-
DEBELBaðmotta BMA Cozy 50x80cm svört3.995 kr. -
SMEDBOSnagi einfaldur Beslagsboden burstað stál1.400 kr. -
VENUSKlósettbursti Venus Ivo svartur5.695 kr. -
WENKOSalernisrúlluhaldari með hillu Wenko7.295 kr. -
By VenøSnagi fyrir hljóðvistarplötu 2stk1.100 kr. -
PAXBaðvifta app stýring Ø100mm PAX Calima Fresh69.295 kr. -
GUSTAVSBERGSalernisseta hæglokandi Gustavsberg Nautic 9M26-SC/QR19.995 kr. -
GUSTAVSBERGSalerni P-lás án skolbrúnar Gustavsberg Nautic 1510L án setu68.395 kr. -
RivaBaðinnrétting með handlaug 90 cm Camden Integrated eik64.990 kr. -
RivaHáskápur Integrated 2 hurðir hvítur Camden39.990 kr. -
CAMARGUESturtusett með blöndunartæki Camargue svart35.695 kr. -
GROHEEldhústæki útdraganlegt Grohe Feel Supersteel64.995 kr. -
IFÖSalernisseta hæglokandi Spira hvít19.995 kr. -
FRESHBaðvifta Ø100 mm F100 með tíma- og rakastilli27.695 kr. -
LAUFENVegghengt salerni án skolbrúnar Laufen Pro-n m/setu77.995 kr. -
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø39,5 cm matt svart 118 cm Skärgård69.795 kr. -
CAMARGUEBaðkar frístandandi Skaraborg Duo Clean 170x100x65 cm174.595 kr. -
GROHEEldhústæki Grohe Start Króm U-sveifla34.495 kr. -
CAMARGUEBaðkar frístandandi Visby hvítt 160x75 cm Camargue178.795 kr. -
CAMARGUESalernisseta hæglokandi Norden Camargue hvít7.295 kr. -
CAMARGUEBaðkar frístandandi Skaraborg Combi hægri 150x85x63 cm104.495 kr. -
GROHEInnbyggður salerniskassi 113cm Rapid SLX Grohe54.995 kr. -
CAMARGUEHandlaugartæki Camargue Samsø Nexø Matt svart19.995 kr.Tilboð gildir til 24 desemberÞú sparar: 7.900 kr. Almennt verð: 27.895 kr. -
CAMARGUEEldhústæki útdraganlegt Camargue Bora króm18.995 kr. -
GROHEHandlaugartæki Grohe Wave S krómað með botnventil19.995 kr. -
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø39,5 cm króm 118 cm Skärgård69.795 kr. -
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø25 cm burstað messing 118 cm Skärgård69.695 kr. -
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø25 cm matt svart 118 cm Skärgård55.195 kr. -
CAMARGUEÞéttilisti fyrir sturtugler 6mm 2x100 cm3.995 kr. -
CAMARGUEHandlaugartæki Camargue Samsø Nexø Króm19.995 kr.Tilboð gildir til 24 desemberÞú sparar: 5.600 kr. Almennt verð: 25.595 kr. -
CAMARGUESturtusett Korsbæk Ø15 cm messing Skärgård62.995 kr. -
FRESHBaðvifta Ø100 mm F100 með tímastillir19.295 kr. -
CAMARGUEBaðþil glært 150x80 cm satín prófíll Skärgård51.395 kr. -
AdoraHandlaugartæki með botnventil Adora Imperia króm25.295 kr. -
CAMARGUEBaðkar frístandandi Camargue Siljan 150x75 cm hvítt201.895 kr.
Baðherbergið
Baðherbergið er eitt mikilvægasta herbergi heimilisins. Þar verða hversdagslegar venjur að helgisiðum sjálfsumönnunar þar sem þú getur skilið heiminn eftir, jafnvel bara í stutta stund, og einbeitt þér að þinni vellíðan. Dagarnir okkar hefjast og enda inni á baði. Þar búum við okkur undir áskoranir dagsins og slökum svo á þegar dagurinn er liðinn.
Baðherbergið ætti ekki aðeins að endurspegla þinn stíl heldur ætti það einnig að gefa frá sér velkomna og notalega hlýju sem stuðlar að slökun og ró.
Með réttu baðinnréttingunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt. Oftar en ekki eru það innréttingarnar sem fókusinn fer á inni á baðherbergjum, svo það er um að gera að velja rétt.
Á þessari síðu finnurðu gott úrval af innréttingum, speglum, blöndunartækjum og alls kyns baðherbergisaukahlutum af öllum stærðum og gerðum.
Skoðaðu úrvalið í BAUHAUS og byrjaðu að gera baðherbergið að rými sem þú elskar.
Settu saman draumabaðherbergið þitt
Dreymir þig um nýtt og notalegt baðherbergi? Fallegt baðherbergi er staður þar sem þú getur tekið þér verðskuldað frí frá annasömu hversdagslífi og endurnært þig. Baðherbergið er staður fyrir dekur, endurnæringu, afslöppun og allt þar á milli.
Fjárfesting í góðu baðherbergi gerir meira en að bæta vellíðan heimilisfólksins heldur eykur það líka verðmæti heimilisins verulega, óháð stærð þess. Þar af leiðandi er baðherbergið oft efst á lista yfir endurbætur á heimilinu.
Baðherbergisframkvæmdir eru oft ógnvænlegar og virðast vera óyfirstíganlegt verkefni, en við höldum því fram að það séu einnig þær breytingar sem munu hafa í för með sér mestu aukninguna á lífsgæðum.
Veldu réttu lausnirnar
Þegar kemur að endurbótum á baðherbergjum þarf að huga að mörgum þáttum. Er baðherbergið í litlu rými og þér finnst þú varla komast fyrir þar inni? Hjá BAUHAUS finnurðu ýmsar lausnir sem leyfa þér að nýta plássið sem best, t.d. með vegghengdum handklæðaofnum, stórum speglum sem láta rýmið virðast stærra og innréttingum með miklu og vel skipulögðu skápaplássi. Er mikil traffík inni á baðherberginu og erfitt að halda því skipulegu og snyrtilegu? Þú finnur alls kyns skipulagslausnir hjá okkur og gott úrval baðherbergisskápa sem henta þér og þínum.
Sérfræðingar BAUHAUS söfnuðu saman sínum bestu ráðum um allt sem tengist baðherbergjum sem geta hjálpað þér í þessu ferli:
- Byrjaðu á því að ákveða heildarstíl og litaval: Hjá BAUHAUS finnurðu gott úrval af öllu sem þarf fyrir baðherbergið, hvort sem það eru blöndunartæki eða handklæðahankar. Því er mikilvægt að hafa skýra sýn á því hver þú vilt að lokaniðurstaðan verði strax í byrjun, svo þú vitir hverju þú ert að leitast eftir.
- Virkni og þægindi skipta miklu máli: Gott er að velja lausnir sem eru hagnýtar og auðveldar í notkun. Innréttingin við handlaugina þarf því ekki bara að vera falleg – hún þarf líka að passa við þinn lífsstíl og þarfir.
- Hugaðu vel að plássinu: Það er alltaf gott að velja lagnir, húsgögn og aðra aukahluti sem henta stærð og lögun herbergisins. Þú getur auðveldlega heillast af öllum mismunandi valmöguleikum, en það er mikilvægt að nýta rýmið skynsamlega, sérstaklega ef það er í smærra lagi.
- Lýsing og loftræsting skipta sköpum: Góð lýsing og góð loftræsting eru nauðsynlegir eiginleikar notalegs baðherbergis. Lýsingin skiptir máli bæði fyrir virkni og vellíðan, á meðan loftræstingin er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir rakaskemmdir og halda loftinu góðu inni í rýminu.
Ef þú hefur þessar ráðleggingar í huga áður en þú byrjar að endurnýja eða uppfæra baðherbergið þitt, þá ertu á góðri leið! Mundu að ef þig vantar aðstoð þá er þér alltaf velkomið að heimsækja okkur í BAUHAUS þar sem þú færð fagmannleg ráð og frábæra aðstoð.
Allt fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS
Til að endurnýja baðherbergið þarf oft mikið af vörum, allt frá minnstu smáatriðum eins og nýrri klósettsetu til stærri hluta eins og nýs sturtuklefa. Hjá BAUHAUS höfum við allt sem þú þarft til að gera upp eða bæta baðherbergið þitt. Hjá okkur má til dæmis finna:
- Handlaugar
- Klósettsetur
- Sturtusett
- Handklæðaofna
- Blöndunartæki
- Spegla
- Baðinnréttingar
Við eigum einnig gott úrval af öðrum vörum sem eru algjörlega ómissandi fyrir baðherbergið. Skoðaðu til dæmis flísarnar okkar sem mynda grunninn fyrir bæði gólf og veggi eða úrvalið af inniljósum sem henta bæði fyrir baðherbergi og önnur rými.
FAQ:
Getur þú gert baðherbergið upp sjálf/ur?
- Já, þú getur alveg ráðist í endurnýjun baðherbergis sjálf/ur ef þér finnst slíkt verkefni spennandi og skemmtileg. Þetta krefst vandlegrar skipulagningar og auga fyrir stíl og hönnun. Svo skemmir ekki fyrir ef þú átt góða að sem nenna að hjálpa þér! BAUHAUS útvegar þér öll nauðsynleg efni og verkfæri fyrir framkvæmdirnar ásamt fagmannlegum ráðleggingum.
Hvað kostar að gera upp baðherbergi?
- Kostnaðurinn við að gera upp baðherbergi er breytilegur eftir þáttum eins og stærð, gæðum efna og hönnunar. Hjá BAUHAUS bjóðum við upp á mikið úrval af efnivið, innréttingum og aukahlutum á mismunandi verði, svo öll ættu að geta sett saman sitt draumabaðherbergi.