Opið sumardaginn fyrsta frá kl 10-18
Síur
Sýna 7 vörur

Sturtutæki

Blöndunartæki eru nauðsynlegur hluti af hverju baðherbergi, en þótt þau séu með praktískari hlutum baðherbergisins, þá þurfa þau ekki að vera óspennandi eða ljót.

Við notum baðherbergið daglega, svo hvers vegna ættum við ekki að gera það eins huggulegt og við viljum? Með réttu blöndunartækjunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt.

Hér að ofan finnurðu gott úrval af blöndunartækjum fyrir sturtuna í ýmsum litum og gerðum, svo þú finnur örugglega það sem hentar þínum stíl og þörfum. Vantar þig einnig nýtt sturtusett? Þú finnur úrval af sturtusettum hér.

Veldu réttu blöndunartækin fyrir þína sturtu

Í BAUHAUS finnurðu úrval af ýmiss konar sturtutækjum. Þegar þú skoðar blöndunartækin í netverslun BAUHAUS geturðu einnig sett síur á leitarniðurstöðurnar, svo þú sjáir aðeins þær gerðir, vörumerki og verðflokka sem þú hefur áhuga á. Hjá okkur finnurðu nokkrar gerðir af sturtutækjum, og getur því valið um hvernig hita- og kraftstýringu þú vilt eða hvort þú viljir hitastillingarskynjara, til dæmis. Þú finnur einnig blöndunartæki fyrir baðið þitt hér í netverslun BAUHAUS.

Hvaða sturtuhaus finnst þér bestur?

Við þekkjum öll hvað það er ömurlegt að fara í sturtu með lélegan sturtuhaus og lítinn vatnsþrýsting og þess vegna er BAUHAUS hér til að hjálpa þér að tryggja að sturtan þín verði aldrei fyrir vonbrigðum. Skoðaðu úrvalið okkar af sturtuhausum hér.Við eigum einnig gott úrval af mismunandi sturtusettum í mismunandi stærðum, litum og hönnun. Þú getur skoðað úrvalið af sturtusettum hér.

Allt fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS

Ertu að endurnýja meira en sturtutækin? Er gamla sturtusettið kannski orðið svolítið slappt? Eða langar þig bara að breyta aðeins til? Þá ertu á réttum stað. Hjá BAUHAUS finnurðu einnig gott úrval af sturtusettum í mismunandi stærð, gerð og hönnun. Skoðaðu úrvalið hér að ofan og leyfðu valmöguleikunum að gefa þér innblástur.

Til að endurnýja baðherbergið þarf oft mikið af vörum, allt frá minnstu smáatriðum eins og nýrri klósettsetu til stærri hluta eins og nýs sturtuklefa. Hjá BAUHAUS höfum við allt sem þú þarft til að gera upp eða bæta baðherbergið þitt.

FAQ:

Hverju samanstendur sturta af?

  • Í heild sinni samanstendur sturta af blöndunartækjum, sturtuhaus og slöngu, og veggfestingu. Sturtan er svo staðsett annað hvort í sturtuklefa eða í baðkarinu. Þú finnur alla þessa hluti í BAUHAUS.

Hvernig sturta notar minnsta magnið af vatni?

  • Í BAUHAUS getur þú fundið sturtutæki með sérstakri vatnssparandi tækni sem getur minnkað vatnsnotkun um allt að helming. Skoðaðu úrvalið og lestu þig til um einstaka vörur með því að smella á þær.

Sturtutæki

Sýna 7 vörur
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
Loka
Bæta á óskalistann

Bæta á óskalistann

Með því að bæta við vörum á óskalista hefur þú góða yfirsýn yfir valdar vörur.

Skrá inn eða nýskrá