Vegna mikils magns af pöntunum má búast við töf á afhendingu pantana.
Síur
Sýna 1575 vörur
  1. WENKO
    Sturtukarfa hangandi Wenko Milo matt svört
    5.995 kr.
  2. FRESH
    Baðvifta Ø125 mm S125T með tímastillir
    20.795 kr.
  3. CAMARGUE
    Vegghengt salerni Camargue Plus 50 hvítt með setu
    41.995 kr.
  4. GROHE
    Skolspjald Grohe Skate Cosmopolitan burstaður kopar
    24.995 kr.
  5. Adora
    Sturtutæki Adora króm
    22.895 kr.
  6. Adora
    Handsturta Adora 100mm króm
    3.495 kr.
  7. Nortiq
    Handlaugarskápur 55cm Nortiq Odessa Svartur
    31.495 kr.
  8. GROHE
    Handlaugartæki Grohe Start S Krómað með botnventil
    17.995 kr.
  9. BESLAGSBODEN
    Salernisrúlluhaldari Beslagsboden 1 límfestur króm
    2.295 kr.
  10. DAMIXA
    Eldhústæki Damixa Venus krom
    44.995 kr.
  11. Secher
    Botnventill pop-up Secher MH matt hvítur
    6.695 kr.
  12. GROHE
    Salernisrúlluhaldari Grohe QuickFix burstað messing
    14.995 kr.
  13. Kristall-Form
    Speglaflísar 15x15 cm 12 stk
    1.895 kr.
  14. SMEDBO
    Sturtukarfa veggfest Smedbo Sideline Króm
    18.295 kr.
  15. Kristall-Form
    Spegill Ø40cm Kristall-Form Plato Kringlóttur
    2.395 kr.
  16. HOUSE
    Sturtuskafa House Rio matt rústfrítt stál
    2.895 kr.
  17. CAMARGUE
    Handsturta Camargue Zoe-5 Ø10cm
    3.195 kr.
  18. Handklæðaofn 60W 69x50 cm TVS Eldo króm
    32.995 kr.
  19. Nortiq
    Baðherbergis hilla límfest L T1 T&B matt hvít
    6.595 kr.
  20. HANSGROHE
    Eldhústæki Hansgrohe Focus M41 280 Matt Svart
    85.495 kr.
  21. Adora
    Handlaugatæki Adora Imperia gyllt
    42.295 kr.
  22. BESLAGSBODEN
    Snagi einfaldur Beslagsboden matt svartur
    845 kr.
  23. HANSGROHE
    Eldhústæki Hansgrohe M54 Grebs svart
    56.995 kr.
  24. CAMARGUE
    Sturtuslanga 1,5m Camargue anti-twist króm
    1.595 kr.
  25. HOUSE
    Salernisrúlluhaldari límfestur House Lucca króm
    3.095 kr.
  26. GROHE
    Snagi Grohe Essentials burstað hard graphite
    6.195 kr.
  27. Adora
    Handlaugartæki Adora Gracili matt
    24.995 kr.
  28. HOUSE
    Snagi tvöfaldur House Rio antík messing
    2.895 kr.
  29. CAMARGUE
    Handsturta og veggvesting Camargue Liana 1
    6.995 kr.
  30. BESLAGSBODEN
    Snagi fjórfaldur Beslagsboden svartur
    5.995 kr.
  31. Adora
    Eldhústæki Adora Gracili
    27.495 kr.
  32. Lokasett fyrir handklæðaofn ½" króm
    17.995 kr.
  33. Adora
    Handlaugartæki Adora Imperia Svört
    45.395 kr.
  34. HANSGROHE
    Eldhústæki Hansgrohe MySport L Króm
    39.195 kr.
  35. CAMARGUE
    Sturtuslanga Camargue Samsø Kalø 150cm
    3.995 kr.

Baðherbergið

Baðherbergið er eitt mikilvægasta herbergi heimilisins. Þar verða hversdagslegar venjur að helgisiðum sjálfsumönnunar þar sem þú getur skilið heiminn eftir, jafnvel bara í stutta stund, og einbeitt þér að þinni vellíðan. Dagarnir okkar hefjast og enda inni á baði. Þar búum við okkur undir áskoranir dagsins og slökum svo á þegar dagurinn er liðinn.

Baðherbergið ætti ekki aðeins að endurspegla þinn stíl heldur ætti það einnig að gefa frá sér velkomna og notalega hlýju sem stuðlar að slökun og ró.

Með réttu baðinnréttingunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt. Oftar en ekki eru það innréttingarnar sem fókusinn fer á inni á baðherbergjum, svo það er um að gera að velja rétt.

Á þessari síðu finnurðu gott úrval af innréttingum, speglum, blöndunartækjum og alls kyns baðherbergisaukahlutum af öllum stærðum og gerðum.

Skoðaðu úrvalið í BAUHAUS og byrjaðu að gera baðherbergið að rými sem þú elskar.

Settu saman draumabaðherbergið þitt

Dreymir þig um nýtt og notalegt baðherbergi? Fallegt baðherbergi er staður þar sem þú getur tekið þér verðskuldað frí frá annasömu hversdagslífi og endurnært þig. Baðherbergið er staður fyrir dekur, endurnæringu, afslöppun og allt þar á milli.

Fjárfesting í góðu baðherbergi gerir meira en að bæta vellíðan heimilisfólksins heldur eykur það líka verðmæti heimilisins verulega, óháð stærð þess. Þar af leiðandi er baðherbergið oft efst á lista yfir endurbætur á heimilinu.

Baðherbergisframkvæmdir eru oft ógnvænlegar og virðast vera óyfirstíganlegt verkefni, en við höldum því fram að það séu einnig þær breytingar sem munu hafa í för með sér mestu aukninguna á lífsgæðum.

Veldu réttu lausnirnar

Þegar kemur að endurbótum á baðherbergjum þarf að huga að mörgum þáttum. Er baðherbergið í litlu rými og þér finnst þú varla komast fyrir þar inni? Hjá BAUHAUS finnurðu ýmsar lausnir sem leyfa þér að nýta plássið sem best, t.d. með vegghengdum handklæðaofnum, stórum speglum sem láta rýmið virðast stærra og innréttingum með miklu og vel skipulögðu skápaplássi. Er mikil traffík inni á baðherberginu og erfitt að halda því skipulegu og snyrtilegu? Þú finnur alls kyns skipulagslausnir hjá okkur og gott úrval baðherbergisskápa sem henta þér og þínum.

Sérfræðingar BAUHAUS söfnuðu saman sínum bestu ráðum um allt sem tengist baðherbergjum sem geta hjálpað þér í þessu ferli:

  • Byrjaðu á því að ákveða heildarstíl og litaval: Hjá BAUHAUS finnurðu gott úrval af öllu sem þarf fyrir baðherbergið, hvort sem það eru blöndunartæki eða handklæðahankar. Því er mikilvægt að hafa skýra sýn á því hver þú vilt að lokaniðurstaðan verði strax í byrjun, svo þú vitir hverju þú ert að leitast eftir.
  • Virkni og þægindi skipta miklu máli: Gott er að velja lausnir sem eru hagnýtar og auðveldar í notkun. Innréttingin við handlaugina þarf því ekki bara að vera falleg – hún þarf líka að passa við þinn lífsstíl og þarfir.
  • Hugaðu vel að plássinu: Það er alltaf gott að velja lagnir, húsgögn og aðra aukahluti sem henta stærð og lögun herbergisins. Þú getur auðveldlega heillast af öllum mismunandi valmöguleikum, en það er mikilvægt að nýta rýmið skynsamlega, sérstaklega ef það er í smærra lagi.
  • Lýsing og loftræsting skipta sköpum: Góð lýsing og góð loftræsting eru nauðsynlegir eiginleikar notalegs baðherbergis. Lýsingin skiptir máli bæði fyrir virkni og vellíðan, á meðan loftræstingin er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir rakaskemmdir og halda loftinu góðu inni í rýminu.

Ef þú hefur þessar ráðleggingar í huga áður en þú byrjar að endurnýja eða uppfæra baðherbergið þitt, þá ertu á góðri leið! Mundu að ef þig vantar aðstoð þá er þér alltaf velkomið að heimsækja okkur í BAUHAUS þar sem þú færð fagmannleg ráð og frábæra aðstoð.

Allt fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS

Til að endurnýja baðherbergið þarf oft mikið af vörum, allt frá minnstu smáatriðum eins og nýrri klósettsetu til stærri hluta eins og nýs sturtuklefa. Hjá BAUHAUS höfum við allt sem þú þarft til að gera upp eða bæta baðherbergið þitt. Hjá okkur má til dæmis finna:

  • Handlaugar
  • Klósettsetur
  • Sturtusett
  • Handklæðaofna
  • Blöndunartæki
  • Spegla
  • Baðinnréttingar

Við eigum einnig gott úrval af öðrum vörum sem eru algjörlega ómissandi fyrir baðherbergið. Skoðaðu til dæmis flísarnar okkar sem mynda grunninn fyrir bæði gólf og veggi eða úrvalið af inniljósum sem henta bæði fyrir baðherbergi og önnur rými.

FAQ:

Getur þú gert baðherbergið upp sjálf/ur?

  • Já, þú getur alveg ráðist í endurnýjun baðherbergis sjálf/ur ef þér finnst slíkt verkefni spennandi og skemmtileg. Þetta krefst vandlegrar skipulagningar og auga fyrir stíl og hönnun. Svo skemmir ekki fyrir ef þú átt góða að sem nenna að hjálpa þér! BAUHAUS útvegar þér öll nauðsynleg efni og verkfæri fyrir framkvæmdirnar ásamt fagmannlegum ráðleggingum.

Hvað kostar að gera upp baðherbergi?

  • Kostnaðurinn við að gera upp baðherbergi er breytilegur eftir þáttum eins og stærð, gæðum efna og hönnunar. Hjá BAUHAUS bjóðum við upp á mikið úrval af efnivið, innréttingum og aukahlutum á mismunandi verði, svo öll ættu að geta sett saman sitt draumabaðherbergi.

Baðherbergið

Sýna 1575 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form