Vegna mikils magns af pöntunum má búast við töf á afhendingu pantana.
Síur
Sýna 265 vörur
  1. CRAFTOMAT
    Sponsbor Ø20x90 mm Craftomat
    3.995 kr.
  2. CRAFTOMAT
    Stálbor Ø14x160 mm Craftomat HHS-R
    2.995 kr.
  3. BOSCH
    Steinbor SDS+ 6,5x215 mm Bosch
    2.295 kr.
  4. RYOBI
    Borasett MÚR Ryobi RAK05MD
    1.095 kr.
  5. BOSCH PROFESSIONAL
    Flísabor Ø10x90 mm Bosch HEX-9
    3.195 kr.
  6. BOSCH
    Steinbor SDS+ Ø5x165 mm Bosch
    1.395 kr.
  7. DEWALT
    Bor HSS Extreme22,5x57mm 2stk DeWALT
    465 kr.
  8. DEWALT
    Borasett 1-12 mm 23 hlutir DeWALT
    7.995 kr.
  9. CRAFTOMAT
    Steinbor Ø6x150 mm Craftomat
    1.495 kr.
  10. BOSCH
    Bor SDS+7x 16x262mm Bosch
    4.895 kr.
  11. BOSCH PROFESSIONAL
    Steinbor SDS-Max Ø25x520 mm Bosch
    7.195 kr.
  12. CRAFTOMAT
    Flísabor Ø27 mm Craftomat
    3.395 kr.
  13. CRAFTOMAT
    Steinbor Ø4x75 mm Craftomat
    895 kr.
  14. MAKITA
    Borasett SDS 13stk Makita
    12.495 kr.
  15. CRAFTOMAT
    Sponsbor Ø28 mm Craftomat
    5.295 kr.
  16. PROXXON
    Borar 3stk HHS Tungsten 0.8mm Proxxon
    1.395 kr.
  17. RYOBI
    Borasett Ryobi RAR401-7
    995 kr.
  18. CRAFTOMAT
    Trébor Ø4x75 mm Craftomat
    695 kr.
  19. CRAFTOMAT
    Glerbor Ø8x83 mm Craftomat HSS-Bimetal
    1.995 kr.
  20. CRAFTOMAT
    Flísabor Ø60 mm Craftomat
    7.295 kr.
  21. BOSCH
    Steinbor SDS+ 12x165 mm Bosch
    2.195 kr.
  22. CRAFTOMAT
    Flísabor Ø10 mm Craftomat
    2.995 kr.
  23. BOSCH
    Steinbor SDS+ Ø8x215 mm Bosch
    1.995 kr.
  24. CRAFTOMAT
    Snígilbor Ø12x450 mm Craftomat
    4.295 kr.
  25. BOSCH PROFESSIONAL
    Steinbor Ø6x100 mm Bosch Professional
    895 kr.
  26. METABO
    Borasett 19stk Metabo HSS-R
    2.995 kr.
  27. CRAFTOMAT
    Sponsbor Ø30 mm Craftomat
    5.295 kr.
  28. DEWALT
    Borasett 25stk með hita
    6.595 kr.
  29. CRAFTOMAT
    Steinbor SDS+ Ø10x160 mm Craftomat
    1.995 kr.
  30. BOSCH
    Steinbor SDS+ 14x265 mm Bosch
    3.695 kr.
  31. BOSCH
    Steinbor SDS+ 6x215 mm Bosch
    2.195 kr.
  32. PROXXON
    Borar 3stk HHS Tungsten 1mm Proxxon
    1.395 kr.
  33. CRAFTOMAT
    Flísabor Ø74 mm Craftomat
    8.495 kr.
  34. CRAFTOMAT
    Steinbor Ø3x70 mm Craftomat
    795 kr.
  35. CRAFTOMAT
    Glerbor Ø5x70 mm Craftomat HSS-Bimetal
    1.495 kr.

Borar

Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að hafa rétt verkfæri í starfið. Þess vegna bjóðum við upp á breitt úrval af borum fyrir allar þínar bor-þarfir. Borarnir okkar eru hannaðir með endingu og nákvæmni í huga, svo að viðskiptavinir okkar fái sem mest úr kaupunum sínum.

Borarnir okkar koma í ýmsum stærðum og gerðum frá gæðamerkjum eins og DeWalt, Ryobi og Makita. Frá tré til málms til múrverks, við eigum rétta borinn fyrir hvert verk.

Áttu enn eftir að kaupa þér borvél? Kíktu á úrvalið okkar hér.

Hvernig bora á ég að kaupa?

Er þetta ekki bara allt sama dótið? Gríp ég ekki bara einn klassískan bor og smelli honum í borvélina? Það virðist kannski frekar einfalt að velja sér bor, en það eru nokkrir hlutir sem þú þarft að hafa í huga áður en þú rýkur út að kaupa þér fullt af borum. Fyrst skaltu hafa á hreinu í hvers konar efni þú ert að fara að bora í og hvers vegna. Til eru mismunandi gerðir bora fyrir mismunandi efni, en þær algengustu eru:

  • Trébor: Stálbor sem er notaður til að bora í tré. Er með oddi á endanum sem stuðlar að nákvæmnari borun.
  • Spaðabor: Flatur stálbor og mjóum oddi. Notaður til þess að bora stór göt í tré.
  • Klassískur bor: Snúningsbor úr stáli sem hentar til þess að bora í tré, plast, múr eða málm.
  • Steinbor: Karbíthúðaður snúningsbor sem er notaður til þess að bora í múr og steypu.

Þar að auki þarftu að hafa í huga stærð og breidd borsins, en það fer eftir því hversu stór göt þú ætlar að bora og í hvaða tilgangi, hversu stóran bor þú þarft. Og að lokum þarftu auðvitað ganga úr skugga um að borarnir sem þú kaupir gangi með borvélinni þinni.

Stakir borar eða borasett?

Borar fást bæði stakir og í settum . Ef þú átt enga eða fáa bora er betra að kaupa sett með góðu úrvali. Ef þú átt nú þegar margar gerðir bora geturðu keypt þá staka. Við eigum einnig sett sem innihalda bæði bora og skrúfbita, ef þú notar borvélina sem skrúfvél líka.

Ef þú ert í einhverjum vanda með valið á réttu borunum, ekki hika við að hafa samband við okkur eða einfaldlega kíkja í verslunina til okkar. Við erum hér til að hjálpa þér!

FAQ:

Hver er munurinn á mismunandi gerðum af borum?

  • Gerð bora fer aðallega eftir því í hvers konar efni þeir henta. Tréborar eru notaðir í tré, stálborar í stál, og svo framvegis. Borar koma svo einnig í mismunandi stærðum og lögunum innan þessa flokka, allt eftir því hversu stór göt þeir geta búið til, hvernig áferð þeir skilja eftir sig og fleira.

Hvernig veit ég hvaða bor ég á að nota?

  • Áður en þú velur eða kaupir þér bor skaltu hafa á hreinu í hvers konar efni þú ert að fara að bora, í hvaða tilgangi og hversu stór götin eiga að vera. Hér að ofan geturðu fundið upplýsingar um mismunandi gerðir bora, og svo er starfsfólk BAUHAUS alltaf reiðubúið til þess að aðstoða þig.

Borar

Sýna 265 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form