
Við hjá BAUHAUS könnum reglulega sölu- og einingaverð sömu vara á markaðnum til að þú getir verið viss um að þú sért að greiða lágt verð og gera góð kaup hjá okkur.
Verðöryggi þýðir að ef þú finnur sömu vöru og þú keyptir hjá BAUHAUS ódýrari hjá seljanda hér á Íslandi, þá jöfnum við það verð.
Við jöfnum verðið ef:
Þú fannst sömu vöruna hjá seljanda hér á Íslandi innan 7 daga frá kaupum hjá okkur, t.d. sama vörumerki, tiltekna tegund eða útgáfu af vöru;
Varan er til á lager hjá seljanda hér á Íslandi;
Endanlegt söluverð vöru er lægra hjá seljanda en hjá okkur.
Verðöryggi tekur til endanlegs söluverðs vöru hjá seljanda en tekur ekki til þjónustu og/eða kostnaðar, eins og t.d. flutningskostnaðar.
Við gætum óskað eftir gögnum þar sem fram kemur verð seljanda sem þú biður okkur um að jafna (t.d. að söluverð vöru komi fram á tilboðsblaði, mynd af hilluverði vöru, auglýsingu, vefsíðu eða öðru markaðsefni).
Ef þú finnur sömu vöru og þú keyptir hjá BAUHAUS á lægra verði hjá seljanda hér á Íslandi innan sjö (7) daga, greiðum við þér mismuninn til baka. Við munum biðja þig um að leggja fram kvittun eða reikning sem sýnir að þú hafir keypt vöruna hjá BAUHAUS.
Verðöryggi gildir um verð hvort um sé að ræða útsölu, tilboð eða sérverð. Gildir ekki um rýmingarsölu.
Já öllum byggingavöruverslunum, en það eru þó nokkur skilyrði sem þurfa að vera í lagi
Þú kemur í BAUHAUS og sýnir fram á að samkeppnisaðili sé að selja vöru á lægra verði en BAUHAUS. Þá lækkum við í framhaldi verð í verslun og vefverslun. Við viljum þó biðja þig um að hafa viðeigandi gögn um verð samkeppnisaðila meðferðist t.d. sértilboð, auglýsingu í blaði, auglýsing á netinu eða vísa á viðeigandi vefsíðu.
Verslir þú vöru inn á BAUHAUS.is og finnur síðan sömu vöru ódýrari innan 7 daga hjá samkeppnisaðila getur þú sent okkur tölvupóst á bauhaus@bauhaus.is og fengið mismun endurgreiddan. Gefa þarf upp pöntunarnúmer láta fylgiskjöl fylgja með. Haft verður síðan samband þar sem kennitala og rétt reikningsnúmer er gefið upp til þess að endurgreiðsla geti borist.
Sjá nánari skilmála hér að ofan
Ef þú verslar hjá okkur í verslun BAUHAUS eða vefverslun, þá þarf að sýna fram á viðeigandi gögn. Sýna þarf fram á að sama vara sé á lægra verði hjá samkeppnisaðila. Þegar við tölum við viðeigandi gögn er átt við „skjáskot" af heimasíðu samkeppnisaðila eða mynd af vöru í verslun þar sem kemur fram að þetta er nákvæmlega sama vara og þú ert að kaupa hjá BAUHAUS. Starfsfólkið okkar hjálpar þér svo að fá endurgreitt eða lækka verðið á vörunni.
Ef þú verslar vöru á vefverslun BAUHAUS, þá klárar þú einfaldlega kaupin og sendir okkur svo tölvupóst á bauhaus@bauhaus.is – með pöntunarnúmeri og gögnum sem sýna fram á að sama vara er á lægra verði hjá samkeppnisaðila. Við munum svo endurgreiða þér inná greiðslukortið sem þú notaðir við kaup í vefverslun ef allt er eins og það á að vera.
Já – Ef þú kaupir vöru hjá okkur og sama vara fer á tilboð innan 7 daga frá kaupum þá getur þú fengið mismuninn endurgreiddan. Það sem þú þarft að gera er annaðhvort að koma við hjá okkur í verslun BAUHAUS eða senda okkur tölvupóst á bauhaus@bauhaus.is, ef þú sendir okkur tölvupóst þá skaltu muna að senda okkur mynd af kvittun. Það er mjög mikilvægt að það séu einungis 7 dagar liðnir frá kaupum á vörunni.