-
EGLOBaðherbergisljós LED Pandella 1 78 cm19.495 kr.
-
EGLOLED veggljós Sania 4 6W Eglo hvítur9.495 kr.
-
EGLOVeggljós E27 Townshend 6,5x21,5 cm7.495 kr.
-
EGLOVeggljós E14 Elizondo 27 cm14.495 kr.
-
EGLOVeggljós, Jabaloyas, E27 40 W frá Eglo, hæð 63 cm, svart/gul21.995 kr.
-
EGLOVeggljós Portello, 3,3W, GU10 frá Eglo, svart5.995 kr.
-
NORDLUXVeggljós E14 Cyclone hvítt Ø11 cm3.995 kr.
-
EGLOVeggljós 4 x LED Sania 4 20 cm13.995 kr.
-
EGLOVeggljós Duanera m/hreyfiskynjara Eglo svart11.195 kr.
Veggljós
Ertu að leita þér að nýjum veggljósum? Þá ertu á réttum stað! Í BAUHAUS finnurðu gott úrval af alls kyns veggljósum, hvort sem þú ert að leita að einhverju töff og nýtískulegu eða fáguðu og klassísku, inniljósum eða útiljósum.
Í BAUHAUS finnurðu veggljós af ýmsum stærðum og gerðum svo þú getur auðveldlega fundið hið fullkomna veggljós sem passar við þinn stíl. En þetta snýst ekki bara um fagurfræði, veggljósin okkar eru einnig hönnuð með virkni og hagkvæmni í huga. Sama hvort þú sért að leita þér að hressandi birtu og hreyfanlegum ljósum fyrir skrifstofuna eða hlýjum og notalegum ljóma fyrir lestrarkrókinn, þá ertu á réttum stað!
Hvort vil ég veggljós eða loftljós?
Veggljós hafa ýmsa kosti fram yfir loftljós. Þau skapa vinalegt andrúmsloft þegar þau eru staðsett í augnhæð og gefa af sér hlýja birtu og geta einnig veitt skarpa og góða lýsingu á ákveðin svæði, eins og lestrarkrók eða skrifborð. Á heildinni litið geta veggljós verið fjölhæfari og auðveldari í aðlögun en loftljós, sem gerir þau að frábærum valkosti fyrir þau sem vilja fjölbreytileika og möguleikann á að breyta oftar til.
Lýstu upp dimm vetrarkvöld með útiveggljósum
Góð útiveggljós eru mikilvæg viðbót á hverju heimili , sérstaklega á dimmum vetrar- og haustkvöldum á Íslandi. Útiljós eru hagnýt og veita heimilinu aukið öryggi, en þau eru einnig tækifæri til þess að lífga upp á ytra útlit hússins. Hjá okkur finnurðu rétta útiljósið fyrir þitt heimili, hvort sem þú vilt látlaust útlit, skrautlega hönnun, hefðbundna lýsingu eða kastara með hreyfiskynjara.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Ekki vera hrædd við að vera skapandi í ljósavalinu, hvort sem þú ert að velja einn gólflampa eða lýsingu í heilt rými, þá getur valið bætt miklum persónuleika við rýmið og bætt vellíðan þína í leiðinni. Skoðaðu úrvalið af ljósum í netversluninni okkar eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið. Við erum hér til að hjálpa þér að velja bestu lausnina fyrir rýmið þitt
FAQ:
Hvernig hengi ég upp veggljós?
- Þótt það kunni að virðast flókið að hengja upp veggljós getur það verið einfalt í framkvæmd. Lestu leiðbeiningarnar sem fylgja veggljósinu vandlega og gakktu úr skugga um að allt sé til taks sem þarf til að festa það. Ef þú ert óviss um uppsetninguna geturðu alltaf heyrt í starfsfólki BAUHAUS og fengið aðstoð eða ráðið sérfræðing til að setja ljósin upp.
Hvaða gerðir veggljósa eru til?
- Það eru margar gerðir af veggljósum til að velja úr, þar á meðal vegglampar, kastarar, hreyfanleg ljós og fleiri. Veggljós geta annaðhvort snúið upp eða niður, eða dreift birtunni jafnt yfir allt rýmið eða vegginn sem þau eru fest við, og eru annað hvort í fastri stöðu eða hreyfanleg og þannig hægt að aðlaga þau að rýminu að hverju sinni.