Síur 1
Sýna 2 vörur

Handlaugartæki

Handlaugartæki eru nauðsynlegur hluti af hverju baðherbergi, en þótt þau séu með praktískari hlutum baðherbergisins, þá þurfa þau ekki að vera óspennandi eða ljót.

Við notum baðherbergið daglega, svo hvers vegna ættum við ekki að gera það eins huggulegt og við viljum? Með réttu handlaugartækjunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt.

Hér að ofan finnurðu gott úrval af alls konar handlaugartækjum fyrir þitt heimili.

Veldu réttu handlaugartækin fyrir þitt baðherbergi

Í BAUHAUS finnurðu úrval af ýmiss konar handlaugartækjum fyrir baðherbergið þitt. Þegar þú skoðar handlaugartækin í netverslun BAUHAUS getur þú einnig sett síur á leitarniðurstöðurnar, svo þú sjáir aðeins þær gerðir, vörumerki og verðflokka sem þú hefur áhuga á.

Ef þú vilt hafa sama stíl á baðherberginu þínu og annars staðar á heimilinu þá er gott að velja handlaugartæki úr sama efni og/eða í sama lit. Við eigum tæki í ýmsum litum og áferðum, meðal annars:

  • Antík messing
  • Króm
  • Mattur svartur
  • Mattur hvítur
  • Gullitað

Passar handlaugin þín ekki alveg við þau handlaugartækin sem þig langar í? Skoðaðu úrvalið okkar af handlaugum hér og finndu þá réttu fyrir þitt baðherbergi.

Sérstakir eiginleikar handlaugartækja

Þú þarft ekki bara að ákveða hvernig stíl þú vilt hafa á handlaugartækjunum þínum heldur einnig hvaða eiginleika þú vilt að þau hafi.

Þegar þú velur þér handlaugartæki þarftu að hafa í huga stærð handlaugarinnar, hvort þú þarft tæki með botnventli eða ekki og hvers konar hitastýringu þú vilt. Einnig eru sum tæki með ákveðinni vatnssparandi tækni, sem er þá tilgreind í vörulýsingunni.

Allt fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS

Til að endurnýja baðherbergið þarf oft mikið af vörum, allt frá minnstu smáatriðum eins og nýrri klósettsetu til stærri hluta eins og nýs sturtuklefa. Hjá BAUHAUS höfum við allt sem þú þarft til að gera upp eða bæta baðherbergið þitt. Hjá okkur má til dæmis finna salernissetur, handklæðaofna, spegla, baðinnréttingar og margt fleira. Við eigum einnig gott úrval af öðrum vörum sem eru algjörlega ómissandi fyrir baðherbergið. Skoðaðu til dæmis flísarnar okkar sem mynda grunninn fyrir bæði gólf og veggi eða úrvalið af inniljósum sem henta bæði fyrir baðherbergi og önnur rými.

FAQ:

Hvaða handlaugartæki ætti ég að velja?

  • Þegar þú velur þér handlaugartæki þarftu að tryggja að það passi við bæði þinn stíl og við handlaugina sjálfa. Passaðu að velja ekki of stórt eða of lítið tæki, og tryggðu að það hafi alla þá eiginlega sem þú leitar eftir. Við mælum einnig með að velja handlaugartæki í stíl við blöndunartækin í sturtunni, upp á fagurfræðina.

Get ég skipt um blöndunartæki sjálf/ur?

  • Já, það er ekkert mál að skipta um blöndunartæki sjálf/ur, svo lengi sem þau eru utanáliggjandi. Ef blöndunartækin eru inni í veggnum skaltu hafa samband við fagaðila til þess að skipta um þau.

Handlaugartæki

Sýna 2 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form