-
DOLLEHilla 600x100x45 mm Dolle Profile hvít4.895 kr. -
DOLLEHilluberi 290x240x30 mm Dolle Thor hvítur1.695 kr. -
DOLLEHilluberi 140x100x30 mm Dolle Thor hvítur1.395 kr. -
DOLLEHilluberi 240x190x30mm Dolle Thor hvítur1.595 kr. -
DOLLEHilla 600x200x18 mm Dolle Lite bambus4.295 kr. -
DOLLEHilluberi 190x140x30 mm Dolle Thor hvítur1.295 kr. -
DOLLEHilla 800x300x19 mm Dolle Lite3.195 kr. -
DOLLEHillusett 800x200x19mm Dolle Filo svart/hvítt5.195 kr. -
DOLLEHillusett 600x200x215mm Dolle Edge brún fura7.995 kr. -
DOLLEHilla fljótandi 600x200x25 mm Dolle Big askur10.495 kr. -
DOLLEHilla 800x200x18 mm Dolle Lite bambus5.695 kr. -
DOLLEHilla 600x150x19 mm Dolle Lite1.995 kr. -
DOLLEHilluberi 140x100x30 mm Dolle Thor hvítur1.195 kr. -
DOLLEHilluberi 190x170x40mm Dolle Country fura1.495 kr. -
DOLLEHilluefni askur 800x200x25mm Dolle lite14.995 kr. -
DOLLEHillusett 400x120x130mm Dolle Diamond brúnt/svart4.595 kr. -
RettenmeierHilluefni límtré 1000x250x28 mm Rettenmeier6.695 kr. -
RettenmeierHilluefni límtré 1200x500x18 mm Rettenmeier6.195 kr. -
WALLMANNHilluefni massíf eik 2000x300x18mm Wallmann8.295 kr. -
WALLMANNHilla 2000x200x18 mm Wallmann gegnheil eik9.295 kr. -
WALLMANNHilla 2000x300x18 mm Wallmann gegnheil eik14.495 kr. -
RettenmeierHilluefni límtré 2400x300x28 mm Rettenmeier16.295 kr. -
DOLLEHilluberi 190x140x30 mm Dolle Thor hvítur1.495 kr. -
DOLLEHilla 800x200x19 mm Dolle Lite2.795 kr. -
DOLLEHilluberi 290x190x30 mm Dolle Thor hvítur1.295 kr. -
DOLLEHilluberi 290x240x30 mm Dolle Thor hvítur1.395 kr. -
DOLLEHilluefni askur með berki 800x200x25mm Dolle lite14.995 kr.
Hillur
Hvort sem þú ert að bæta skipulagið inni í bílskúr eða á byggingarsvæði þá finnurðu réttu hillurnar fyrir þig hjá BAUHAUS. Hillurnar okkar eru sterkbyggðar, hagnýtar og traustar, og gera þér kleift að koma á góðu og skilvirku skipulagi.
Málmhillurnar okkar eru unnar úr hágæða efni sem tryggir að þær hafa gott burðarþol og endast vel og lengi. Þessar hillur eru fullkomin lausn til þess að geyma verkfæri, byggingarefni og aðra hluti eða búnað á öruggan hátt. Sumar hillur eru með stillanlegri hæð sem leyfir þér að sérsníða uppsetninguna svo að hillan rúmi hluti af mismunandi stærðum og nýtist sem best.
Er skipulaginu almennt ábótavant hjá þér og þig vantar meira en bara nýjar hillur? Þú þarft ekki að leita annað fyrir það, þar sem við eigum einnig gott úrval af alls kyns boxum og skilrúmum sem gera skipulagið í hillunum eins skilvirkt og þægilegt og hægt er.
Útlitið skiptir stundum máli líka
Þó að áhersla okkar sé á hagkvæmni og endingu teljum við að ekki megi gleyma fagurfræðinni. Þess vegna eru hillurnar okkar eru stílhreinar og faglega hannaðar og falla þannig vel inn í hvaða umhverfi sem er. Við eigum hillur í nokkrum stærðum, gerðum og litum, svo þú finnur pottþétt það sem hentar þér best hjá okkur.
Ertu svo kannski spenntari fyrir hugmyndinni að smíða þínar eigin hillur? Við getum að sjálfsögðu hjálpað þér með það líka. Í BAUHAUS finnuru gott úrval af byggingarefni svo þú getur valið það sem hentar þér og þínum þörfum og stíl. Ekki hika við að hafa samband við starfsfólk BAUHAUS varðandi ráðgjöf í kringum valið á efnivið og verkfærum, svo eitthvað sé nefnt.
Vantar þig svo verkfæri til þess annað hvort að smíða nýjar hillur eða setja saman hillurnar sem þú valdir hjá okkur? Þú finnur fjöldan allan af alls kyns verkfærum hjá okkur, sama hvort þig vantar borvél, hamar, skrúfjárn eða slípirokk. Kíktu til okkar á Lambhagaveg 2-4 og spjallaðu við starfsfólkið eða verslaðu í netversluninni og sæktu til okkar. Hlökkum til að sjá þig!
FAQ
Hvert myndi ég setja málmhillur?
- Málmhillur eru fjölhæfar og hægt er að nota þær á ýmsa vegu. Þær henta sérstaklega vel fyrir vinnustaði eins og byggingarsvæði, bílskúra, geymslur, vöruhús og verkstæði. Þær eru sterkbyggðar og með gott burðarþol, svo þær eru tilvaldar til að geyma þung verkfæri, málningarvörur, byggingarefni eða eitthvað annað.
Hvaða tegund af hillum ætti ég að velja?
- Við val á réttu hillunum þarftu að hafa nokkra hluti í huga. Þú þarft að vera viss um hvað verður geymt í hillunum svo þú getir valið réttan efnivið og burðarþol, og svo þarftu einnig að spá í stærð rýmisins, upp á hversu stóra hillu þú þarft og getur fengið. Svo geturðu tekið fagurfræðina inn í reikninginn að lokum þegar valið er orðið þrengra.