Síur 1
Sýna 6 vörur

Háþrýstidælur

Háþrýstidælan verður fljótt ómissandi þegar þú hefur eignast hana og þú getur notað hana í miklu meira en þú ímyndaðir þér. Háþrýstidælan nýtist til dæmis í að þrífa ýmsar vélar og verkfæri, fjarlægja þrjósk óhreinindi af veröndinni eða pallinum, stíflur í niðurföllum og margt fleira.

Hjá BAUHAUS stefnum við alltaf að því að bjóða upp á besta úrvalið innan þeirra vöruflokka sem við erum með. Þetta á líka við um háþrýstidælur, en hér að ofan finnurðu gott úrval af vörum frá Nilfisk, Kärcher og fleiri framleiðendum.

Hvað er háþrýstidæla?

Eins og nafnið gefur til kynna þá sprauta háþrýstidælur frá sér vatni með miklum krafti. Þetta gerir það að verkum að hægt er að nota þær í ýmiss konar þrif og hreinsanir. Flestum háþrýstidælum fylgja mismunandi stútar sem breyta formi vatnsstraumsins, t.d. gert hann breiðar svo hann nái yfir stærri fleti eða mjórri svo hann sé kraftmeiri og komist á svæði sem erfitt er að ná til.

Algengt er að nota háþrýstidælur í að þrífa sláttuvélar, bíla eða önnur farartæki af þeim ýmsu óhreinindum sem geta fests á þeim. Með réttu aukahlutunum er einnig hægt að nota dæluna í sérhæfðari verkefni, eins og að hreinsa niðurföll eða fjarlægja málningu af veggjum utandyra..

Hvernig virka háþrýstidælur?

Háþrýstidælur eru vatnsdælur sem tengjast við vatnskrana og dæla vatninu svo út á miklum hraða. Hraðinn býr til töluvert meiri þrýsting á vatnsbununni en ef hún væri að renna úr venjulegri garðslöngu, til dæmis. Í dælunni eru einnig ein eða fleiri síur sem sía frá óhreinindi úr vatninu sem gætu skert vatnsstrauminn eða yfirborðið sem þú ert að þrífa. Það er svo misjafnt eftir gerðum hvort háþrýstidælunni fylgi sápuhólf, mismunandi stútar, hversu löng vatnsslangan er og hversu mikill kraftur er í dælunni.

Fjölhæf hreinsunartæki

Þú finnur ekki aðeins háþrýstidælur í BAUHAUS heldur einnig alla nauðsynlega aukahluti fyrir þær.Hjá okkur finnurðu mismunandi gerðir stúta og bursta, framlengingar á stöngum og slöngum, hreinsiefni og fleira. Við eigum einnig gott úrval af ýmsum öðrum vélum fyrir mismunandi þrif, eins og ryksugur, djúphreinsivélar og margs konar aukahluti.

FAQ:

Í hvað get ég notað háþrýstidælu?

  • Þú getur notað háþrýstidæluna þína í ýmiss konar þrif og hún mun koma sér sérstaklega vel í flóknari og erfiðari þrif, eins og við að ná öllu grasinu undan sláttuvélinni eða við að ná illgresinu úr stéttinni. Einnig er hægt að nota háþrýstidælur til að þrífa bílinn, pallinn, gluggana og margt fleira.

Hvaða háþrýstidælu ætti ég að velja?

  • Við val á háþrýstidælu þarf að hafa nokkra hluti í huga: stærð, þrýstingur og kraftur, lengd slöngu og mögulegir aukahlutir. Það fer allt eftir því í hversu stór eða smá verkefni þú munt nota dæluna og hversu mikið pláss þú hefur til að geyma hana hversu stóra og kröftuga vél þú þarft.

Háþrýstidælur

Sýna 6 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form
 

Vöruupplýsingablað

Upplýsingaskjalið mun opnast í nýjum flipa. Viltu halda áfram?