-
COMMELSnúra með kló 2x0,75 Commel 2m1.095 kr. -
COMMELKló með snúru 2m 3x0,75 Commel hvít1.895 kr. -
COMMELKló með snúru 3m 3x0,75 Commel hvít2.095 kr. -
COMMELSnúra með kló 3x1 2m Commel hvít1.495 kr. -
COMMELKló með snúru og rofa 2m 2x0,75 Commel gyllt1.895 kr. -
COMMELPrufupinni Commel grænn3.295 kr. -
COMMELBreytikló schuko í CEE Commel2.195 kr. -
COMMELRafmagnstafla bygginga 16A CEE Commel74.995 kr. -
COMMELRafmagnstafla bygginga 32A CEE Commel79.995 kr. -
COMMELHulsa CEE 16A 3P IP44 Commel1.795 kr. -
COMMELHulsa CEE 16A 5P IP44 Commel2.495 kr. -
COMMELKló CEE 16A 3P IP44 Commel1.795 kr. -
COMMELKló fasasnú CEE 16A 5P IP44 Commel3.495 kr. -
COMMELKló fasasnú CEE 32A 5P IP44 Commel7.495 kr. -
COMMELVeggtengill CEE 16A 3P IP44 Commel2.495 kr. -
COMMELVeggtengill CEE 16A 5P IP44 Commel2.495 kr. -
COMMELBensli 2,5x150 mm 100 stk Commel bland1.195 kr. -
COMMELBensli 3,5x200 mm 100 stk Commel græn1.795 kr. -
COMMELBensli 3,6x200 mm 100 stk Commel bland2.195 kr. -
COMMELBensli franskur rennilás 12x135 mm 10 stk Commel795 kr. -
COMMELFramlengingasnúra 3x1,5 10A 25m Commel rauð15.995 kr. -
COMMELFramlengingarsnúra 3x1,5Q 5m Commel rauð4.495 kr. -
COMMELFramlengingarsnúra CEE 5x1,5Q 10m Commel11.995 kr. -
COMMELFramlengingarsnúra 5x1,5Q 5m Commel8.995 kr. -
COMMELFramlengingarsnúra CEE 16A 5m Commel appelsínugul17.995 kr. -
COMMELHitaherpihólkur <0,5mm 20stk Commel995 kr. -
COMMELHitaherpihólkur 0,5-1mm 20stk Commel995 kr. -
COMMELHitaherpihólkur 1,5-2,5mm 20stk Commel1.195 kr. -
COMMELHitaherpihólkur 4,0-6,0mm 20stk Commel1.295 kr. -
COMMELHitaherpihólkur 0,5-6mm 100 stk bland3.695 kr. -
COMMELÍdráttarfjöður 10m nælon Commel1.695 kr. -
COMMELÍdráttarfjöður 20m nælon Commel2.195 kr. -
COMMELÍdráttarfjöður 20m stál Commel4.595 kr. -
COMMELKapalfesting 11-18mm 10 stk Commel235 kr. -
COMMELKapalkefli 25m 3x1,5 16A Commel14.195 kr.
Ljós
Velkomin í heim ljósanna, þar sem hvert herbergi hefur möguleika á að breytast í töfrandi og notalegan stað. Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að velja rétta ljósabúnaðinn og perurnar til að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu á heimilinu. Þess vegna bjóðum við upp á breitt úrval af ljósum í ýmsum stærðum og gerðum sem gera þér kleift að aðlaga lýsingu heimilisins að þínum þörfum.
Birtan inni á heimilinu getur skipt sköpum þegar það kemur að því að skapa stemmingu og hlúa að almennri vellíðan heimilisfólksins. Hærra og kaldara birtustig hjálpar okkur að vakna og koma okkur af stað á morgnana á meðan hlýrra og lægra birtustig skapar þægilega og róandi stemmingu á kvöldin. Að velja rétta lýsingu fyrir heimilið snýst einnig um jafnvægið á milli virkni og stíls. Ljósabúnaðurinn verður að virka fyrir þig og þínar þarfir, en á sama tíma er mikilvægt að hann samræmist þínum stíl og falli vel inn í rýmið.
Loftljós sem brennidepill rýmisins
Ef þú ert að leita að praktískum ljósum sem vekja athygli, þá eru loftljós góður staður til að byrja á. Loftljós eru fullkomin til þess að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu í stofunni, borðstofunni eða svefnherberginu. Eftirtektarvert loftljós verður að brennidepli rýmisins, svo það er gott að vanda valið! Úrvalið okkar af loftljósum inniheldur m.a. hengiljós, innfelld og yfirborðslöguð ljós og mismunandi gerðir af kösturum.
Notaleg en praktísk veggljós
Veggljós eru frábær valkostur fyrir þau sem vilja mildari lýsingu í rýmið , og eru m.a. fullkomin fyrir ganga, innganga og baðherbergi. Það eru margar gerðir af veggljósum til að velja úr, þar á meðal vegglampar, kastarar, hreyfanleg ljós og fleiri. Veggljós geta annaðhvort snúið upp eða niður, eða dreift birtunni jafnt yfir allt rýmið eða vegginn sem þau eru fest við, og eru annaðhvort í fastri stöðu eða hreyfanleg og þannig hægt að aðlaga þau að rýminu að hverju sinni. Við eigum veggljós í ýmsum gerðum í BAUHAUS svo þú finnur pottþétt ljós sem passa við þinn stíl.
Lampar﹘nytsamlegir skrautmunir
Borð- og gólflampar eru tilvaldir til að bæta við mjúkri birtu í hvaða herbergi sem er og eru um leið fallegir skrautmunir fyrir rýmið. Borðlampar henta vel ef þig vantar praktíska lýsingu þegar þú ert að lesa fyrir svefninn á meðan gólflampar eru tilvaldir til þess að skapa notalega stemmingu fyrir bíókvöldin í stofunni. Við eigum gott úrval af borð- og gólflömpum í mismunandi stærðum og stílum sem henta vel í öll rými heimilisins.
Hvernig vel ég réttu ljósin?
Áður en þú velur þér ljós er gott að teikna upp rýmið sem ljósið fer í. Hvað er gert inni í rýminu? Hvar í rýminu eru hvaða athafnir framkvæmdar? Þetta eru spurningar sem er vert að hafa í huga til þess að fá sem mest út úr lýsingu rýmisins. Hér eru nokkrar hlutir sem þarf að hafa í huga við val á ljósum:
- Hlutverk herbergisins: Í svefnherberginu viltu mýkri lýsingu fyrir notalegra andrúmsloft en á heimaskrifstofunni gætirðu þurft bjartari lýsingu fyrir betri einbeitingu.
- Litarhitastig peranna: Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og vinalegt andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur þar sem þú þarft bjartara ljós sem gefur þér þrótt.
- Stærð rýmisins: Hangandi loftljós passa vel í stærri rými með hærra loft en í minni herbergjum eru veggljós eða innfelld loftljós sem taka ekki of mikið pláss hentugri.
Í BAUHAUS finnurðu allt sem þú þarft frá LED ljósaperum og loftljósum til veggljósa og gólflampa. Hvort sem þú ert að gera upp heimilið þitt eða einfaldlega að hressa upp á eitt herbergi, þá finnurðu rétta ljósið fyrir öll rými heimilisins í BAUHAUS.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Ekki vera hrædd við að vera skapandi í ljósavalinu, hvort sem þú ert að velja einn gólflampa eða lýsingu í heilt rými, þá getur valið bætt miklum persónuleika við rýmið og bætt vellíðan þína í leiðinni. Skoðaðu úrvalið af ljósum í netversluninni okkar eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið. Við erum hér til að hjálpa þér að velja bestu lausnina fyrir rýmið þitt
FAQ:
Hvaða ljós gefa bestu birtuna?
- Það er ekkert eitt ljós sem gefur bestu lýsinguna þar sem það fer eftir tilgangi og andrúmslofti sem þú vilt skapa í herbergi. Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og velkomið andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur fyrir verklýsingu og svæði þar sem þú þarft bjart ljós.
Hversu mikið ljós ætti að vera í herbergi?
- Magn ljóss sem þarf í herbergi fer eftir tilgangi og stærð rýmisins. Í stofunni og svefnherberginu er betra að hafa hlýja og notalega birtu á meðan eldhús og heimaskrifstofur þurfa góða og ferska lýsingu svo þú sjáir vel hvað þú ert að gera. Þú getur einnig valið dimmanleg ljós og snjallperur þar sem þú getur breytt hitastigi birtunnar eftir eigin smekk.
Jólaljós fyrir heimilið og garðinn
Þegar jólin nálgast er tími til að skapa hlýlega stemningu bæði inni og úti. Við hjá BAUHAUS bjóðum upp á fjölbreytt úrval af jólavörum fyrir heimilið og garðinn, þar á meðal LED jólaljós og jólaseríur sem gera jólin enn hátíðlegri. Hvort sem þú ert að leita að jólaljósum til að lýsa upp stofuna eða útiskreytingum fyrir jólin, þá finnur þú það hjá okkur.
Jólaseríur og LED jólaljós eru fullkomin til að lýsa upp útiskreytingarnar og skapa töfrandi stemmingu í garðinum. Einnig höfum við úrval af jólatrjám og jólavörum til sölu, sem hjálpa þér að skapa fullkomið jólaandrúmsloft. Skreytingar fyrir jólin þurfa ekki að vera flóknar; með réttum jólaljósum og útiskreytingum verður bæði heimilið og garðurinn að töfrandi jólaveröld.