Síur
Sýna 16 vörur

Innihurðir

Hurðir eru mikilvægur hluti heimilisins, bæði innan þess og utan, og gegna bæði praktísku og fagurfræðilegu hlutverki. Því er gott að vanda valið þegar það kemur að því að velja hurðar fyrir heimilið. Hjá BAUHAUS finnurðu gott úrval af innihurðum úr gæða efnivið sem passa fullkomlega við þitt heimili. Skoðaðu úrvalið hér að ofan! Ef þig vantar einnig útihurðir, þá finnurðu þær hér.

Innihurðir sinna mun stærra hlutverki en að aðskilja herbergi og tryggja næði, heldur eru þau grundvallaratriði í heildarútliti og innréttingu heimilisins. Innihurðar geta bæði gefið heimilinu samræmdan stíl með því að hafa sömu týpu og/eða lit fyrir hverja dyr, eða þær geta gefið heimilinu lit og sérstætt útlit með því að hafa nokkrar mismunandi hurðir.

Innihurðir úr gæða efnivið

Gæði, virkni og ending eru mjög mikilvæg hjá okkur í BAUHAUS. Við viljum bjóða viðskiptavinum okkar upp á gæðavörur á góðu verði sem henta þeim og endast vel. Það á einnig við um úrvalið okkar af hurðum. Sama hvort það sé viðurinn í hurðinni, stálið í hurðarhúninum eða glerið í gluggunum - þú getur treyst því að þú fáir gæðavöru í BAUHAUS, án þess að tæma vasana alveg.

Praktísku hlutirnir

Auk fagurfræðinnar er virkni hurðarinnar einnig í fyrirrúmi. Einangrun og hljóðdempun hurðarinnar eru mikilvægir eiginleikar sem ber að hafa í huga fyrir hvert rými fyrir sig, ásamt því að huga að því hvernig hurðin passar inn í rýmið. Algengustu hurðirnar eru á hjörum og opnast annað hvort inn í eða út úr rými. Þær henta oft vel í flest rými, eru auðveldar í uppsetningu og koma í ýmsum stærðum og gerðum. Hins vegar hafa vinsældir rennihurða aukist líka, sérstaklega fyrir minni rými þar sem pláss er af skornum skammti. Hurðin hverfur þá inn í vegginn þegar dyrnar eru opnaðar og sparar þannig gott pláss í rýminu.

Aukahlutirnir

Þegar þú hefur fundið réttu hurðina/hurðirnar geturðu farið að huga að fylgihlutunum. Hjá BAUHAUS finnurðu til dæmis úrval af mismunandi hurðarhúnum ásamt gluggafilmum sem gefa aukið næði og skemmtilegt útlit.

Ef þú ert óviss hvernig hurðir passa best inn í þitt rými eða hvernig útliti og hönnun þú ert helst að leita að, sláðu á þráðinn eða mættu í verslunina til okkar og fáðu fagmannlega ráðgjöf frá starfsfólki BAUHAUS.


FAQ

Hvernig mælir maður plássið fyrir innihurð?

  • Byrjaðu á því að mæla breidd hurðakarmsins efst, fyrir miðju og neðst. Mældu síðan hæð rammans á bæði vinstri og hægri hlið. Ekki gleyma að mæla dýpt rammans líka. Taktu alltaf minnstu mælingu til að tryggja að hurðin passi rétt.

Er hægt að skipta um innihurð án þess að skipta um hurðakarma?

  • Já, það er hægt að skipta um innihurð án þess að skipta um ramma. Þú þarft bara að tryggja að mál nýju hurðarinnar passi við núverandi ramma. Að öðrum kosti er hægt að skera hurðina til svo hún passi, ef þörf krefur, en það krefst nákvæmra mælinga og vandaðrar vinnu.

Innihurðir

Sýna 16 vörur
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
Loka
Bæta á óskalistann

Bæta á óskalistann

Með því að bæta við vörum á óskalista hefur þú góða yfirsýn yfir valdar vörur.

Skrá inn eða nýskrá