-
StanleySagarblað fyrir fjölnotavél 32x40mm fyrir tré og málm Stanley3.295 kr. -
StanleyFjölnotasagarblað 3 stk tré/plast/ál Stanley7.395 kr. -
StanleySagarblað fyrir fjölnotavél slípiblað fyrir múr K30 Stanley4.595 kr. -
StanleySagarblað fyrir fjölnotavél HSS fyrir tré og málm Stanley3.895 kr. -
StanleySagarblað fyrir fjölnotavél 10x30 fyrir tré og málm Stanley2.495 kr. -
METABOStingsagarblöð 10stk Metabo "SP"1.995 kr. -
METABOHjólsagarblað 254mm Metabo 254X30, Z48 WZ 5°NEG4.995 kr. -
METABOHjólsagarblað 216mm Metabo 216X30, Z40 WZ 5°NEG3.595 kr. -
METABOHjólsagarblað 254mm Multicut Metabo 254x30 Z80 FZ/TZ 5°neg21.295 kr. -
DEWALTSverðsagarblöð 240mm 5stk DeWALT4.695 kr. -
DEWALTSverðsagarblöð 203mm fyrir málm hámark 3mm 5stk DeWALT2.895 kr. -
RYOBISverðsagarblöð 3stk RYOBI RAC2601.700 kr. -
BOSCHSagarblað fyrir fjölnotavél 50mm harðviður Bosch13.995 kr. -
BOSCH PROFESSIONALSagarblað fyrir fjölnotavél 50mm viður og málmur Bosch13.995 kr. -
PROXXONStingsagarblöð 2stk STS/E Proxxon1.695 kr. -
BOSCHSagarblað fyrir fjölnotavél timbur 50mm Bosch 5stk11.895 kr. -
BOSCHSagarblað fyrir fjölnotavél 32x40 mm tré Bosch BIM2.995 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 216x30x2,4 64T Bosch Multi Material18.295 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 216x30 60T Bosch Optline9.995 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 254x30 40T Bosch Optiline7.995 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 216x30 48T Bosch Optiline7.995 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 190x30 36T Bosch Optiline6.995 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 305x30 40T Bosch Optiline12.995 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 85x15 30T Bosch Multi Material4.395 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 160x20 24T Bosch Standard Wood4.995 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 165x15,8x24T Bosch4.495 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 190x30 48T Bosch Expert Wood11.195 kr. -
BOSCHStingsagarblað fyrir málm/tré 3 stk Bosch T 367 XHM7.995 kr. -
RYOBISagblöð sett 18TPI Ryobi SSB18TPI2.895 kr. -
DEWALTSagarblað sett fyrir fjölnotavél 5stk DeWALT15.195 kr. -
BOSCHHjólsagarblað 216x30x48T Bosch Expert12.495 kr.
Verkfæri
Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að hafa réttu verkfærin til að takast á við hvaða verkefni sem er, stór sem smá. Með fjölbreyttu úrvali okkar af hágæða verkfærum geturðu verið viss um að ná faglegum árangri. Hvort sem þú ert vanur fagmaður eða ástríðufullur áhugamaður, þá höfum við tækin sem þú þarft til að vinna verkið á góðan og skilvirkan hátt. Hjá BAUHAUS finnur þú mikið úrval af vélum og verkfærum frá þekktum og traustum vörumerkjum eins og Bosch, Dewalt, Ryobi og Makita.
Það er alveg eðlilegt að týnast í valmöguleikunum við kaup á nýjum verkfærum: hvaða tæki er best fyrir þetta verkefni, hugsarðu eflaust með þér. Við erum hér til að hjálpa, og munum fara yfir mismunandi verkfæri hér að neðan svo að þú getir valið þau verkfæri sem henta þér og þínum verkefnum best.
Mismunandi gerðir verkfæra
Verkfæri skiptast í raun í tvo aðal flokka: handverkfæri og rafmagnsverkfæri. Klassísk handverkfæri eru meðal annars hamrar, skrúfjárn, meitlar, þjalir og sporjárn.Handverkfæri oft betri kosturinn, sérstaklega fyrir minni verkefni sem taka styttri tíma, eins og að hengja upp mynd. Handverkfæri henta einnig oft betur þegar vandvirkni og nákvæmni skipta miklu máli, þar sem þú hefur betri stjórn á verkfærinu.
Rafmagnsverkfæri eru tæki á borð við bor- og skrúfvélar, naglabyssur, fræsara, hersluvélar og sagir.Rafmagnsverkfæri eru oft ótrúlega þægilegur kostur þar sem þau auðvelda þér vinnuna til muna og draga úr nauðsynlegri áreynslu við notkun þeirra. Rafmagnsverkfæri eru nauðsynleg í öll stærri verkefni eins og að hengja upp hillur, smíða sjónvarpsskenk eða taka baðherbergið í gegn. Þau koma sér einnig einstaklega vel þegar maður þarf að setja saman húsgögn eða taka þau í sundur, þar sem þau gera þér kleift að herða alla hluta betur og svo leysa þá aftur án óþarflega mikils erfiðis.
Verkfæri sem hjálpa til við þrifin
Verkfæri hjálpa okkur ekki aðeins að búa til og laga hluti, heldur eru til ýmis tæki og tól sem teljast til þrifa-verkfæra. Á meðal þessara tækja eru meðal annars háþrýstidælur, iðnaðarryksugur, gluggahreinsar og ýmsar hreinsivélar.
Háþrýstidælur, eins og nafnið gefur til kynna, spúa frá sér vatnsstraum með ótrúlegum krafti. Það gerir það að verkum að þær eru einstaklega hentugar í erfið þrifaverkefni á borð við að hreinsa gras af sláttuvélinni, leðju af bílnu og flagnandi málningu af húsinu. Með ýmsum aukabúnaði er einnig hægt að nota háþrýstidælur í sérhæfðri verkefni eins og að hreinsa niðurföll eða fjarlægja þörunga á timbur- eða flísalögðum veröndum eða öðrum malbikunarsvæðum.
Iðnaðarryksugur stíga inn í þegar venjulega heimilisryksugan dugir bara einfaldlega ekki í verkið. Í úrvali iðnaðarryksuga geturðu meðal annars fundið ryksugu sem þolir bleytu, ryksugu sem er sérstaklega gerð til að sjúga upp ösku og eldivið úr arninum eða af grillinu, og ryksugu sem er einnig gólfþvottavél.
Hvaða verkfæri er gott að eiga í verkfærakassanum?
Einhvern tímann á lífsleiðinni verðum við öll að eignast okkar eigin verkfærakassa og þótt við séum ekki öll með iðnaðinn í blóðinu þá eru ákveðin verkfæri sem verða að vera til á öllum heimilum:
- Borvél:Borvélar gagnast í ýmis verkefni, bæði stór og smá, og eru ómissandi í alla verkfærakassa. Hvort sem þú þarft að hengja upp hillu heima hjá þér eða ert atvinnu-húsgagnasmiður, þá verður allt auðveldara með réttu borvélinni.
- Skrúfjárn/skrúfvél: Það segir sig svolítið sjálft að öll heimili verða að eiga að minnsta kosti eitt skrúfjárn, helst nokkur með mismunandi hausum. Skrúfjárn gera okkur kleift að setja saman húsgögn, skipta um batterí í raftækjum, hengja upp hluti og svo margt fleira. Skrúfvélar eru svo lúxusútgáfan af skrúfjárnum og auðvelda þér áreynsluna sem fylgir því oft að skrúfa.
- Hamar: Það er svipuð saga með hamarinn og með skrúfjárnið. Hamarinn, sem er eitt af þeim verkfærum sem hafa fylgt manninum sem lengst, er ómissandi í ýmis verkefni og reddingar á borð við að hengja upp myndir, setja saman húsgögn og losa nagla.
- Aukahlutir: Verkfærin duga skammt ef þú átt ekki réttu aukahlutina með þeim. Verkfærakassinn er ekki heill fyrr en þú hefur sett í hann úrval af skrúfum, nöglum, borum, sandpappír og öðrum aukahlutum sem eru nauðsynlegir í verkefnin sem verkfærin þín ganga í.
Einfalt og þægilegt hjá BAUHAUS
Þú finnur réttu verkfærin fyrir þig í BAUHAUS ásamt öllum nauðsynlegum aukahlutum. Skoðaðu úrvalið í netversluninni, pantaðu vörurnar og sæktu í verslunina. Einnig ertu alltaf velkomin/nn í verslunina til okkar þar sem við hjálpum þér að finna réttu vörurnar fyrir þig.
FAQ
Er hægt að leigja verkfæri hjá BAUHAUS?
- Nei, því miður bjóðum við ekki upp á verkfæraleigu. Hins vegar er starfsfólk okkar meira hér til þess að hjálpa þér með valið á réttu verkfærunum fyrir þig, sama hversu stórt eða lítið það er, og er reiðubúið til þess að svara öllum þínum spurningum.
Hvað er besta verkfærið til að eiga?
- Það fer eftir þínum þörfum og þeim verkefnum sem þú ert að vinna í hvaða verkfæri er best fyrir þig að eiga. Ef þú átt engin verkfæri er gott að byrja á því að kaupa verkfærasett með öllum aðalverkfærunum sem er gott að eiga.