Undirbúum okkur
Þegar alvarlegir atburðir eiga sér stað þurfa viðbragðsaðilar að huga sérstaklega að þeim sem eru í viðkvæmri stöðu í samfélaginu og þurfa mest á aðstoð að halda. Því fleiri sem undirbúa sig, þeim mun betur ráða viðbragðs aðilar við aðstæður og þar með eflist áfallaþol alls sam félagsins.
Gerum ráðstafanir
Við ættum að gera ráðstafanir til að geta séð fyrir grunnþörfum okkar í að minnsta kosti þrjá daga. Með því tryggjum við að aðstoð nýtist þeim sem mest þurfa á að halda þegar hætta steðjar að og léttum álagi af viðbragðsaðilum.



















































