Persónuvernd þín er okkur mjög mikilvæg. Við viljum að þér finnist þér vera óhætt þegar þú átt viðskipti við okkur. Þess vegna gætum við, og eftirlitsaðilar okkar á sviði gagnaverndar, þess að fylgja öllum tilmælum um gagnavernd, þar á meðal og einkum reglugerð ESB um persónuvernd („almenna persónuverndarreglugerðin"), sem tekur gildi 25. maí 2018, sem og öll gildandi staðbundin lög. Hér á eftir er að finna upplýsingar um í hvaða tilgangi persónuupplýsingum um þig er safnað og unnið með þær og hvernig þú getur gætt þinna réttinda. Þú getur hvenær sem er, frá og með 25. maí 2018, sótt og prentað út almennu persónuverndarreglugerðina, sem er að finna neðst á öllum vefsíðum í netverslun okkar, á flipanum „Gagnavernd".
Við nýtum okkur tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja UT-kerfi okkar gegn því að óviðkomandi aðilar fái aðgang að, breyti eða dreifi gögnum um þig, sem og að tryggja okkur gegn tapi og eyðingu gagna.
Ábyrgur aðili fyrir umsýslu gagna um viðskiptavini hjá BAUHAUS er BAUHAUS Danmark A/S
BAUHAUS Danmark A/S, Anelystparken 16, 8381 Tilst, sími: +45 87420500, netfang: databeskyttelse@bauhaus.is
Hafir þú, sem viðskiptavinur eða starfsmaður, frekari spurningar um gagnavinnslu í tengslum við vernd gagna um þig, eða þurfir þú að fá svör við öðrum spurningum, getur þú sent fyrirspurn til eftirfarandi aðila:
Ef þú ert með almennar spurningar um gagnavernd og vilt biðja um upplýsingar skaltu hafa samband við gagnaverndarteymi BAUHAUS og gera nákvæma grein fyrir erindinu, og senda samskiptaupplýsingar um þig á netfangið: databeskyttelse@bauhaus.is
Þú getur treyst eftirfarandi: Upplýsingar um þig eru aðeins geymdar í miðlægri umsýslu gagna hjá fyrirtækjum BAUHAUS í því skyni að vinna úr beiðnum og annast gerð og framkvæmd samninga, sem og til markaðssetningar eigin vöru og þjónustu. Gagnavinnslan fer fram í samræmi við tilskipun ESB um gagnavernd.
Gagnavinnsla í auglýsingaskyni
Við vinnum aðeins með gögn um þig í því skyni að auglýsa eigin vöru og þjónustu.
Persónuupplýsingar um þig eru gerðar opinberar, í samræmi við gildandi lög, gagnvart eftirfarandi fyrirtækjum í ESB-löndunum:
Öðrum fyrirtækjum innan BAUHAUS-samstæðunnar
Aðilum sem annast póst- og flutningsþjónustu, flutningsaðilum, aðilum sem annast gagnaeyðingu og aðilum sem annast gagnamiðlun
Aðilum sem veita UT-þjónustu í tengslum við viðhald og uppfærslu hugbúnaðar
Aðilum sem annast lánshæfismat, innheimtu og gagnvirka markaðssetningu
Google Inc.
Bisnode, Gyngemose Parkvej 50, 2860 Søborg, Danmörk
DIBS Payment services A/S, Arne Jacobsens Allé 13, 1.TV, 2300 København S, Danmörk
Censeo Tech AB, Lerskäddesgatan 61, 426 58 Västra Frölunda, Svíþjóð
Vistunartími gagna
Við geymum gögn um þig eins lengi og nauðsynlegt telst í eftirfarandi tilgangi:
Tilboðsgögn: 1 ár (vegna svars frá viðskiptavini)
Leigusamningar: 6 mánuðir (könnun á bótakröfum)
Kaupsamningar: 5 ár (úreldingarfrestur vegna gallatilkynninga)
Verktaka- og byggingasamningar, viðgerðapantanir: 5 ár (úreldingarfrestur vegna gallatilkynninga)
Verkefnissamningar: 5 ár (úreldingarfrestur vegna gallatilkynninga)
Pantanir í vefverslun: 5 ár (úreldingarfrestur vegna gallatilkynninga)
Öll fyrirtæki BAUHAUS tryggja að fullu rétt þinn sem skráðs einstaklings.
Andmæli vegna auglýsinga:
Þú átt rétt á að andmæla því að gögn um þig séu notuð í auglýsingaskyni. Viljir þú gera það skaltu nýta þér neðangreindar samskiptaupplýsingar.
Afturköllun á samþykki:
Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki þitt fyrir vinnslu persónuupplýsinga, með framvirkum hætti.
Réttur á upplýsingum (þú átt rétt á upplýsingum um það hvernig við vinnum með persónuupplýsingarnar þínar)
Réttur á vitneskju (þú átt rétt á að fá vitneskju um þær upplýsingar sem við vinnum með um þig)
Réttur til leiðréttinga (þú átt rétt á að láta leiðrétta ranglega skráðar upplýsingar um þig)
Réttur til eyðingar (í sérstökum tilvikum átt þú rétt á að láta eyða upplýsingum um þig)
Réttur á takmörkunum á vinnslu (í sérstökum tilvikum átt þú rétt á að vinnsla persónuupplýsinga um þig verði takmörkuð)
Andmæli gegn vinnslu (í sérstökum tilvikum átt þú rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga um þig)
Hreyfanleiki gagna (í sérstökum tilvikum átt þú rétt á að fá sendar persónuupplýsingar um þig á skipulega uppsettu sniði)
Hafa samband: Hvernig get ég gætt ofangreindra réttinda?
Til að leita réttar þíns getur þú annaðhvort haft samband við þjónustuborð BAUHAUS í síma +45 86 26 06 06, ábyrgðaraðila gagnaverndar (sjá að ofan) eða ábyrgan aðila (sjá að ofan).
Yfirlýsingin um gagnavernd skal ævinlega endurspegla raunaðstæður og réttarfarslegar kringumstæður. Þú ættir ævinlega að yfirfara yfirlýsingu okkar um gagnavernd áður en þú framkvæmir kaup, til að kynna þér hugsanlegar breytingar eða uppfærslur.
Útgáfa: 1.1
Staða frá og með: 01. júní 2018