-
TilboðGUSTAVSBERGSalerni S-lás Gustavsberg Skandic 1400 hf54.995 kr.Tilboð gildir til 28 maíÞú sparar: 15.000 kr. Almennt verð: 69.995 kr.
-
TilboðGROHEInnbyggður salerniskassi 113cm Rapid SL 3in1 Grohe króm29.995 kr.Tilboð gildir til 28 maíÞú sparar: 3.100 kr. Almennt verð: 33.095 kr.
-
LAUFENSkolspjald tvöf. Laufen króm8.695 kr.
-
CAMARGUESalerni S-lás Camargue Norden 430032.995 kr.
Salerni
Salerni eru grundvallarþáttur hvers heimilis og staður sem við eyðum tíma á nokkrum sinnum á dag. Það er því mikilvægt að salernin séu hagnýt, snyrtileg og falli vel að stíl heimilisins þíns. Það eru ótal möguleikar þegar kemur að vali á salerni - allt frá venjulegum salernum til nýstárlegri lausna með fleiri eiginleika. Hjá BAUHAUS getur þú fundið mismunandi gerðir af salernum frá mismunandi vörumerkjum, svo þú getir tekið upplýsta ákvörðun um hvaða tegund af salerni hentar þínu heimili best. Hér geturðu einnig skoðað úrvalið okkar öðrum baðherbergisvörum.
Hvað þarf ég að hafa í huga við val á salerni?
Áður en þú velur þér nýtt salerni skaltu vera viss um stærð og skipulag baðherbergisins. Hvort myndi henta betur að hafa gólffest salerni eða vegghengt? Viltu hafa það úr hvítu postulíni eða svart með mattri áferð? Hvar í rýminu verður salernið staðsett? Ertu að fara sjálf/ur í þessar framkvæmdir eða færðu fagmannlega aðstoð? Allt eru þetta mikilvægar spurningar sem er nauðsynlegt að hafa á hreinu áður en þú kaupir nýtt salerni og ferð í að setja það upp. Hafðu einnig í huga að salernisseta fylgir ekki með öllum salernum, og þá þarftu að kaupa hana sér. Hér geturðu skoðað úrval okkar af salernissetur.Síðast en ekki síst skiptir það auðvitað höfuðmáli að salernið sé þægilegt. Við notum salernið heima hjá okkur nær daglega, oft á dag og oft í dágóðan tíma, og því er mikilvægt að það sé þægilegt að sitja á því til lengdar.
Vegghengd salerni
Vegghengd salerni eru sett upp á vegg sem gefur baðherberginu nýstárlegra og minimalískara yfirbragð. Slík salerni taka líka minna pláss og eru fyrirferðarminni. Vegghengd salerni er einnig auðveldara að þrífa þar sem engir faldir staðir eru fyrir óhreinindi að safnast saman. Þar sem vatnskassinn á vegghengdum salernum er ekki áfastur þeim þarftu að kaupa hann sér ásamt skolspjaldi. Vegghengd salerni eru að verða vinsælli kostur með hverju árinu, en þau kosta meiri tíma, vinnu og pening í uppsetningu, og því er mikilvægt að vanda valið og skoða alla möguleikana.
Gólffest salerni
Gólffest salerni eru hefðbundnari í útliti og auðveldari í uppsetningu, sérstaklega ef þú ert að skipta út núverandi salerni. Með gólffestu salerni þarftu ekki að rífa upp vegginn til að koma vatnskassanum og skolspjaldinu fyrir, þar sem þeir hlutar eru áfastir salerninu. Gólffest klósett eru einnig oft ódýrari en þau vegghengdu, þar sem þau eru klassískari og auðveldari í hönnun. Við kaup á gólffestu salerni skaltu athuga hvort tengislangan og klósettsetan fylgi með, annars þarftu að kaupa það sér.
Aukið hreinlæti með salernum án skolbrúnar
BAUHAUS býður aðeins upp á það besta að hverju sinni, og úrvalið okkar af salernum er engin undantekning. Stór hluti salernanna hér að ofan eru án svokallaðrar skolbrúnar, sem gerir það að verkum að vatnið sturtast ekki beint niður heldur fer það í hring um skálina. Þessi tækni veldur því að vatnið dreifir sér betur um alla skálina og þrífur hana betur, ásamt því að nota mun minna vatn.
Þú finnur meira en bara salerni hjá BAUHAUS
Ertu í alls herjar framkvæmdum á baðherberginu hjá þér og þarft að endurnýja fleira en bara salernið? Eða ertu jafnvel að setja upp glænýtt baðherbergi alveg frá grunni? Hjá BAUHAUS finnurðu allt sem þig gæti vantað. Við gott úrval af öllu frá praktískum hlutum eins og blöndunartæki og ýmsar innréttingar fyrir mismunandi þarfir, til fagurfræðilegri hluta eins og LED spegla og aukahluti á borð við handklæðasnaga og sápuskammtara.
Þú finnur gæðavörur í góðu úrvali fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS þar sem við erum í samstarfi við ótal marga gæða framleiðendur á borð við Grohe, Gustavsberg og LAUFEN. Við erum með eitthvað fyrir alla smekki, stíla og þarfir - hvort sem þú vilt praktískt og minimalískt baðherbergi, nýtískulegt eða klassískt. Skoðaðu úrvalið og kláraðu kaupin hér í netversluninni eða kíktu til okkar á Lambhagaveg 2-4.
Ef þú hefur spurningar um vörurnar eða þarft almenna ráðgjöf þá er starfsfólk okkar alltaf til staðar til að aðstoða þig. Þú getur haft samband við þjónustuverið í bæði síma og í gegnum tölvupóst.
FAQ
Hvaða salerni ætti ég að velja?
- Stærð og skipulag baðherbergisins skiptir höfuðmáli við val á salerni. Hvort myndi henta betur að hafa gólffest salerni eða vegghengt? Viltu hvítt postulín, með eða án skolbrúnar? Hvar í rýminu verður salernið staðsett? Allt eru þetta mikilvægar spurningar sem er nauðsynlegt að hafa á hreinu áður en þú kaupir nýtt salerni og ferð í að setja það upp.
Get ég sett upp nýtt salerni sjálfur?
- Það fer allt eftir þekkingu þinni og getu ásamt salerninu sem verður fyrir valinu. Ef þú velur þér klassískt gólffest salerni og þekkir aðeins til, eða færð aðstoð, þá geturðu örugglega komið því upp sjálf/ur. Vegghengd salerni eru flóknari í uppsetningu og því mælum við með fagmannlegri aðstoð við það.