-
PHILIPS HUEVeggljós LED RGBW 13,5W IP44 Philips Hue29.995 kr.
-
EGLOVeggljós LED 20W Faedo IP65 Eglo svart3.695 kr.
-
EGLOVeggljós með sólarsellu LED Lamozzo 14x21 cm12.995 kr.
-
EGLOVeggljós með hreyfiskynjara LED Faedo 3 17,5x19 cm12.495 kr.
Útiveggljós
Okkur í BAUHAUS finnst að fólk eigi að geta notið útivistar á öllum tímum sólarhringsins. Þess vegna bjóðum við upp á gott úrval af útiveggljósum sem gera þér kleift að njóta þess að vera úti í garði eða á pallinum þínum allan daginn, allan ársins hring.
Útiljós eru ómissandi fyrir alla sem vilja skapa bæði notalegt og hagnýtt útisvæði á veröndinni, pallinum eða í garðinum sínum. Hvort sem þú vilt bæta stemminguna þegar þú ert að grilla á kvöldin eða vilt halda garðinum þínum upplýstum af öryggisástæðum, þá finnurðu það sem þig vantar í BAUHAUS.
Hagnýtt öryggi með útiveggljósum
Rétt eins og innandyra, þá eru góð lýsing ómissandi þegar þú þarft að aðhafast eitthvað utandyra. Hvort sem það er að leggja bílnum, skipta um dekk á hjólinu eða reita arfa í beðinu fyrir utan, þá þarftu að sjá hvað þú ert að gera. Sólarljósið hjálpar okkur aðeins að hluta til, en það dugir skammt á haust- og vetrardögum og á svæðum sem falla í skugga, og því er gott að hafa góða útilýsingu klára. Við eigum einnig útiveggljós með hreyfiskynjara sem eru hentug bæði til þess að lýsa fyrir þér þegar kemur heim á kvöldin og sem öryggisbúnaður til þess að fæla burt óvelkomna gesti.
Hvernig útiveggljós vil ég?
Þegar það kemur að því að velja réttu útiljósin fyrir þitt heimili þarftu einnig að hafa í huga hvers konar ljós passa við þinn stíl. Algengustu útiljósin eru veggljós þar sem þau passa vel hvar sem er og eru til í bæði látlaus og praktísk og í skemmtilegri hönnun. Ef þú vilt skoða öðruvísi gerðir útiljósa eigum við einnig garðljós í formi staura og lampa, hangandi loftljós og ýmsar gerðir af kösturum.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Ekki vera hrædd við að vera skapandi í ljósavalinu, það getur bætt miklum persónuleika við húsið. Skoðaðu úrvalið í netversluninni okkar eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið. Við erum hér til að hjálpa þér að velja bestu lausnina fyrir þitt útisvæði.
FAQ:
Er hægt að nota öll veggljós utandyra?
- Nei. Þegar kemur að því að velja útiljós þarf að tryggja að þau séu veðurþolin og úr endingargóðu efni svo þau séu vel í stakk búin fyrir íslenska veðráttu. Veggljósin hjá okkur sem eru gerð til notkunar utandyra uppfylla þessar kröfur, á meðan sum inniveggljós gera það ekki.
Get ég sett upp veggljós utandyra sjálfur?
- Þótt það kunni að virðast flókið að setja upp útiljós getur framkvæmdin verið einföld. Lestu leiðbeiningarnar sem fylgja ljósinu vandlega og gakktu úr skugga um að allt sé til taks sem þarf til að festa það. Ef þú ert óviss um uppsetninguna geturðu alltaf heyrt í starfsfólki BAUHAUS og fengið aðstoð eða ráðið sérfræðing til að setja ljósin upp.