-
MAKITASláttuorf 18V 26 cm Makita DUR193Z26.995 kr.
-
KÄRCHERSkaft útdraganlegt á háþrýstidælu TLA426.395 kr.
-
NILFISKAukahlutafata NILFISK CORE 140 háþrýstidælu4.295 kr.
-
RYOBILaufsuga 36V Ryobi RBV36B án rafhlöðu49.895 kr.
-
NILFISKLagna- og fráveituhreinsir Nilfisk 15 m14.995 kr.
-
TilboðAL-KOHandsláttuvél 38cm ALKO Comfort 38-513.395 kr.Tilboð gildir til 25 maíÞú sparar: 3.500 kr. Almennt verð: 16.895 kr.
-
CordaÁltrappa 6 þrep Stabilomat 1,95m15.595 kr.
-
RYOBISláttuorf 18V Ryobi One+ RY18LT23A-0 án rafhlöðu14.995 kr.
-
KRAUSEÁlstigi 2x11 þrep Krause 5,3m33.895 kr.
-
Kerrunet 200x130cm grænt2.895 kr.
-
MAKITARafhlaða 18V 5Ah 18V Makita BL1850B24.895 kr.
-
BAUHAUSDúkahnífur 18mm BAUHAUS545 kr.
-
BOSCHSláttuorf 18V Bosch 23cm án rafhlöðu11.695 kr.
-
RYOBIHjámiðja 18v Ryobi One+ RROS18-015.895 kr.
-
DEWALTSlípivél 18V 125mm DeWALT DCW210N BL34.995 kr.
-
RYOBIFræsitannasett 6mm Ryobi RAKRBS1511.895 kr.
-
RYOBIFræsari 18V Ryobi One+ RTR18-027.995 kr.
-
RYOBIHerslulykill 18V 1/2″ Ryobi One+ HP RIW18X‐036.995 kr.
-
BAUHAUSTommustokkur 2m Stabila1.395 kr.
-
Vara hættirNILFISKHelluhreinsiefni 2,5L Nilfisk1.995 kr.
-
TilboðKÄRCHERHáþrýstidæla Limited Edition Kärcher 90 ára34.995 kr.Tilboð gildir til 28 maíÞú sparar: 10.000 kr. Almennt verð: 44.995 kr.
-
BAHCOHjólatjakkur langur 2T Bahco BH1200074.195 kr.
-
KÄRCHERHáþýstidæla K2 Universal Kärcher21.195 kr.
-
KÄRCHERIðnaðarryksuga 1300W Kärcher WD 6 P52.995 kr.
-
NILFISKSápu/froðubrúsi 700ml Nilfisk12.195 kr.
-
BOSCHKeðjusög 18V 15cm Bosch Easy án rafhlöðu32.295 kr.
-
RYOBILaser Kross Rauður Ryobi RBCLLR114.895 kr.
-
DEWALTRafhlaða 18V XR 4,0Ah DeWalt DCB18217.295 kr.
-
HERKULESJarðvegsþjappa Herkules RP 800 B61.795 kr.
-
MAKITASláttuvél 2x18V 53cm Makita DLM539Z159.995 kr.
-
Kerrunet 250x160cm grænt5.095 kr.
-
KÄRCHERBurstahöfuð sem snýst WB 130 SZ8.895 kr.
-
GLORIAKantskeri fyrir Multibrush 2in117.395 kr.
-
CordaÁltrappa 5 þrep Stabilomat 1,7m12.595 kr.
-
COBRAKerrubrautir 2stk 1,5m galvaníserað Cobra12.395 kr.
Verkfæri
Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að hafa réttu verkfærin til að takast á við hvaða verkefni sem er, stór sem smá. Með fjölbreyttu úrvali okkar af hágæða verkfærum geturðu verið viss um að ná faglegum árangri. Hvort sem þú ert vanur fagmaður eða ástríðufullur áhugamaður, þá höfum við tækin sem þú þarft til að vinna verkið á góðan og skilvirkan hátt. Hjá BAUHAUS finnur þú mikið úrval af vélum og verkfærum frá þekktum og traustum vörumerkjum eins og Bosch, Dewalt, Ryobi og Makita.
Það er alveg eðlilegt að týnast í valmöguleikunum við kaup á nýjum verkfærum: hvaða tæki er best fyrir þetta verkefni, hugsarðu eflaust með þér. Við erum hér til að hjálpa, og munum fara yfir mismunandi verkfæri hér að neðan svo að þú getir valið þau verkfæri sem henta þér og þínum verkefnum best.
Mismunandi gerðir verkfæra
Verkfæri skiptast í raun í tvo aðal flokka: handverkfæri og rafmagnsverkfæri. Klassísk handverkfæri eru meðal annars hamrar, skrúfjárn, meitlar, þjalir og sporjárn.Handverkfæri oft betri kosturinn, sérstaklega fyrir minni verkefni sem taka styttri tíma, eins og að hengja upp mynd. Handverkfæri henta einnig oft betur þegar vandvirkni og nákvæmni skipta miklu máli, þar sem þú hefur betri stjórn á verkfærinu.
Rafmagnsverkfæri eru tæki á borð við bor- og skrúfvélar, naglabyssur, fræsara, hersluvélar og sagir.Rafmagnsverkfæri eru oft ótrúlega þægilegur kostur þar sem þau auðvelda þér vinnuna til muna og draga úr nauðsynlegri áreynslu við notkun þeirra. Rafmagnsverkfæri eru nauðsynleg í öll stærri verkefni eins og að hengja upp hillur, smíða sjónvarpsskenk eða taka baðherbergið í gegn. Þau koma sér einnig einstaklega vel þegar maður þarf að setja saman húsgögn eða taka þau í sundur, þar sem þau gera þér kleift að herða alla hluta betur og svo leysa þá aftur án óþarflega mikils erfiðis.
Verkfæri sem hjálpa til við þrifin
Verkfæri hjálpa okkur ekki aðeins að búa til og laga hluti, heldur eru til ýmis tæki og tól sem teljast til þrifa-verkfæra. Á meðal þessara tækja eru meðal annars háþrýstidælur, iðnaðarryksugur, gluggahreinsar og ýmsar hreinsivélar.
Háþrýstidælur, eins og nafnið gefur til kynna, spúa frá sér vatnsstraum með ótrúlegum krafti. Það gerir það að verkum að þær eru einstaklega hentugar í erfið þrifaverkefni á borð við að hreinsa gras af sláttuvélinni, leðju af bílnu og flagnandi málningu af húsinu. Með ýmsum aukabúnaði er einnig hægt að nota háþrýstidælur í sérhæfðri verkefni eins og að hreinsa niðurföll eða fjarlægja þörunga á timbur- eða flísalögðum veröndum eða öðrum malbikunarsvæðum.
Iðnaðarryksugur stíga inn í þegar venjulega heimilisryksugan dugir bara einfaldlega ekki í verkið. Í úrvali iðnaðarryksuga geturðu meðal annars fundið ryksugu sem þolir bleytu, ryksugu sem er sérstaklega gerð til að sjúga upp ösku og eldivið úr arninum eða af grillinu, og ryksugu sem er einnig gólfþvottavél.
Hvaða verkfæri er gott að eiga í verkfærakassanum?
Einhvern tímann á lífsleiðinni verðum við öll að eignast okkar eigin verkfærakassa og þótt við séum ekki öll með iðnaðinn í blóðinu þá eru ákveðin verkfæri sem verða að vera til á öllum heimilum:
- Borvél:Borvélar gagnast í ýmis verkefni, bæði stór og smá, og eru ómissandi í alla verkfærakassa. Hvort sem þú þarft að hengja upp hillu heima hjá þér eða ert atvinnu-húsgagnasmiður, þá verður allt auðveldara með réttu borvélinni.
- Skrúfjárn/skrúfvél: Það segir sig svolítið sjálft að öll heimili verða að eiga að minnsta kosti eitt skrúfjárn, helst nokkur með mismunandi hausum. Skrúfjárn gera okkur kleift að setja saman húsgögn, skipta um batterí í raftækjum, hengja upp hluti og svo margt fleira. Skrúfvélar eru svo lúxusútgáfan af skrúfjárnum og auðvelda þér áreynsluna sem fylgir því oft að skrúfa.
- Hamar: Það er svipuð saga með hamarinn og með skrúfjárnið. Hamarinn, sem er eitt af þeim verkfærum sem hafa fylgt manninum sem lengst, er ómissandi í ýmis verkefni og reddingar á borð við að hengja upp myndir, setja saman húsgögn og losa nagla.
- Aukahlutir: Verkfærin duga skammt ef þú átt ekki réttu aukahlutina með þeim. Verkfærakassinn er ekki heill fyrr en þú hefur sett í hann úrval af skrúfum, nöglum, borum, sandpappír og öðrum aukahlutum sem eru nauðsynlegir í verkefnin sem verkfærin þín ganga í.
Einfalt og þægilegt hjá BAUHAUS
Þú finnur réttu verkfærin fyrir þig í BAUHAUS ásamt öllum nauðsynlegum aukahlutum. Skoðaðu úrvalið í netversluninni, pantaðu vörurnar og sæktu í verslunina. Einnig ertu alltaf velkomin/nn í verslunina til okkar þar sem við hjálpum þér að finna réttu vörurnar fyrir þig.
FAQ
Er hægt að leigja verkfæri hjá BAUHAUS?
- Nei, því miður bjóðum við ekki upp á verkfæraleigu. Hins vegar er starfsfólk okkar meira hér til þess að hjálpa þér með valið á réttu verkfærunum fyrir þig, sama hversu stórt eða lítið það er, og er reiðubúið til þess að svara öllum þínum spurningum.
Hvað er besta verkfærið til að eiga?
- Það fer eftir þínum þörfum og þeim verkefnum sem þú ert að vinna í hvaða verkfæri er best fyrir þig að eiga. Ef þú átt engin verkfæri er gott að byrja á því að kaupa verkfærasett með öllum aðalverkfærunum sem er gott að eiga.