-
GROHESturtutæki Grohe Precision Start Króm46.895 kr. -
GROHESturtutæki Grohe Precision Flow króm24.895 kr. -
GROHEEldhústæk Grohe Start Króm Lág Sveifla23.895 kr. -
PRESSALITSalernisseta Hæglokandi Saniscan Basis Norden Hvít14.995 kr. -
CAMARGUEHandlaugartæki Camargue Erie króm4.195 kr. -
HANSGROHEHandsturta með veggfestingu Hansgrohe Crometta Varuo15.295 kr. -
GROHESturtusett Vitalio Start Ø110mm Grohe króm14.895 kr. -
HOUSESalernisrúlluhaldari House Lucca matt svartur3.095 kr. -
RivaSpegilskápur 42cm Bath Deluxe Camden Hvítur12.490 kr. -
RivaBaðinnrétting með handlaug 90 cm Camden hnota64.990 kr. -
RivaSpeglaskápur 90cm Camden matt hvítur22.490 kr. -
NortiqHandlaugarskápur 40cm Nortiq Milano Hvítt19.995 kr. -
HANSGROHEBaðtæki Hansgrohe Ecostat Fine CC27.195 kr. -
Sturtuklefi 80x80 cm Granvik184.995 kr. -
Sturtuklefi 90x90 cm Granvik169.980 kr. -
CAMARGUEÞéttilisti fyrir sturtugler 6-8mm 1.5x100 cm3.995 kr. -
GROHEHreinsiefni fyrir baðherbergi 500 ml Grohe GROHclean5.395 kr. -
LAUFENSalerni S-lás Laufen Rigo55.295 kr. -
CAMARGUEHandlaugartæki Camargue Samsø Dueodde króm16.779 kr. -
CAMARGUEEldhústæki Camargue Palau matt svart16.495 kr. -
GROHEEldhústæki Grohe Start supersteel U29.995 kr.Tilboð gildir til 4 febrúarÞú sparar: 10.000 kr. Almennt verð: 39.995 kr. -
GROHEEldhústæki Grohe QuickFix burstað stál59.795 kr. -
Sturtusett með blöndunartæki Hoover svart39.995 kr. -
HOUSESalernisrúlluhaldari House Rio matt svartur3.595 kr. -
GROHEEldhústæki útdraganlegt Grohe Essence burstað messing99.695 kr. -
GROHESturtusett Grohe Euphoria 310 Brushed cool sunrise296.495 kr. -
GROHESturtubarki 150 cm Grohe VitalioFlex3.895 kr. -
RivaBaðinnrétting með handlaug 60 cm Camden hnota39.990 kr. -
GeberitInnbyggður salerniskassi 82cm Geberit Duofix Omega80.495 kr. -
AdoraSturtusett Ø200mm haus Infigo L Adora Króm52.595 kr. -
CAMARGUESturtutæki Camargue Samsø Sandvig22.029 kr. -
CAMARGUEHandsturta og veggvesting Camargue Dueodde11.529 kr. -
HOUSESalernisrúlluhaldari House Rio antík messing4.195 kr. -
LAUFENSalernisseta Hæglokandi Laufen Kompas Hvít15.395 kr. -
HANSGROHESturtuslanga 200cm Hansgrohe Isiflex króm7.795 kr.
Baðherbergið
Baðherbergið er eitt mikilvægasta herbergi heimilisins. Þar verða hversdagslegar venjur að helgisiðum sjálfsumönnunar þar sem þú getur skilið heiminn eftir, jafnvel bara í stutta stund, og einbeitt þér að þinni vellíðan. Dagarnir okkar hefjast og enda inni á baði. Þar búum við okkur undir áskoranir dagsins og slökum svo á þegar dagurinn er liðinn.
Baðherbergið ætti ekki aðeins að endurspegla þinn stíl heldur ætti það einnig að gefa frá sér velkomna og notalega hlýju sem stuðlar að slökun og ró.
Með réttu baðinnréttingunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt. Oftar en ekki eru það innréttingarnar sem fókusinn fer á inni á baðherbergjum, svo það er um að gera að velja rétt.
Á þessari síðu finnurðu gott úrval af innréttingum, speglum, blöndunartækjum og alls kyns baðherbergisaukahlutum af öllum stærðum og gerðum.
Skoðaðu úrvalið í BAUHAUS og byrjaðu að gera baðherbergið að rými sem þú elskar.
Settu saman draumabaðherbergið þitt
Dreymir þig um nýtt og notalegt baðherbergi? Fallegt baðherbergi er staður þar sem þú getur tekið þér verðskuldað frí frá annasömu hversdagslífi og endurnært þig. Baðherbergið er staður fyrir dekur, endurnæringu, afslöppun og allt þar á milli.
Fjárfesting í góðu baðherbergi gerir meira en að bæta vellíðan heimilisfólksins heldur eykur það líka verðmæti heimilisins verulega, óháð stærð þess. Þar af leiðandi er baðherbergið oft efst á lista yfir endurbætur á heimilinu.
Baðherbergisframkvæmdir eru oft ógnvænlegar og virðast vera óyfirstíganlegt verkefni, en við höldum því fram að það séu einnig þær breytingar sem munu hafa í för með sér mestu aukninguna á lífsgæðum.
Veldu réttu lausnirnar
Þegar kemur að endurbótum á baðherbergjum þarf að huga að mörgum þáttum. Er baðherbergið í litlu rými og þér finnst þú varla komast fyrir þar inni? Hjá BAUHAUS finnurðu ýmsar lausnir sem leyfa þér að nýta plássið sem best, t.d. með vegghengdum handklæðaofnum, stórum speglum sem láta rýmið virðast stærra og innréttingum með miklu og vel skipulögðu skápaplássi. Er mikil traffík inni á baðherberginu og erfitt að halda því skipulegu og snyrtilegu? Þú finnur alls kyns skipulagslausnir hjá okkur og gott úrval baðherbergisskápa sem henta þér og þínum.
Sérfræðingar BAUHAUS söfnuðu saman sínum bestu ráðum um allt sem tengist baðherbergjum sem geta hjálpað þér í þessu ferli:
- Byrjaðu á því að ákveða heildarstíl og litaval: Hjá BAUHAUS finnurðu gott úrval af öllu sem þarf fyrir baðherbergið, hvort sem það eru blöndunartæki eða handklæðahankar. Því er mikilvægt að hafa skýra sýn á því hver þú vilt að lokaniðurstaðan verði strax í byrjun, svo þú vitir hverju þú ert að leitast eftir.
- Virkni og þægindi skipta miklu máli: Gott er að velja lausnir sem eru hagnýtar og auðveldar í notkun. Innréttingin við handlaugina þarf því ekki bara að vera falleg – hún þarf líka að passa við þinn lífsstíl og þarfir.
- Hugaðu vel að plássinu: Það er alltaf gott að velja lagnir, húsgögn og aðra aukahluti sem henta stærð og lögun herbergisins. Þú getur auðveldlega heillast af öllum mismunandi valmöguleikum, en það er mikilvægt að nýta rýmið skynsamlega, sérstaklega ef það er í smærra lagi.
- Lýsing og loftræsting skipta sköpum: Góð lýsing og góð loftræsting eru nauðsynlegir eiginleikar notalegs baðherbergis. Lýsingin skiptir máli bæði fyrir virkni og vellíðan, á meðan loftræstingin er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir rakaskemmdir og halda loftinu góðu inni í rýminu.
Ef þú hefur þessar ráðleggingar í huga áður en þú byrjar að endurnýja eða uppfæra baðherbergið þitt, þá ertu á góðri leið! Mundu að ef þig vantar aðstoð þá er þér alltaf velkomið að heimsækja okkur í BAUHAUS þar sem þú færð fagmannleg ráð og frábæra aðstoð.
Allt fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS
Til að endurnýja baðherbergið þarf oft mikið af vörum, allt frá minnstu smáatriðum eins og nýrri klósettsetu til stærri hluta eins og nýs sturtuklefa. Hjá BAUHAUS höfum við allt sem þú þarft til að gera upp eða bæta baðherbergið þitt. Hjá okkur má til dæmis finna:
- Handlaugar
- Klósettsetur
- Sturtusett
- Handklæðaofna
- Blöndunartæki
- Spegla
- Baðinnréttingar
Við eigum einnig gott úrval af öðrum vörum sem eru algjörlega ómissandi fyrir baðherbergið. Skoðaðu til dæmis flísarnar okkar sem mynda grunninn fyrir bæði gólf og veggi eða úrvalið af inniljósum sem henta bæði fyrir baðherbergi og önnur rými.
FAQ:
Getur þú gert baðherbergið upp sjálf/ur?
- Já, þú getur alveg ráðist í endurnýjun baðherbergis sjálf/ur ef þér finnst slíkt verkefni spennandi og skemmtileg. Þetta krefst vandlegrar skipulagningar og auga fyrir stíl og hönnun. Svo skemmir ekki fyrir ef þú átt góða að sem nenna að hjálpa þér! BAUHAUS útvegar þér öll nauðsynleg efni og verkfæri fyrir framkvæmdirnar ásamt fagmannlegum ráðleggingum.
Hvað kostar að gera upp baðherbergi?
- Kostnaðurinn við að gera upp baðherbergi er breytilegur eftir þáttum eins og stærð, gæðum efna og hönnunar. Hjá BAUHAUS bjóðum við upp á mikið úrval af efnivið, innréttingum og aukahlutum á mismunandi verði, svo öll ættu að geta sett saman sitt draumabaðherbergi.