Aðventan er tími eftirvæntingar og hátíðleika, og ein af vinsælustu hefðunum á þessum árstíma er kransagerð. Kransar skreyta heimilið með hlýju og jólastemningu, bæði innandyra og utandyra. Hvort sem þú ert að búa til aðventukrans með kertum eða fallega hurðakrans til að fagna hátíðinni, þá finnur þú hjá okkur allar þær vörur sem þú þarft fyrir kransagerð.
Það að búa til eigin aðventukrans er frábær leið til að persónugera jólaskreytingarnar. Hér eru nokkur ráð til að byrja:
Þú þarft grunnvörur eins og kransahringi, vír, skreytingarþráð og greni, auk fjölbreyttra skreytinga til að persónugera kransinn. Vörur fyrir kransagerð er hægt að finna í miklu úrvali hjá okkur í BAUHAUS, hvort sem þú vilt fá tilbúna hluti eða setja saman þína eigin skreytingar. Það getur einnig verið einstaklega fallegt að vefja jólaseríu utanum kransin, þannig fær hann að njóta sín þegar byrjar að dimma.
Já! Kransar eru fjölnota skreyting sem henta bæði fyrir innandyra og utandyra. Ef þú ert að skreyta heimilið innan húss getur aðventukransinn með kertum orðið að miðpunkti borðsins. Fyrir útiskreytingar er hægt að hengja fallegan hurðakrans eða veggkrans til að fagna aðventunni með stæl. Gott er að velja krans fyrir útiskreytingar sem er veðurþolinn til að standast íslenska vetrarveðrið.
Hvort sem þú ert að leita að vörum fyrir kransagerð eða sérhæfðum skreytingum, þá finnur þú allt sem þú þarft í vefverslun okkar. Við bjóðum upp á breitt úrval af vörum til að gera jólaskreytingarnar einstakar, svo þú getir skapað þá hlýju og hátíðleika sem aðventan kallar á. Við eigum mikið urval af klippum og handverkfærum sem gera kransagerðina auðveldari.