Síur 1
Sýna 5 vörur

Handverkfæri

Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að hafa réttu verkfærin til að takast á við hvaða verkefni sem er, stór sem smá. Með fjölbreyttu úrvali okkar af hágæða verkfærum geturðu verið viss um að ná faglegum árangri. Hjá BAUHAUS finnur þú mikið úrval af handverkfærum frá þekktum og traustum vörumerkjum eins og Bosch, Dewalt, Ryobi og Stanley.

Mismunandi gerðir handverkfæra

Verkfæri skiptast í raun í tvo aðal flokka: handverkfæri og rafmagnsverkfæri. Handverkfæri, líkt og nafnið gefur til kynna, ganga ekki fyrir rafmagni og eru notuð með handafli. Klassísk handverkfæri eru meðal annars hamrar, skrúfjárn, meitlar, þjalir og sporjárn. Handverkfæri oft betri kosturinn, sérstaklega fyrir minni verkefni sem taka styttri tíma, eins og að hengja upp mynd. Handverkfæri henta einnig oft betur þegar vandvirkni og nákvæmni skipta miklu máli, þar sem þú hefur betri stjórn á verkfærinu.

Hvaða handverkfæri er gott að eiga?

  • Skrúfjárn: Það segir sig svolítið sjálft að öll heimili verða að eiga að minnsta kosti eitt skrúfjárn, helst nokkur með mismunandi hausum. Skrúfjárn gera okkur kleift að setja saman húsgögn, skipta um batterí í raftækjum, hengja upp hluti og svo margt fleira.
  • Hamar: Það er svipuð saga með hamarinn og með skrúfjárnið. Hamarinn, sem er eitt af þeim verkfærum sem hafa fylgt manninum sem lengst, er ómissandi í ýmis verkefni og reddingar á borð við að hengja upp myndir, setja saman húsgögn og losa nagla.
  • Aukahlutir: Verkfærin duga skammt ef þú átt ekki réttu aukahlutina með þeim. Verkfærakassinn er ekki heill fyrr en þú hefur sett í hann úrval af skrúfum, nöglum, borum, sandpappír og öðrum aukahlutum sem eru nauðsynlegir í verkefnin sem verkfærin þín ganga í.

En hvað með rafmagnsverkfæri?

Rafmagnsverkfæri eru tæki á borð við bor- og skrúfvélar, naglabyssur, fræsara, hersluvélar og sagir. Rafmagnsverkfæri eru þægilegur kostur sem þau auðvelda þér vinnuna til muna og draga úr áreynslu við notkun þeirra. Rafmagnsverkfæri gagnast vel í stærri verkefni eins og að hengja upp hillur, smíða sjónvarpsskenk eða taka baðherbergið í gegn. Þau koma sér einnig einstaklega vel þegar maður þarf að setja saman húsgögn eða taka þau í sundur, þar sem þau gera þér kleift að herða alla hluta betur og svo leysa þá aftur án óþarflega mikils erfiðis.

FAQ

Hvað eru handverkfæri?

  • Handverkfæri, líkt og nafnið gefur til kynna, ganga ekki fyrir rafmagni og eru notuð með handafli. Klassísk handverkfæri eru meðal annars hamrar, skrúfjárn, meitlar, þjalir og sporjárn.

Hvaða handverkfæri þarf ég?

  • Ef þú átt engin handverkfæri er gott að byrja á þeim klassískustu: skrúfjárn og hamar. Með þessum tveimur verkfærum geturðu unnið ýmiss konar einföld verkefni. Gættu þess að eiga annað hvort mismunandi gerðir af skrúfjárnum eða skrúfjárn sem þú getur skipt um hausinn á, svo það gagnist þér í mismunandi verkefni.

Handverkfæri

Sýna 5 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form
 

Vöruupplýsingablað

Upplýsingaskjalið mun opnast í nýjum flipa. Viltu halda áfram?