-
HANSGROHEBlöndunartæki Hansgrohe MyFox krómað24.995 kr.
-
GROHESturtutæki Grohe Precision Flow króm24.995 kr.
-
GROHESturtutæki Grohe Precision Start Króm43.495 kr.
-
GROHESturtutæki Grohe Precision Start matt svört49.995 kr.
-
DAMIXASturtutæki Damixa TMC eco króm36.995 kr.
-
DAMIXABlöndunartæki Zero með stút niður krómað Damixa27.995 kr.
-
GROHESturtutæki Grohe Precision Trend Króm54.195 kr.
-
TilboðHANSGROHEBaðtæki Hansgrohe Ecostat Fine CC22.995 kr.Tilboð gildir til 29 júníÞú sparar: 4.000 kr. Almennt verð: 26.995 kr.
-
CAMARGUESturtutæki Camargue Samsø Sandvig33.595 kr.
-
AdoraBaðtæki Adora króm24.195 kr.
-
CAMARGUEBaðtæki Camargue Samsø Korsbæk26.795 kr.
-
Vara hættirCAMARGUEBaðkarsstútur m. snúning Camargue Samsø Króm6.895 kr.
-
HANSGROHEBaðtæki Hansgrohe Myfox Nordic Króm með sturtutengi51.595 kr.
-
GROHESturtutæki Grohe Precision Feel króm49.995 kr.
-
DAMIXASturtutæki Damixa TMC króm31.995 kr.
-
AdoraSturtutæki Adora króm22.195 kr.
-
GROHESturtutæki Grohe Feel Króm41.495 kr.
-
AdoraBaðtæki Adora Circum24.995 kr.
-
CAMARGUESturtutæki Camargue Samsø Dueodde33.595 kr.
-
HANSGROHESturtutæki Hansgrohe Ecostart Fine svart52.695 kr.
-
AdoraBlöndunartæki krómað Adora20.595 kr.
-
DAMIXASturtutæki Damixa TMC króm44.995 kr.
-
DAMIXASturtutæki Damixa Thermixa Zero króm31.995 kr.
-
AdoraSturtutæki Adora Exigo D20.595 kr.
Blöndunartæki
Blöndunartæki eru nauðsynlegur hluti af hverju baðherbergi, en þótt þau séu með praktískari hlutum baðherbergisins, þá þurfa þau ekki að vera óspennandi eða ljót.
Við notum baðherbergið daglega, svo hvers vegna ættum við ekki að gera það eins huggulegt og við viljum? Með réttu blöndunartækjunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt.
Hér að ofan finnurðu gott úrval af blöndunartækjum í ýmsum litum og gerðum, svo þú finnur örugglega það sem hentar þínum stíl og þörfum. Ertu að taka baðherbergið í gegn? Hjá okkur finnurðu einnig gott úrval af baðherbergisinnréttingum í stíl við þau blöndunartæki sem þú velur þér.
Veldu réttu blöndunartækin fyrir þitt baðherbergi
Í BAUHAUS finnurðu úrval af ýmiss konar blöndunartækjum fyrir baðherbergið þitt. Þegar þú skoðar blöndunartækin í netverslun BAUHAUS geturðu einnig sett síur á leitarniðurstöðurnar, svo þú sjáir aðeins þær gerðir, vörumerki og verðflokka sem þú hefur áhuga á.
Ef þú vilt hafa sama stíl á baðherberginu þínu og annars staðar á heimilinu þá er gott að velja blöndunartæki úr sama efni og/eða í sama lit. Við eigum blöndunartæki í ýmsum litum og áferðum, meðal annars:
- Antík messing
- Króm
- Mattur svartur
- Mattur hvítur
- Gullitað
- Gun metal
- Burstað stál
Ef þú vilt hafa baðherbergið í öðrum stíl en til dæmis eldhúsið mælum við allavega með því að þú samræmir útlitið á blöndunartækjunum í handlauginni og í sturtunni/baðkarinu. Passar handlaugin þín ekki alveg við þau blöndunartæki sem þig langar í? Skoðaðu úrvalið okkar af handlaugum hér og finndu þá réttu fyrir þitt baðherbergi.
Sérstakir eiginleikar blöndunartækja
Þú þarft ekki bara að ákveða hvernig stíl þú vilt hafa á blöndunartækjunum þínum heldur einnig hvaða eiginleika þú vilt að þau hafi.
Þegar þú velur þér blöndunartæki í handlaugina þarftu að hafa í huga stærð handlaugarinnar, hvort þú þarft tæki með botnventli eða ekki og hvers konar hitastýringu þú vilt. Einnig eru sum blöndunartæki með ákveðinni vatnssparandi tækni, sem er þá tilgreind í vörulýsingunni. Þegar þú velur þér blöndunartæki í sturtuna eða nýtt sturtusett aukast valkostirnir. Þú getur valið á milli einfaldrar eða tvöfaldrar sturtu, regnsturtu eða ekki, mismunandi hitastýringu á blöndunartækjunum og svo mismunandi bunustillingar á handsturtunni.
Blöndunartæki eldhússins
Eldhúsvaskurinn er ekki endilega flottasta tæki heimilisins, en hann getur verið ansi flottur. Mikilvægara en það er þó að hann sé praktískur og þægilegur í notkun. Úrvalið af blöndunartækjum fyrir eldhúsið í BAUHAUS sameinar alla þessa eiginleika. Sama hvort þú viljir lítinn og stuttann stút, stút með úttaki eða sveigjanlega vatnsslöngu, þá finnurðu réttu blöndunartækin fyrir eldhúsið hér.
FAQ:
Hvar finn ég samsvarandi blöndunartæki fyrir sturtuna og handlaugina?
- Í BAUHAUS geturðu fundið blöndunartæki í sama stíl fyrir bæði sturtuna og handlaugina. Einnig eigum við til blöndunartæki í eldhúsið sem eru í sama eða svipuðum stíl og tækin fyrir baðherbergið. Skoðaðu úrvalið hér að ofan og finndu þinn stíl.
Geturðu skipt um sturtublöndunartæki sjálf/ur?
- Já, það er ekkert mál að skipta um blöndunartæki í sturtunni sjálf/ur, svo lengi sem þau eru utanáliggjandi. Ef blöndunartækin eru inni í veggnum skaltu hafa samband við fagaðila til þess að skipta um þau.