Síur 1
Við finnum ekki vöru sem passar við valið þitt.
Síur 1

Hnífar og sporjárn

Góður hnífur getur verið lykilatriði bæði í iðnaði eða í heimaframkvæmdum. Hjá BAUHAUS finnur þú gott úrval af alls kyns hnífum í mismunandi stærðum og gerðum, úr mismunandi efnum og frá mismunandi framleiðendum. Hér að ofan finnurðu vasahnífa, dúkahnífa, brýnisteina og hnífsblöð, svo eitthvað sé nefnt, svo þú munt örugglega finna rétta hnífinn fyirr þig.

Vantar þig fleiri verkfæri en bara hnífa? Þú finnur allt sem þú þarft fyrir framkvæmdirnar og iðnaðinn hér í netverslun BAUHAUS, sama hvort það séu klassísk handverkfæri eða eitthvað stærra og tæknilegra eins og vélar eða rafmagnsverkfæri.

Mismunandi hnífar með mismunandi tilgang

Þú hugsar kannski ekki um það, en hnífar þjóna allir mismunandi tilgangi, og það er mikilvægt að líta á bæði hönnun, hvassleika blaðsins og stærð þess. Hér fyrir neðan förum við aðeins yfir nokkrar mismunandi gerðir hnífa:

  • Dúkahnífar hafa hvöss og beitt blöð sem hægt er að nota til þess að skera í alls kyns efni eins og pappa, veggfóður og plast. Blaðið í dúkahnífum er innfellanlegt.
  • Vasahnífar eru litlir og meðfærilegir hnífar með sambrjótanlegu blaði. Vasahnífar eru mjög praktískir í ýmiss konar verkefni og koma í mörgum stærðum og gerðum.
  • Gluggasköfur eru tæknilega séð ekki hnífar, en samanstanda samt af skörpu og þunnu stálblaði sem er notað til þess að skrapa lím og önnur efni af gleryfirborðum.

Þú finnur einnig alla nauðsynlega aukahluti eins og auka hnífsblöð og brýnisteina hér að ofan.

Finndu rétta hnífinn fyrir verkfærakassann þinn

Þegar það kemur að því að finna rétta hnífinn fyrir verkfærakassann þinn eru nokkrir hlutir sem þú þarft að hafa í huga. Fyrst þarftu að hafa á hreinu hver tilgangur hnífsins á að vera. Ertu að fara að skera við eða pappa með honum, eða eitthvað allt annað? Viltu hníf sem virkar á flest allt? Hversu stóran og meðfærilegan hníf viltu? Einnig þarftu að ákvarða hvers konar hnífsblað þú þarft, hvort þú viljir þunnt og hvasst blað, rifflað blað eða krókblað. Handfang hnífsins skiptir einnig miklu máli, sérstaklega ef þú munt nota hann mikið. Þér þarft að finnast þægilegt að halda á hnífnum og beita honum.

Ef þú þarft aðstoð við að finna rétta hnífinn fyrir þig, ekki hika við að heyra í starfsfólki BAUHAUS!

FAQ:

Eru vasahnífar löglegir?

  • Já, hefðbundnir vasahnífar eru löglegir, svo lengi sem blaðið sé ekki lengra en 12 sentimetrar. Hafðu þó í huga að ef þú ætlar að ferðast með vasahnífinn þinn þá gilda ákveðnar reglur um vasahnífa í handfarangri í flugvélum. Blaðið á hnífnum má ekki vera lengra en 6 cm, má ekki vera rifflað og það má ekki vera hægt að leysa því opnu.

Hversu langir mega vasahnífar vera?

  • Hnífar mega ekki vera með blað lengra en 12 sentimetrar. Hnífar sem hafa lengri blöð en það, sama hvernig hnífur það er, eru ólöglegir á Íslandi.

Hnífar og sporjárn

Sýna 0 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form
 

Vöruupplýsingablað

Upplýsingaskjalið mun opnast í nýjum flipa. Viltu halda áfram?
Slá inn póstnúmer
Afhendist í