12 mánaða skilaréttur BAUHAUS Lesa nánar.
Síur
Sýna 35 vörur
  1. PHILIPS HUE
    Framlenging á Ledborða Plus 1m Philips Hue WCA
    4.895 kr.
  2. PHILIPS HUE
    Ljósborði LED RGB 38W Philips Hue 5m
    39.995 kr.
  3. STARLUX
    Led ljósslanga Tweenlight Neon hvít lengd5m
    2.495 kr.
  4. LEDVANCE
    Ledborði 8,5W Ledvance Smart+ RGBW 2m
    7.795 kr.
  5. TWEEN LIGHT
    Ljósaborði LED RGB Tween Light 5 m
    9.995 kr.
  6. PHILIPS HUE
    Ledborði 2m Gradient startsett Philips Hue WCA
    25.995 kr.
  7. PAULMANN
    Állisti Paulmann U-section diffusor ál 2m
    5.295 kr.
  8. PAULMANN
    Ledborði 5m Simpled RGB 20w
    7.395 kr.
  9. Wiz
    Ljósaborðasett Wiz 2 m
    8.995 kr.
  10. PHILIPS HUE
    Framlenging á Ledborða Gradient 1m Philips Hue WCA
    10.495 kr.
  11. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann RGB 5m 12V
    9.495 kr.
  12. Wiz
    Ljósaborði LED Wiz 1 m
    2.995 kr.
  13. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann RGB 5m með húðun hvítt
    6.995 kr.
  14. EGLO
    Ljósaborði LED 2700-6500K Eglo Stripe.Z 3 m
    15.995 kr.
  15. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann 10m með húðun hvítt 3000lm
    10.495 kr.
  16. PAULMANN
    Ledborði 7,5m Simpled RGB 26w
    12.895 kr.
  17. EGLO
    Ljósaborði LED RGB 2700-6500K Eglo Stripe.Z 5 m
    15.995 kr.
  18. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann daylight 10m með húðun hvítt
    12.895 kr.
  19. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann RGB 7,5m 12V
    14.695 kr.
  20. EGLO
    Ljósaborði LED RGBIC dimmanlegur 3 m
    12.995 kr.
  21. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann 3m dimmer/switch
    14.695 kr.
  22. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann 5m dimmer/switch
    19.995 kr.
  23. PAULMANN
    Fjarstýring fyrir snjalllýsingu Paulman Smart Home
    7.000 kr.
  24. EGLO
    Ljósaborði LED RGB 2700-6500K Eglo Stripe.Z 8 m
    24.895 kr.
  25. EGLO
    Framlenging á ljósaborða LED Connect.Z Stripe-Z 2 m
    6.995 kr.
  26. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann RGB 1,5m
    5.995 kr.
  27. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann RGB 5m dimmer/switch
    19.995 kr.
  28. PAULMANN
    Snjallstýring Smart+ Maxled 144W 24V Paulmann
    7.800 kr.
  29. EGLO
    Ljósaborði LED RGBIC dimmanlegur 5 m
    16.995 kr.
  30. PAULMANN
    Snjallstýring Smart+ Maxled RGBW 144W 24V Paulmann
    8.900 kr.
  31. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann 3m dimmer/switch
    14.695 kr.
  32. PHILIPS HUE
    Ledborði Plus startsett með straumbreyti Philips Hue WCA
    14.995 kr.
  33. PAULMANN
    Ljósborðasett SimpLED Paulmann RGB 10m 12V
    18.895 kr.
  34. PAULMANN
    Ledborði 10m Simpled RGB 28w
    14.695 kr.
  35. PAULMANN
    Ledborði RGB 22W Simpled Cob Paulmann 3m
    13.695 kr.

LED borðar

Ljósið loftin fyllir, og loftin verða blá. Góð lýsing er hornsteinn notalegs heimilis og hefur mikil áhrif á skap okkar og almenna vellíðan. LED borðar eru snjöll og hagnýt lýsingarlausn sem verður vinsælli með hverju árinu þar sem þeir eru sveigjanlegir, fjölhæfir og orkusparandi. Þessar nýstárlegu ljós eru einstaklega auðveld í uppsetningu og það er hægt að setja þau upp nánast hvar sem er. LED borðar eru bæði praktísk og fagurfræðileg viðbót við heimilið, sama hvar þeir eru staðsettir.

Hér að neðan munum við fara yfir kosti LED borða og hvernig þeir geta veitt heimilinu þínu góða uppfærslu. Ef þú ert að leita að öðrum lýsingarlausnum en LED borðum geturðu skoðað ljósaúrvalið okkar hér.

Helstu kostir LED borða

Helsti kostur LED ljósa yfir höfuð er orkunýting þeirra.LED ljós eru orkusparandi og umhverfisvænn valkostur sem mun hjálpa þér að minnka kolefnisfótsporið þitt og rafmagnsreikninginn þinn. LED perur nota allt að 80% minni orku en hefðbundnar ljósaperur og endast mun lengur. Auk þess koma þær í ýmsum litum og gerðum, svo þú getur fundið hina fullkomnu LED peru sem passar við þinn stíl. Þar að auki eru LED borðar líka ótrúlega öruggir þar sem þeir mynda minni hita samanborið við hefðbundnar ljósaperur, draga úr slysahættu og eru því hentugri til notkunar á afgirta staði eða staði sem er erfitt að ná til.

Einföld uppsetning og þægindi með LED borðum

LED borðar eru einstaklega einfaldir í uppsetningu, þar sem langflestir þeirra eru með sterka og endingargóða límrönd aftan á þeim. Límröndin heldur borðanum á sínum stað í langan tíma, en er einnig fjölnota og því er ekkert mál að færa LED borðann á milli staða. Ef límið aftan á borðanum versnar með tímanum geturðu alltaf keypt tvíhliða límband í BAUHAUS og fest aftan á.

Stýrðu hitastig ljóssins með LED ljósum

LED borða er oftar en ekki hægt að bæði dimma ásamt því að geta breyta um lit og hitastig ljóssins. LED borðar með fjölbreyttu úrvali lita og/eða hitastigs eru einstaklega hentugir þar sem þú getur alltaf aðlagað lýsinguna að rýminu og stemmingunni að hverju sinni. Hlýhvítar perur henta til dæmis vel til að skapa notalegt og vinalegt andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur þar sem þú þarft bjartara ljós sem gefur þér þrótt. Til dæmis er betra að hafa hlýrri perur í svefnherberginu og stofunni, en í eldhúsinu og á heimaskrifstofunni nærðu betri einbeitingu með skarpari lýsingu.

Snjallar lausnir fyrir heimilið með LED borðum

Einn helsti kostur LED borða er getan til að stjórna þeim annað hvort með fjarstýringu eða appi í símanum, og jafnvel raddstýringu í gegnum tækni sem býður upp á slíkt. Þannig geturðu auðveldlega kveikt og slökkt á ljósunum, breytt litum og birtu- og hitastigi ljóssins, sett upp samþætt ljósakerfi í öllu húsinu og stillt hvenær ljósin slokkna og kvikna. Auk snjallra LED borða eigum við einnig úrval að snjall ljósaperum.

Leyfðu ímyndunaraflinu að ráða för með LED borðum

LED borðar eru einnig vinsælir fyrir þann eiginleika að hægt er að sveigja þá og mynda alls konar munstur, stafi eða annað á veggjum heimilisins. Þannig geturðu hleypt listamanninum í þér fram og mótað þína eigin ljósaskúlptúra.

Þegar það kemur að því að finna rétta staðinn fyrir LED borða þá er í raun ekkert rangt svar. Þú getur til dæmis sett LED borða með fram stiganum svo að þrepin lýsist betur upp, eða fyrir aftan sjónvarpið svo að það verði meiri stemmingslýsing á bíókvöldum. Þú getur notað LED borða í kringum snyrtispegilinn þinn svo þú sért með góða og jafna birtu þegar þú ert að gera þig til, eða undir eldhússkápunum svo að þú sért alltaf með góða lýsingu við eldamennskuna og því sem henni fylgir. Þú getur einnig nýtt þér fjölbreytileika LED borðana til þess að skapa mismunandi stemmingu fyrir mismunandi tilefni, eins og litríka lýsingu fyrir partý eða bjarta og stöðuga birtu þegar þú þarft að vinna heima.

Hægt er að fá LED borða til að nota innandyra og utandyra, og sumar gerðir virka jafnvel á báðum stöðum. Margir LED borðar þola einnig raka og hlýju og má þá nota þá inni á baðherbergjum. Lestu þig vel til um vöruna áður en þú ákveður að kaupa hana, eða fáðu fagmannlega ráðgjöf hjá starfsfólki BAUHAUS í gegnum síma, tölvupóst eða í versluninni okkar.

FAQ

Get ég klippt LED borða niður í smærri hluta?

  • Já, flesta LED borða má klippa niður í styttri lengd. Þú finnur merkta hluta meðfram borðanum, venjulega eftir þriðja eða fjórða ljósdíóða, þar sem hægt er að klippa án þess að skemma neitt. Passaðu þig að skoða leiðbeiningar framleiðanda vel áður en þú klippir.

Nota LED borðar mikið rafmagn?

  • Helsti kostur LED ljósa yfir höfuð er orkunýting þeirra. LED ljós eru orkusparandi og umhverfisvænn valkostur sem mun hjálpa þér að minnka kolefnisfótsporið þitt og rafmagnsreikninginn þinn. LED perur nota allt að 80% minni orku en hefðbundnar ljósaperur og endast mun lengur.

Ljósborðar

Sýna 35 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form