-
CAMARGUESápuskammtari veggfestur Camargue Lyon matt svartur og hvítur4.595 kr.
-
CAMARGUESnagi einfaldur Camargue Cannes matt svartur2.495 kr.
-
TESASápuskamtari Tesa Smooz13.495 kr.
-
BESLAGSBODENSnagi Beslagsboden 110mm2.795 kr.
-
CAMARGUESnagi einfaldur Camargue Lyon matt svartur2.995 kr.
-
CAMARGUESalernisrúlluhaldari með hlíf Camargue Lyon matt svartur3.995 kr.
-
SMEDBOHandklæðahringur Smedbo House matt svartur11.795 kr.
-
SMEDBOHandklæðaslá einföld 64,8cm Smedbo Home matt svört19.495 kr.
-
SMEDBOHandklæðahringur Smedbo House pússað króm14.295 kr.
-
SMEDBOHandklæðaslá einföld 64,8cm Smedbo Home matt hvít22.495 kr.
-
CAMARGUENiðurfall 70 cm svart Camargue80.595 kr.
-
UNIDRAINSturtuniðurfall 800mm Unidrain92.495 kr.
-
CAMARGUENiðurfall 80 cm Camargue59.995 kr.
-
CAMARGUENiðurfall 100 cm Camargue64.995 kr.
-
BMCNiðurfall BMC Scan Drain 100cm5.195 kr.
-
CAMARGUENiðurfall 80 cm Camargue61.595 kr.
-
UNIDRAINSturtuniðurfall í horn 270mm Unidrain62.995 kr.
-
CAMARGUEHandklæðahringur Camargue Cannes króm4.795 kr.
-
CAMARGUEHandklæðaslá 60cm Camargue Cannes matt svört8.595 kr.
-
CAMARGUEHandklæðaslá 30cm Camargue króm6.195 kr.
-
CAMARGUEHandklæðaská Camargue Lyon silfur6.995 kr.
-
TESAHandklæðaslá 64cm Tesa Moon límd króm14.995 kr.
-
TESAHandklæðaslá 2 armar Tesa Moon svört11.995 kr.
-
CAMARGUEHandklæðaslá tvöföld 46 cm Camargue Lyon matt svört4.595 kr.
-
CAMARGUEHandklæðaslá einföld 60cm Camargue Lyon matt svört4.795 kr.
-
CAMARGUEHandlaugartæki Camargue Nadi matt svart19.995 kr.
-
CAMARGUESturtusett Korsbæk Ø15 cm messing Skärgård79.395 kr.
-
AdoraHandlaugartæki með botnventil Adora Imperia króm25.295 kr.
-
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø25 cm burstað messing 118 cm Skärgård85.495 kr.
-
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø25 cm matt svart 118 cm Skärgård70.895 kr.
-
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø39,5 cm króm 118 cm Skärgård88.095 kr.
-
AdoraSturtusett Adora 515.495 kr.
-
CAMARGUESturtusett Nexø 25x25 matt hvítt 118 cm Skärgård84.995 kr.
-
CAMARGUESturtusett Dueodde Ø25 cm messing 118 cm Skärgård85.495 kr.
-
CAMARGUESturtusett Nexø 25x25 burstað messing 118 cm Skärgård129.295 kr.
Baðherbergið
Baðherbergið er eitt mikilvægasta herbergi heimilisins. Þar verða hversdagslegar venjur að helgisiðum sjálfsumönnunar þar sem þú getur skilið heiminn eftir, jafnvel bara í stutta stund, og einbeitt þér að þinni vellíðan. Dagarnir okkar hefjast og enda inni á baði. Þar búum við okkur undir áskoranir dagsins og slökum svo á þegar dagurinn er liðinn.
Baðherbergið ætti ekki aðeins að endurspegla þinn stíl heldur ætti það einnig að gefa frá sér velkomna og notalega hlýju sem stuðlar að slökun og ró.
Með réttu baðinnréttingunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt. Oftar en ekki eru það innréttingarnar sem fókusinn fer á inni á baðherbergjum, svo það er um að gera að velja rétt.
Á þessari síðu finnurðu gott úrval af innréttingum, speglum, blöndunartækjum og alls kyns baðherbergisaukahlutum af öllum stærðum og gerðum.
Skoðaðu úrvalið í BAUHAUS og byrjaðu að gera baðherbergið að rými sem þú elskar.
Settu saman draumabaðherbergið þitt
Dreymir þig um nýtt og notalegt baðherbergi? Fallegt baðherbergi er staður þar sem þú getur tekið þér verðskuldað frí frá annasömu hversdagslífi og endurnært þig. Baðherbergið er staður fyrir dekur, endurnæringu, afslöppun og allt þar á milli.
Fjárfesting í góðu baðherbergi gerir meira en að bæta vellíðan heimilisfólksins heldur eykur það líka verðmæti heimilisins verulega, óháð stærð þess. Þar af leiðandi er baðherbergið oft efst á lista yfir endurbætur á heimilinu.
Baðherbergisframkvæmdir eru oft ógnvænlegar og virðast vera óyfirstíganlegt verkefni, en við höldum því fram að það séu einnig þær breytingar sem munu hafa í för með sér mestu aukninguna á lífsgæðum.
Veldu réttu lausnirnar
Þegar kemur að endurbótum á baðherbergjum þarf að huga að mörgum þáttum. Er baðherbergið í litlu rými og þér finnst þú varla komast fyrir þar inni? Hjá BAUHAUS finnurðu ýmsar lausnir sem leyfa þér að nýta plássið sem best, t.d. með vegghengdum handklæðaofnum, stórum speglum sem láta rýmið virðast stærra og innréttingum með miklu og vel skipulögðu skápaplássi. Er mikil traffík inni á baðherberginu og erfitt að halda því skipulegu og snyrtilegu? Þú finnur alls kyns skipulagslausnir hjá okkur og gott úrval baðherbergisskápa sem henta þér og þínum.
Sérfræðingar BAUHAUS söfnuðu saman sínum bestu ráðum um allt sem tengist baðherbergjum sem geta hjálpað þér í þessu ferli:
- Byrjaðu á því að ákveða heildarstíl og litaval: Hjá BAUHAUS finnurðu gott úrval af öllu sem þarf fyrir baðherbergið, hvort sem það eru blöndunartæki eða handklæðahankar. Því er mikilvægt að hafa skýra sýn á því hver þú vilt að lokaniðurstaðan verði strax í byrjun, svo þú vitir hverju þú ert að leitast eftir.
- Virkni og þægindi skipta miklu máli: Gott er að velja lausnir sem eru hagnýtar og auðveldar í notkun. Innréttingin við handlaugina þarf því ekki bara að vera falleg – hún þarf líka að passa við þinn lífsstíl og þarfir.
- Hugaðu vel að plássinu: Það er alltaf gott að velja lagnir, húsgögn og aðra aukahluti sem henta stærð og lögun herbergisins. Þú getur auðveldlega heillast af öllum mismunandi valmöguleikum, en það er mikilvægt að nýta rýmið skynsamlega, sérstaklega ef það er í smærra lagi.
- Lýsing og loftræsting skipta sköpum: Góð lýsing og góð loftræsting eru nauðsynlegir eiginleikar notalegs baðherbergis. Lýsingin skiptir máli bæði fyrir virkni og vellíðan, á meðan loftræstingin er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir rakaskemmdir og halda loftinu góðu inni í rýminu.
Ef þú hefur þessar ráðleggingar í huga áður en þú byrjar að endurnýja eða uppfæra baðherbergið þitt, þá ertu á góðri leið! Mundu að ef þig vantar aðstoð þá er þér alltaf velkomið að heimsækja okkur í BAUHAUS þar sem þú færð fagmannleg ráð og frábæra aðstoð.
Allt fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS
Til að endurnýja baðherbergið þarf oft mikið af vörum, allt frá minnstu smáatriðum eins og nýrri klósettsetu til stærri hluta eins og nýs sturtuklefa. Hjá BAUHAUS höfum við allt sem þú þarft til að gera upp eða bæta baðherbergið þitt. Hjá okkur má til dæmis finna:
- Handlaugar
- Klósettsetur
- Sturtusett
- Handklæðaofna
- Blöndunartæki
- Spegla
- Baðinnréttingar
Við eigum einnig gott úrval af öðrum vörum sem eru algjörlega ómissandi fyrir baðherbergið. Skoðaðu til dæmis flísarnar okkar sem mynda grunninn fyrir bæði gólf og veggi eða úrvalið af inniljósum sem henta bæði fyrir baðherbergi og önnur rými.
FAQ:
Getur þú gert baðherbergið upp sjálf/ur?
- Já, þú getur alveg ráðist í endurnýjun baðherbergis sjálf/ur ef þér finnst slíkt verkefni spennandi og skemmtileg. Þetta krefst vandlegrar skipulagningar og auga fyrir stíl og hönnun. Svo skemmir ekki fyrir ef þú átt góða að sem nenna að hjálpa þér! BAUHAUS útvegar þér öll nauðsynleg efni og verkfæri fyrir framkvæmdirnar ásamt fagmannlegum ráðleggingum.
Hvað kostar að gera upp baðherbergi?
- Kostnaðurinn við að gera upp baðherbergi er breytilegur eftir þáttum eins og stærð, gæðum efna og hönnunar. Hjá BAUHAUS bjóðum við upp á mikið úrval af efnivið, innréttingum og aukahlutum á mismunandi verði, svo öll ættu að geta sett saman sitt draumabaðherbergi.