18V HiKOKI hjólsög, í söginni er innbyggð bremsa og mjúk ræsing. Það er sjálfvirk hraðastýring í söginni sem heldur sama hraða miðað við álag. Það eru tvær stillingar á vélinni(afl og hljóðlaus). Það er innbyggt LED ljós og rafhlöðuvísir sem sýnir stöðu rafhlöðunnar. Hjólsögin kemur í staflanlegum kassa, án rafhlöðu og hleðslutæki.
Hvað þýðir kolalaus mótor?
Með kolalausum mótor afkastar vélin meira afli en vél með kolum.
Verkfærið slitnar heldur ekki á sama hátt og eldri verkfæri, í eldri verkfærum þarf oft að skipta um kol í mótornum.
Vélin nær einnig allt að 50% lengri notkunartíma miðað við hefðbundna vél.
Eiginleikar
Spenna: 18V Li-Ion
Rafhlaða: Nei
Kolalaus: Já
Hraði: 5.000 sn/mín
Hraði(hljóðlaus stilling): 3.000 sn/mín
Sagarblað: 125 x 20 mm
Hámarks dýpt 90°: 47 mm
Hámarks dýpt 45°: 30 mm
Mesti halli: 45°
Ljós: Já
Taska: Já
Hleðslutæki: Nei
Mál(LxH): 280 x 237 mm
Þyngd(án rafhlöðu): 1,8 kg