-
WAGNERFlutningsbretti 575x300 mm Wagner 400 kg7.695 kr.
-
WAGNERFlutningsbreti 575x300mm Wagner MM1140 250kg8.295 kr.
-
RettenmeierHilluefni límtré 800x300x28 mm Rettenmeier6.695 kr.
-
RettenmeierHilluefni límtré 2000x300x18 mm Rettenmeier8.195 kr.
-
RettenmeierHilluefni límtré 2400x300x18 mm Rettenmeier13.295 kr.
-
WALLMANNHilluefni massíft beyki 2000x300x18mm Wallmann10.295 kr.
-
WALLMANNHilluefni massíf eik 2000x300x18mm Wallmann8.295 kr.
-
WALLMANNHilla massíf 1200x300x18mm Wallmann beyki7.795 kr.
-
WALLMANNHilla 2000x300x18 mm Wallmann gegnheil eik14.495 kr.
-
WALLMANNHilluefni massíf eik 800x300x18mm Wallmann6.195 kr.
-
RettenmeierHilluefni límtré 2400x300x28 mm Rettenmeier16.295 kr.
-
RettenmeierHilluefni límtré 1000x300x28 mm Rettenmeier8.795 kr.
-
DOLLEHilla 800x300x19 mm Dolle Lite3.195 kr.
Geymsla
Er allt í óreglu heima hjá þér? Þráirðu betra skipulag og snyrtilegra heimili? Finnurðu aldrei neitt í bílskúrnum þínum? Er allt á rúi og stúi á verkstæðinu þínu? Þá ertu á réttum stað! Hér finnurðu úrval af skipulagslausnum fyrir geymsluna þína, sama hvort hún er heima hjá þér, í bílskúrnum eða á verkstæðinu. Skoðaðu úrvalið okkar af geymsluboxum, hillueiningum, skilrúmum og fleiri skipulagslausnum fyrir geymsluna hér að ofan.
Geymsla heimilisins
Hversu mörg okkar eiga geymslu sem við þorum varla að opna af ótta við ringulreiðina sem mun mæta okkur? Geymslur eiga það til að breytast í hálfgerðar ruslakompur þegar skipulagið er ekki upp á sitt besta, en þar komum við inn. Í BAUHAUS finnurðu gott úrval af alls kyns geymsluboxum í mismunandi stærðum og gerðum sem henta vel undir gömlu fötin, útilegugræjurnar, öll auka fjöltengin og jólaskrautið. Viltu svo koma geymsluboxunum snyrtilega fyrir? Þú finnur úrval af mismunandi hillueiningum hjá okkur sem henta í hvaða geymslu sem er.
Geymslan á verkstæðinu
Geymslan á verkstæðinu þarfnast skipulags alveg eins og geymslan heima við. Aðal munurinn er sá að geymslan á verkstæðinu þarf ef til vill aðeins sterkbyggðari einingar sem þola meira hnjask. Þú finnur einnig úrval af vörum og lausnum sem hjálpa þér að finna hluti í geymslunni og viðhalda skipulaginu, eins og t.d. góðar tröppur og stigar svo þú þurfir ekki alltaf að teygja þig upp í efstu hillu án þess að sjá almennilega það sem þú ert að leita að.
Hrein og fín geymsla
Það segir sig svolítið sjálft að geymslur bjóða upp á kjöraðstæður fyrir ryk og önnur óhreinindi. Hlutirnir sem fara inn í geymslu eru þar stundum mánuðum saman, og ef maður fer ekki inn í geymsluna daglega, þá er ekki skrýtið að hún gleymist oft í þrifum og tiltekt. Hér finnurðu gott úrval af ryksugum af öllum stærðum og gerðum sem hjálpa þér að halda geymslunni, og heimilinu, hreinu og rykfríu. Verkstæði og bílskúrar eru oft erfiðari viðureignar í þrifum, og því gætirðu þurft vélknúnar þrifalausnir þar.
FAQ:
- Hvaða vörur henta fyrir heimilis geymsluna?
Geymslan inni á heimilinu geymir oftast smærri og viðkvæmari hluti en geymslan á verkstæðinu, til dæmis. Því er gott að skoða minni skipulagslausnir sem henta vel fyrir skjöl, fatnað, jólaskraut og fleira. Einnig er gott ráð að hafa geymsluna snyrtilega og í stíl við innréttingu heimilisins, svo það sé ekki kvíðavaldandi að opna þar inn. - Hvaða vörur henta fyrir geymsluna á verkstæðinu eða í bílskúrnum?
Góðar hillueiningar eru nauðsynlegar fyrir skipulagið á verkstæðinu og í bílskúrnum. Veldu þér hillueiningar sem þola mikinn þunga og hnjask, svo þú getir geymt verkfæri og önnur tæki þar áhyggjulaust. Minni skipulagsbox henta svo vel fyrir smærri aukahluti og verkfæri.