að verða við þeirri ósk. Nefndin hefur starfað frá árinu 1928 og hafa þær í áratugi hjálpað heimilum með matargjöfum og öðru tilfallandi sem bætir lífsgæði skjólstæðinga þeirra.
Um 2000 fjölskyldur munu leita til þeirra um jólin og tekur gjöfin frá okkur mið að því. Gjöfin innihélt styrk til kaupa á jólamat, jólagjafir handa unglingum og jólaskraut. Okkar von er að þetta muni hjálpa fjölskyldunum að eiga hátíðleg jól!
Takk Mæðrastyrksnefnd fyrir ykkar flotta framlag til samfélagsins!
Að þessu sinni heimsóttum við Stuðla og færðum þeim jólaglaðning!
Margir tilnefndu Stuðla - ,,þetta væru frábær skilaboð til bæði barna og starfsfólks að þau séu mikilvæg í okkar samfélagi“ sagði ein kona í tilnefningu sinni fyrir málstaðinn og erum við hjartanlega sammála henni! Það var því ótrúlega skemmtilegt að fá að gleðja þau með 500.000 kr. vöruúttekt í BAUHAUS sem mun nýtast í ýmsa hluti inn á heimilinu!
Nú höfum við afhent þremur málefnum jólaglaðning, en síðasta málefnið sem við heimsóttum í ár var Barnaspítali Hringsins!
Spítalinn var eitt af þeim málefnum sem fékk hvað mest af tilnefningum og voru flestir á því máli að upphæðin, 500.000 kr., ætti að fara í eitthvað skemmtilegt fyrir börnin og fjölskyldur þeirra sem munu dvelja á spítalanum yfir hátíðarnar! Það var því gaman að verða við þeirri ósk og fá að gleðja spítalann með gjöfum sem munu auðvelda börnunum dvölina.
Við viljum þakka Barnaspítala Hringsins fyrir hlýjar móttökur og á sama tíma viljum við þakka öllum þeim sem tilnefndu í ár, við vonum að jólin ykkar allra verði sem ánægjulegust!

Einstök börn var eitt af þeim þremur málefnum sem urðu fyrir valinu! Það voru margir sem tilnefndu Einstök börn og var ákaflega gaman að fá að gleðja þau fyrir hátíðirnar með gjöf að andvirði 500.000 kr.
Jólagjöfin innihélt bónuskort og aðrar vörur fyrir nýtt rými Einstakra barna. Fyrir þá sem ekki vita er Einstök börn stuðningsfélag fyrir börn og ungmenni með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni og fjölskyldur þeirra
Það var yndislegt að fá að gleðja Hörpu Björk fyrir hátíðirnar. En hún er einstæð móðir sem á litla stelpu sem glímir við krabbamein.
Hörpu bárust nokkrar tilnefningar og var frábært að fá að gleðja hana með styrk upp á 500.000kr.
Kaffistofa Samhjálpar var eitt af þeim þremur málefnum sem urðu fyrir valinu! Fjölmargir tilnefndu Kaffistofuna og var ákaflega gaman að fá að gleðja þau fyrir hátíðirnar með styrk upp á 500.000 kr.✨
Kaffistofan stefnir á að kaupa eldhústæki sem þeim vantar, ásamt mat og öðru sem gleður yfir jólin. Yfir 100.000 máltíðir eru gefnar á Kaffistofunni á hverju ári til þeirra sem eru í neyð og hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat
