-
NORDLUXLampi LED 60W Oakland 150 cm12.595 kr.
-
NORDLUXLampi LED 30W Oakland 155cm8.395 kr.
-
TWEEN LIGHTLjósaborði LED RGB Tween Light 5 m9.995 kr.
-
EGLOLoftljós LED dimmanlegt Access ZubietA-A 60x60 cm39.995 kr.
-
EGLOHangandi ljós LED Lasana 900x1100 mm21.995 kr.
-
EGLOHangandi ljós LED 30W Pellaro 110cm67.995 kr.
-
GLOBOKúpull LED 30W Globo Magnifique dimmanlegt Ø50cm23.095 kr.
-
GLOBOKúpull LED Connor Smart Light með fjarstýringu Ø50cm Globo21.595 kr.
-
GLOBOKúpull LED 30W Globo Optima Ø46cm18.195 kr.
Inniljós
Velkomin í heim ljósanna, þar sem hvert herbergi hefur möguleika á að breytast í töfrandi og notalegan stað. Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að velja rétta ljósabúnaðinn og perurnar til að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu á heimilinu. Þess vegna bjóðum við upp á breitt úrval af ljósum í ýmsum stærðum og gerðum sem gera þér kleift að aðlaga lýsingu heimilisins að þínum þörfum.
Birtan inni á heimilinu getur skipt sköpum þegar það kemur að því að skapa stemmingu og hlúa að almennri vellíðan heimilisfólksins. Að velja rétta lýsingu fyrir heimilið snýst einnig um jafnvægið á milli virkni og stíls. Ljósabúnaðurinn verður að virka fyrir þig og þínar þarfir, en á sama tíma er mikilvægt að hann samræmist þínum stíl og falli vel inn í rýmið.
Loftljós sem brennidepill rýmisins
Ef þú ert að leita að praktískum ljósum sem vekja athygli, þá eru loftljós góður staður til að byrja á. Loftljós eru fullkomin til þess að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu í stofunni, borðstofunni eða svefnherberginu. Eftirtektarvert loftljós verður að brennidepli rýmisins, svo það er gott að vanda valið! Úrvalið okkar af loftljósum inniheldur m.a. hengiljós, innfelld og yfirborðslöguð ljós og mismunandi gerðir af kösturum.
Notaleg en praktísk veggljós
Veggljós eru frábær valkostur fyrir þau sem vilja mildari lýsingu í rýmið, og eru m.a. fullkomin fyrir ganga og baðherbergi. Þú getur valið úr mörgum gerðum veggljós, þar á meðal vegglampar, kastarar, hreyfanleg ljós og fleiri. Veggljós geta annaðhvort snúið upp eða niður, eða dreift birtunni jafnt yfir allt rýmið eða vegginn sem þau eru fest við, og eru annaðhvort í fastri stöðu eða hreyfanleg og þannig hægt að aðlaga þau að rýminu að hverju sinni.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Ekki vera hrædd við að vera skapandi í ljósavalinu, þú getur bætt miklum persónuleika við svæðið með réttu ljósunum og bætt vellíðan þína í leiðinni. Skoðaðu úrvalið af ljósum í netversluninni okkar eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið.
FAQ:
Hvaða ljós gefa bestu birtuna innandyra?
- Þegar þú velur útiljós skaltu aðallega hafa í huga tilgang og staðsetningu ljósanna. Til að tryggja öryggi og sýnileika skaltu velja bjarta og skarpa lýsingu, jafnvel með hreyfiskynjara. Fyrir skreytingar og almenna stemmingu skaltu velja mjúka og dimmanlega lýsingu. Öll útiljósin okkar eru veðurþolin og úr endingargóðu efni svo þau eru vel í stakk búin fyrir íslenska veðráttu.
Hversu mörg lúmen ættu að vera innandyra?
- Það er góð þumalputtaregla að setustofa eða svefnherbergi hafi um það bil 10-20 lúmen á hverja þúsund fersentimetra. Baðherbergi og eldhús þurfa sterkari lýsingu, eða um 70-80 lúmen á hverja þúsund fersentimetra.