Síur
Sýna 24 vörur

Garðborð

Þegar sumarið fer loksins að sýna sínar bestu hliðar er um að gera að nýta það og eyða sem mestum tíma úti í garði, á svölunum eða pallinum. Hjá BAUHAUS finnurðu allt sem þú þarft til að skapa notalega stemningu fyrir þig, fjölskyldu og vini á meðan þið njótið sumarsins. Skoðaðu úrvalið af garðborðum hér að ofan og finndu það rétta fyrir þig og þína. Þú finnur einnig gott úrval af ýmsum öðrum garðhúsgögnum í netverslun BAUHAUS.

Garðhúsgögn fyrir allt og alla

Íslendingar þekkja vel þá skyldurækni sem býr innra með þeim að fara út og njóta þegar veðrið er gott. Eins notalegt og það er að setjast á Austurvell í nokkra drykki með góðum vinum þegar veðrið leikur við okkur, þá er fátt betra en að hafa þægilegt útisvæði á heimilinu sem þú getur gert algjörlega að þínu. Þar kemur garðborðið sterkt inn sem eitt mikilvægasta húsgagnið. Garðborðið er í raun miðpunktur útisvæðisins þar sem setuaðstaðan raðast í kringum það, og það gegnir því hlutverki að vera aðal samkomustaðurinn.

Mismunandi möguleikar fyrir garðinn þinn

Hér að ofan finnurðu gott úrval af garðborðum af ýmsum stærðum og gerðum. Þú getur valið um smærri borð, innskotsborð, samfellanleg borð sem auðvelt er að færa til, borð með áföstum bekkjum og garðsett með bæði borði og stólum.

Ásamt úrvali af garðborðum eigum við einnig gott úrval af bekkjum, stólum, markísum, sólhlífum og mörgu öðru sem þig gæti vantað. Þú finnur einnig aðrar vörur sem fullkomna útirýmið þitt hjá okkur í BAUHAUS. Við eigum gott úrval af mismunandi grillum svo þú getir boðið í grillveislur á pallinum. Þú finnur einnig aðrar vörur sem fullkomna útirýmið þitt hjá okkur í BAUHAUS. Við eigum gott úrval af mismunandi grillum svo þú getir boðið í grillveislur á pallinum, öll nauðsynleg garðverkfæri til þess að halda garðinum snyrtilegum og ýmsar gerðir blómapotta svo þú getir sett þinn svip á garðinn með fallegum plöntum og blómum.

Skapaðu notalegt útisvæði með hjálp BAUHAUS og gefðu þér og þínum griðarstað til að slappa af og njóta lífsins.

FAQ

Hvernig garðborð ætti ég að velja?

  • Val á garðborði fer eftir stærð garðsins, stíl þínum og þörfum. Viðarborð veita svæðinu klassískt útlit og góða endingu á meðan ál er með nútímalegra yfirbragð og er léttara í sér. Stærð borðsins ætti svo að fara eftir því plássi sem þú hefur og hversu mörgum þú vilt koma fyrir við borðið.

Hvernig þríf ég garðborð?

  • Það fer aðallega eftir efniviðnum í garðborðinu þínu hvernig þú átt að þrífa það. Ef borðið er ekki of skítugt er gott að strjúka bara yfir það með blautri tusku. Ef þú þarft að nota einhvern hreinsiefni skaltu tryggja að þau megi nota á efnivið borðsins. Ef garðborðið er úr við mælum við með því að festa kaupa á góðri viðarvörn.

Borð

Sýna 24 vörur
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
Loka
Bæta á óskalistann

Bæta á óskalistann

Með því að bæta við vörum á óskalista hefur þú góða yfirsýn yfir valdar vörur.

Skrá inn eða nýskrá