Síur
Sýna 3 vörur

Fræsitennur

Fræsarar eru fjölhæf verkfæri sem hægt er að nota í ýmiss konar verkefni. Ef þú ert að verka yfirborð þarftu að fjárfesta í góðum fræsara ef þú vilt fá A-klassa útkomu. Fræsarar notast við fræsitennur til þess að fá fram mismunandi skurði. Skoðaðu úrvalið okkar að fræsitönnum hér að ofan.

Hér getur þú einnig fundið úrvalið okkar af fræsurum, sem hentar bæði fagfólki og byrjendum í framkvæmdum. Hvort sem þú ert að skreyta einfaldan myndaramma eða stórt húsgagni, þá getur fræsari hjálpað þér að vera skilvirkari og ná fagmannlegri útkomu. Áður en þú velur þér fræsara skaltu huga að verkefninu þínu og þörfum þess og verðbilinu sem þú ræður við. Starfsfólk BAUHAUS er alltaf reiðubúið til þess að veita þér aðstoð ef þess þarf.

Hvað er fræsari?

Fræsarar eru í raun stór tæki sem hafa sett af blöðum, eða tönnum, sem eru hönnuð til þess að skera ákveðnar útlínur í við, eins og skrautbrúnir eða flókin mynstur. Viðnum er rennt í gegnum fræsarann og tennurnar skera og móta yfirborðið samkvæmt hönnun þeirra. Nýlegri týpur af fræsurum hafa þann eiginlega að þú getur still hraða og dýpt skurðsins, og þannig valið um margar mismunandi hannanir. Fræsarar eru aðallega notaðir til þess að mynda skrautbrúnir á ýmsan við, til þess að fá sama mynstur á mörg stykki af við og til þess að fá sérhannaða skreytta viðarhluti.

Hvað eru fræsitennur?

Fræsitennur eru aukahlutirnir sem gera fræsaranum kleift að skera út mismunandi útlínur og mynstur í efnivið. Þú getur keypt fræsitennur í mismunandi settum fyrir mismunandi verkefni, en fræsitennur koma í alls konar stærðum, gerðum og lögunum.

Allt fyrir trésmíðaverkefnin hjá BAUHAUS

Hjá BAUHAUS finnurðu breitt úrval af öllum þeim verkfærum sem þú gætir þurft, sama hvort þú sért fagaðili eða ekki. Ef þig vantar ekki fræsitennur geturðu til dæmis skoðað úrvalið okkar af heflum frekar.Við eigum einnig gott úrval af alls kyns byggingarefnum, frá parketi til borðplatna, og úrvalið er enn meira í verslun okkar á Lambhagavegi 2-4.

FAQ

Hvað eru fræsitennur?

  • Fræsitennur eru aukahlutirnir sem gera fræsaranum kleift að skera út mismunandi útlínur og mynstur í efnivið. Þú getur keypt fræsitennur í mismunandi settum fyrir mismunandi verkefni, en fræsitennur koma í alls konar stærðum, gerðum og lögunum.

Hvað get ég notað fræsitennur í?

  • Þú getur notað fræsitennur í viðeigandi verkefni sem þú notar fræsarann þinn í. Til dæmis eru sér fræsitennur fyrir föndurfræsara, þar sem slík verkefni krefjast nákvæmnisvinnu og fínni skurða.

Fræsitennur

Sýna 3 vörur
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
Loka
Bæta á óskalistann

Bæta á óskalistann

Með því að bæta við vörum á óskalista hefur þú góða yfirsýn yfir valdar vörur.

Skrá inn eða nýskrá