Gildin okkar

Ábyrgð

„Við berum sameiginlega ábyrgð á þeim verkefnum sem þarf að leysa og skilum öllum verkum í hæstu gæðum, óháð því hvert verkefnið er.“

Þetta þýðir að í okkar daglegu störfum er hvert og eitt okkar ábyrgt fyrir því að:

  • Standa við gerða samninga og leysa verkefnin vel og á tilsettum tíma.
  • Fara eftir starfsreglum.
  • Bera virðingu fyrir fyrirtækinu og hverju öðru í orðum okkar og athöfnum.
  • Gera eins og við segjum og standa við gefin loforð.

Viðskiptavinurinn

„Viðskiptavinurinn er okkur mikilvægastur og við leitumst ávallt eftir því að veita honum góða upplifun.“

Þetta þýðir að við setjum viðskiptavininn alltaf í fyrsta sæti með því að:

  • Líta á viðskiptavininn sem mikilvægustu persónuna.
  • Koma fram við viðskiptavininn eins og við myndum vilja að komið yrði fram við okkur.
  • Vera sýnileg, jákvæð og veita faglega ráðgjöf.
  • Bæta starfsvenjur okkar, viðskiptavininum til hagsbóta.

Starfsþróun

„Við gefum kost á persónulegri og faglegri þróun og styðjum starfsfólk okkar ef það vill afla sér þekkingar og skilnings starfs síns vegna.“

Þetta þýðir að við veitum starfsfólki okkar starfsþróun með því að:

  • Sinna nauðsynlegri starfsþjálfun.
  • Halda starfsmannaviðtöl og skipuleggja frekari þjálfun í samráði við viðkomandi starfsmann.
  • Veita starfsfólki stuðning vegna starfsþróunar og leggja grunn að sameiginlegri framtíð.

Árangursmiðun

„Við setjum okkur raunhæf en metnaðarfull markmið og notum færni og þekkingu hvers annars til að ná sem mestum árangri.“

Þetta þýðir að við eigum okkur skýr og raunhæf markmið sem við vinnum að með því að:

  • Skipta yfirmarkmiðum í raunhæf og sýnileg undirmarkmið.
  • Mæla árangur með reglulegum hætti og nota niðurstöðurnar til umbóta ef þörf krefur.
  • Vinna skipulega og leysa verkefni á markvissan og agaðan hátt.
  • Gera hlutina rétt strax frá upphafi.

Samvinna

„Við tökum öll þátt í að leysa þau verkefni sem liggja fyrir og komum fram við hvert annað af hreinskilni, heiðarleika og virðingu.“  

Það þýðir að við eigum okkur sameiginleg markmið, sýnum samstarfsfólki virðingu og viðurkennum fjölbreytileika með því að:

  • Nota þekkingu og færni hvers annars.
  • Vera uppbyggileg.
  • Leggja áherslur á lausnir en ekki vandamál.
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
Loka
Bæta á óskalistann

Bæta á óskalistann

Með því að bæta við vörum á óskalista hefur þú góða yfirsýn yfir valdar vörur.

Skrá inn eða nýskrá