-
RivaSpegill 60x60cm Bath Deluxe Camden4.495 kr.
-
Kristall-FormSpegill 60x80cm Kristall-Form Jump Ferhyrndur4.995 kr.
-
Kristall-FormHurðaspegill 60x160cm Kristall-Form Touch Ferhyrndur7.195 kr.
-
Kristall-FormSpegill 60x100cm Kristall-Form Gennil Ferhyrndur12.095 kr.
-
Kristall-FormSpegill 60x90cm New Paradiso II Ferhyrndur33.595 kr.
-
Kristall-FormSpegill 60x80cm LED Sirius II Ferhyrndur37.795 kr.
-
RivaSpegill 60x60cm LED Riva Stella Ferhyrndur44.995 kr.
-
Kristall-FormSpegill 60x80cm LED Jokey Framelight I Ferhyrndur38.895 kr.
-
CAMARGUESpegill án ramma 60x70 cm Skärgård22.195 kr.
-
LAUFENSpegill 60x65cm LED Laufen Arte Ferhyrndur56.495 kr.
-
CAMARGUESpegill LED rammi 60x60 Skärgård78.295 kr.
-
CAMARGUESpegill LED rammi 60x75 Skärgård72.095 kr.
-
CAMARGUESpegill svartur rammi 60x80 Skärgård26.295 kr.
-
CAMARGUESpegill gylltur rammi 60x80 Skärgård23.195 kr.
-
CAMARGUESpegill LED ljós, baklýsing, bluetooth 60x70 Skärgård117.995 kr.
-
CAMARGUESpegill 60x75 cm LED Svanholm Fur79.395 kr.
-
CAMARGUESpegill svartur rammi Svanholm Bogense 60x80 cm29.395 kr.
Speglar
Speglar eru meira en bara eitthvað gler sem við notum til að laga hárið á okkur heldur eru þeir einnig stílhrein og hagnýt viðbót við hvaða rými sem er. Speglar geta látið minni rými virka stærri, bætt birtuna inni í herbergjum og verið fallegir skrautmunir - og svo getum við auðvitað speglað okkur í þeim þegar við lögum á okkur hárið, finna dress fyrir daginn eða erum að reyna að ná einhverju sem er fast í tönnunum.
Hjá BAUHAUS bjóðum við upp á mikið úrval af alls konar speglum sem henta hverjum smekk og innréttingastíl.
Hvernig spegil ætti ég að fá mér?
Speglar eru ekki aðeins hagnýtir heldur eru þeir einnig fjölhæfir skrautmunir sem passa áreynslulaust við hvers kyns innanhússhönnun. Þú þarft ekki að takmarka þig við einn spegil inni á baði og svo annan inni í svefnherbergi; það má bæta öll rými með spegli.
Borðspeglar
Borðspeglar eru hentugir inni á baði eða á snyrtiborðinu, og við mælum eindregið með borðspegli með LED ljósum sem gefur þér bjarta og náttúrulega lýsingu svo förðunin líti alltaf sem best út.
Veggspeglar
Veggspeglar henta fyrir hvaða rými sem er og eru til dæmis algengir inni á baðherbergjum. Baðherbergisspeglar eru alla jafna stílhreinni og einfaldari í hönnun, oft með innbyggðum LED ljósum sem bæta lýsinguna inni á baði, og hannaðir til þess að þola bleytuna, rakann og hitann sem fylgir baðherbergjum. Fyrir önnur rými er meira frelsi til þess að hleypa hugmyndafluginu af stað og velja á milli ýmissa stíla, stærða og lagana.
Gólf- og hurðaspeglar
Inni í svefn- eða fataherbergi er svo nauðsynlegt að hafa allavega einn stærri spegil sem sýnir þér dressið þitt frá toppi til táar. Hvort sem það er frístandandi gólfspegill, langur veggspegill eða hurðaspegill sem er festur á fataskápinn eða hurðina - þá geturðu ekki verið án hans. Gólf- og hurðaspeglar eru einnig frábær leið til þess að stækka rými og bæta birtuna inni í því. Er svefnherbergið frekar lítið? Settu langa spegla á einn vegginn eða framan á allar skápahurðirnar og herbergið mun virðast mun stærra og bjartara!
Þú finnur spegla fyrir þig og þína í BAUHAUS. Verslaðu í netversluninni og sæktu til okkar á Lambhagaveg 2-4 eða kíktu í heimsókn í búðina og fáðu fagmannlega ráðgjöf og aðstoð.
FAQ:
Hvar er hægt að hengja upp spegil með ljósum?
- Þessir speglar bæta töfraljóma og virkni við hvaða rými sem er, en eru þó hentugastir inni á baðherbergi eða við snyrtiborðið, þar sem þeir tryggja góða lýsingu við alls kyns snyrtingu. Þú finnur gott úrval af speglum með lýsingu hjá okkur, ásamt
Hvernig á að setja upp spegil?
- Það er auðveldara en þú heldur að setja upp spegil. Það eina sem þú þarft er borvél og/eða skrúfjárn og traustar festingar, og kannski hallamál. Þú finnur öll þau verkfæri sem þú þarft hjá okkur. Mældu tvisvar, boraðu einu sinni! Notaðu hallamálið til að tryggja að spegillinn þinn hangi beint og festu hann síðan með viðeigandi festingum.