-
StanleySporjárn 30mm Stanley Dynagrip Pro Fatmax5.195 kr.
-
KNIPEXVatnspíputöng 125 mm Knipex Cobra6.195 kr.
-
WERASkrúfjárn 5,5x125 mm Wera 3351.495 kr.
-
MatadorFramlenging 3/8" 125 mm Matador1.095 kr.
-
BAHCOSkrúfjárn Torx T25 125 mm Bahco2.095 kr.
-
WERASkrúfjárn VDE 5,5x125 mm Wera 160i1.595 kr.
-
StanleySporjárn 12mm Stanley Dynagrip Pro Fatmax3.195 kr.
-
MatadorFramlenging 1/2" 125 mm Matador1.095 kr.
-
StanleySporjárn 6mm Stanley Dynagrip Pro Fatmax3.195 kr.
-
MatadorFastur lykill opinn 6-7 mm Matador565 kr.
-
StanleySporjárn 8mm Stanley Dynagrip Pro Fatmax3.195 kr.
-
MatadorSkrall 1/4" Matador Z909.395 kr.
-
WISENTÞjöl þríhyrnd 125 mm H2 Wisent1.795 kr.
-
BAHCOSkrúfjárn 6,5x125 mm Bahco3.595 kr.
-
BAHCOSkrúfjárn 8x125 mm Bahco3.995 kr.
Handverkfæri
Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að hafa réttu verkfærin til að takast á við hvaða verkefni sem er, stór sem smá. Með fjölbreyttu úrvali okkar af hágæða verkfærum geturðu verið viss um að ná faglegum árangri. Hjá BAUHAUS finnur þú mikið úrval af handverkfærum frá þekktum og traustum vörumerkjum eins og Bosch, Dewalt, Ryobi og Stanley.
Mismunandi gerðir handverkfæra
Verkfæri skiptast í raun í tvo aðal flokka: handverkfæri og rafmagnsverkfæri. Handverkfæri, líkt og nafnið gefur til kynna, ganga ekki fyrir rafmagni og eru notuð með handafli. Klassísk handverkfæri eru meðal annars hamrar, skrúfjárn, meitlar, þjalir og sporjárn. Handverkfæri oft betri kosturinn, sérstaklega fyrir minni verkefni sem taka styttri tíma, eins og að hengja upp mynd. Handverkfæri henta einnig oft betur þegar vandvirkni og nákvæmni skipta miklu máli, þar sem þú hefur betri stjórn á verkfærinu.
Hvaða handverkfæri er gott að eiga?
- Skrúfjárn: Það segir sig svolítið sjálft að öll heimili verða að eiga að minnsta kosti eitt skrúfjárn, helst nokkur með mismunandi hausum. Skrúfjárn gera okkur kleift að setja saman húsgögn, skipta um batterí í raftækjum, hengja upp hluti og svo margt fleira.
- Hamar: Það er svipuð saga með hamarinn og með skrúfjárnið. Hamarinn, sem er eitt af þeim verkfærum sem hafa fylgt manninum sem lengst, er ómissandi í ýmis verkefni og reddingar á borð við að hengja upp myndir, setja saman húsgögn og losa nagla.
- Aukahlutir: Verkfærin duga skammt ef þú átt ekki réttu aukahlutina með þeim. Verkfærakassinn er ekki heill fyrr en þú hefur sett í hann úrval af skrúfum, nöglum, borum, sandpappír og öðrum aukahlutum sem eru nauðsynlegir í verkefnin sem verkfærin þín ganga í.
En hvað með rafmagnsverkfæri?
Rafmagnsverkfæri eru tæki á borð við bor- og skrúfvélar, naglabyssur, fræsara, hersluvélar og sagir. Rafmagnsverkfæri eru þægilegur kostur sem þau auðvelda þér vinnuna til muna og draga úr áreynslu við notkun þeirra. Rafmagnsverkfæri gagnast vel í stærri verkefni eins og að hengja upp hillur, smíða sjónvarpsskenk eða taka baðherbergið í gegn. Þau koma sér einnig einstaklega vel þegar maður þarf að setja saman húsgögn eða taka þau í sundur, þar sem þau gera þér kleift að herða alla hluta betur og svo leysa þá aftur án óþarflega mikils erfiðis.
FAQ
Hvað eru handverkfæri?
- Handverkfæri, líkt og nafnið gefur til kynna, ganga ekki fyrir rafmagni og eru notuð með handafli. Klassísk handverkfæri eru meðal annars hamrar, skrúfjárn, meitlar, þjalir og sporjárn.
Hvaða handverkfæri þarf ég?
- Ef þú átt engin handverkfæri er gott að byrja á þeim klassískustu: skrúfjárn og hamar. Með þessum tveimur verkfærum geturðu unnið ýmiss konar einföld verkefni. Gættu þess að eiga annað hvort mismunandi gerðir af skrúfjárnum eða skrúfjárn sem þú getur skipt um hausinn á, svo það gagnist þér í mismunandi verkefni.