-
PHILIPS HUEKastaraperur 2 stk bluetooth WCA Philips Hue16.345 kr
-
OSRAMLED Skrautpera retrofit standard 8,5W E27 Osram995 kr
-
OSRAMLED Pera Star Special T26 E14 1,3W Osram1.145 kr
-
EGLOSpiral LED pera E27 4W dimmanleg2.995 kr
-
EGLOVintage LED-pera 4W Eglo dimmanleg þv 80 mm2.495 kr
-
EGLOLED-pera E27, 4 W frá Eglo, dimmanleg, þv.12,5 cm3.195 kr
-
PHILIPS HUEFilamentpera standard LED bluetooth E27 Philips Hue3.895 kr
-
PHILIPS HUEFilamentpera edison LED bluetooth E27 Philips Hue4.795 kr
-
EGLOLED globe ljósapera E27 2W Eglo þv9cm3.495 kr
-
EGLOVintage LED ljósapera keilulaga E27 4W Eglo1.495 kr
-
EGLOVintage LED globe ljósapera E27 4 W Eglo þv.8 cm1.495 kr
-
EGLOLED ljósapera kopar E27 dimmanl 4W2.995 kr
-
EGLOLED ljósapera E27 3þrepa dimmanl 6W3.495 kr
-
EGLOLED-C GU10 5W RGB, 345LM, 2700-6500K3.995 kr
-
EGLOLED globe ljósapera E27 4,3W Eglo dimmanl, þv9,5cm4.495 kr
-
EGLOLED globe ljósapera E27 4W Eglo dimmanl þv9,5cm2.495 kr
-
PAULMANNPlöntupera LED E14 R50 Filament Grow Green Reflector 64°3.195 kr
-
PAULMANNPlöntupera LED E27 Filament Grow Green Reflector 106°3.695 kr
-
PAULMANNPlöntupera LED E27 Filament Grow Green Reflector 60°3.695 kr
-
PAULMANNPlöntupera LED E27 Filament Grow Green Reflector 115°4.495 kr
-
EGLOVintage LED-pera kringlótt E27 4W frá Eglo1.795 kr
-
EGLOLED ljósapera 6 W Eglo2.995 kr
-
EGLOVintage LED ljósapera 4W Eglo dimmanleg þv 5 mm2.995 kr
-
EGLOVintage LED kerta ljósapera 4W Eglo dimmanleg þv 37 mm1.495 kr
-
EGLOVintage LED-globepera E27 4 W frá Eglo, 320 lúmen, þv.7,5 cm1.695 kr
-
EGLOLED ljósapera 4W Eglo þv 6,4cm dimmanleg2.995 kr
-
EGLOLED ljósapera E27 4W frá Eglo m/3 þrepa dimmer1.995 kr
-
EGLOLED filament ljósapera E27 4W frá Eglo gulllituð2.995 kr
-
PHILIPS HUEHue Startsett WCA 2xE27+brú+switch Philips23.895 kr
-
EGLOLED ljósapera E27 dimmanl 7W2.995 kr
-
OSRAMLED Perur Superstar PAR16 3,2W 2stk. Osram1.695 kr
Ljósaperur
Ljósið loftin fyllir, og loftin verða blá. Góð lýsing er hornsteinn notalegs heimilis og hefur mikil áhrif á skap okkar og almenna vellíðan. Of mikil birta getur gefið okkur hausverk á meðan of lítil birta hindrar okkur í því að koma hlutunum í verk. En hvernig veistu hvaða ljósaperur henta þér best? Þar komum við inn. Hér að neðan förum við yfir mismunandi gerðir ljósapera og eiginleika þeirra, til að aðstoða þig við valið.
Hlýjar snjallperur eða kaldar LED perur?
Þegar þú röltir niður ganginn í BAUHAUS eða skrunar niður síðurnar í vefversluninni okkar, taka glitrandi ljósaperur á móti þér eins og stjörnur. Ætlarðu í klassískan hlýleika glóperanna eða orkusparandi ljóma LED pera? Ákvörðunin er þín!
Klassískar ljósaperur
Ef þú ert að leita að klassískara útliti eigum við venjulegar ljósaperur í ýmsum stærðum og gerðum . Klassískar ljósaperur eru enn góður valkostur og henta sérstaklega vel í staka lampa hér og þar á heimilinu.
LED ljósaperur
LED perur eru orkusparandi og umhverfisvænn valkostur sem mun hjálpa þér að minnka kolefnisfótsporið þitt og rafmagnsreikninginn þinn. LED perur nota allt að 80% minni orku en hefðbundnar ljósaperur og endast mun lengur. Auk þess koma þær í ýmsum litum og gerðum, svo þú getur fundið hina fullkomnu LED peru sem passar við þinn stíl.
Snjallar ljósaperur
Snjallperur eru nýjasta æðið , og ekki að ástæðulausu. Einn helsti kostur snjallpera er getan til að stjórna þeim með appi í símanum, með fjarstýringu eða jafnvel með raddstýringu í gegnum tækni sem býður upp á slíkt. Með snjallperum geturðu auðveldlega kveikt og slökkt á ljósunum, breytt birtustiginu og hitastigi ljóssins, sett upp samþætt ljósakerfi í öllu húsinu og stillt hvenær ljósin slokkna og kvikna.
Litarhitastig
Annað sem þarf að hafa í huga við valið er litarhitastig peranna. Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og vinalegt andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur þar sem þú þarft bjartara ljós sem gefur þér þrótt. Til dæmis er betra að hafa hlýrri perur í svefnherberginu og stofunni, en í eldhúsinu og á heimaskrifstofunni nærðu betri einbeitingu með skarpari lýsingu. Þú getur einnig valið dimmanleg ljós og snjallperur þar sem þú getur breytt hitastigi birtunnar eftir skapi þínu hverju sinni.
FAQ:
Hvaða tegundir af ljósaperum eru til?
- Ljósaperum má skipta í þrjá aðalflokka: Klassískar perur, LED perur og snjallperur. Klassískar ljósaperur eru fínn kostur fyrir hefðbundið útlit og virkni á meðan LED perur eru orkusparandi, endingargóðar og koma í ýmsum litum og gerðum. Snjallperum er svo hægt að fjarstýra á ýmsa vegu ásamt því að stilla birtu- og hitastig, samþætta ljósastýringu heimilisins og setja upp sérsniðna tímaáætlun.
Hvaða ljósapera notar minnstu orkuna?
- LED perur nota minnstu orkuna af öllum ljósaperum. Þær eru allt að 80% sparneytnari en hefðbundnar ljósaperur og endast miklu lengur, sem gerir þær að hagkvæmum og vistvænum valkosti fyrir alla sem vilja draga úr orkunotkun sinni og finnst ótrúlega leiðinlegt að skipta um perur.