-
Nýtt á vefSturtusett með blöndunartæki Bluerain matt svart49.495 kr
-
Nýtt á vefSturtusett antík messing83.995 kr
-
Nýtt á vefSturtusett Bluerain króm55.995 kr
-
Nýtt á vefSturtusett Bluerain króm24.995 kr
-
Nýtt á vefSturtusett lúxus Bluerain 25cm sturtuhaus86.495 kr
-
Nýtt á vefSturtusett Bluerain matt svart9.895 kr
-
Nýtt á vefBlöndunartæki Bluerain króm31.495 kr
-
Nýtt á vefKranaarmur Bluerain króm4.595 kr
-
Nýtt á vefBlöndunartæki bluerain burstað stál14.000 kr
-
Nýtt á vefSturtuslanga 50cm 1/2 ryðfrítt stál1.995 kr
-
Nýtt á vefSturtuslanga flex premium 1,5-2m króm2.995 kr
-
Nýtt á vefHandsturta Bluerain Lia Króm 80mm2.495 kr
-
Nýtt á vefSturtuslanga standard 1,5m króm1.595 kr
-
Nýtt á vefHandsturta 3 stillingar Bluerain Aya króm 80mm1.200 kr
-
Nýtt á vefSTURTUSLANGA LUKSUS KRÓMAÐ 1,5 M1.200 kr
-
Nýtt á vefHandsturta 5 stillingar Bluerain Zoe Króm 100mm1.800 kr
-
Nýtt á vefSturtusett stillanlegt Bluerain Zone Króm 120mm5.100 kr
-
Nýtt á vefSturtusett með stöng Bluerain Auana Króm 80mm4.000 kr
-
Nýtt á vefHandsturta 5 stillingar Bluerain Neo Króm 120mm1.900 kr
-
Nýtt á vefMillistykki fyrir Sturtuhaus Bluerain Króm5.895 kr
-
Nýtt á vefSturtusett með stöng Bluerain Liana Króm 80mm3.600 kr
-
Nýtt á vefBlöndunartæki með skynjara Bluerain Króm12.395 kr
-
Nýtt á vefSett með veggfestingu Bluerain Bidet Króm5.495 kr
-
Nýtt á vefHandlaugartæki Carmarge Moch Gun metal15.495 kr
-
Nýtt á vefHandlaugartæki Camargue Mocha Matt svart14.995 kr
-
Nýtt á vefEldhústæki Camargue Savo matt svart15.495 kr
-
Nýtt á vefEldhústæki Camargue Savo Antík messing15.495 kr
-
Nýtt á vefHandlaugartæki Carmarge Mocha Antík messing15.495 kr
-
Nýtt á vefHandlaugartæki Carmarge Mocha Króm9.995 kr
-
Nýtt á vefEldhústæki Camargue Savo Króm9.995 kr
-
Nýtt á vefSturtusett Bluerain Sianti 120mm12.995 kr
-
Nýtt á vefSturtuhaus 3 stillingar Bluerain Sia Króm2.100 kr
-
Nýtt á vefHilla á sturtustöng universal m Bluerain1.300 kr
-
Nýtt á vefEldhústæki Camargue Savo Gun metal15.495 kr
-
Nýtt á vefSturtuslanga 1,5m Bluerain Silux1.600 kr
Loftljós
Birtan inni á heimilinu getur skipt sköpum þegar það kemur að því að skapa stemmingu og hlúa að almennri vellíðan heimilisfólksins. Hærra og kaldara birtustig hjálpar okkur að vakna og koma okkur af stað á morgnanna á meðan hlýrra og lægra birtustig skapar þægilega og róandi stemmingu á kvöldin. Öll herbergi þurfa einhvers konar ljós og loftljós eru oft þægilegasti valkosturinn.
En ákvarðanatakan endar ekki þar - þú þarft líka að velja hvers konar loftljós þú vilt. Til dæmis er algengt að hafa hangandi loftljós fyrir ofan borðstofuborðið, eitthvað stærra og flottara sem sker sig úr. Inni á baðherbergjum velur fólk oft klassískan kúpul sem hentar umhverfinu vel og gefur rýminu hressandi birtu. Í svefnherbergjum getur verið gott að hafa stærri og dekkri skerma, svo auðveldara sé að dimma ljósin fyrir þægilegri birtu á kvöldin.
Lýsing heimilisins er mikilvægur hluti þess, sama hvort um sé að ræða inniljós eða útiljós, veggljós, stofuljós eða innfelld ljós. Í BAUHAUS finnurðu rétta ljósið fyrir öll rými heimilisins.
Mismunandi gerðir loftljósa
Til eru margar mismunandi gerðir loftljósa en aðal flokkarnir eru þó hangandi, innfelld, yfirborðslöguð og kastarar.
Hangandi loftljós
Hangandi loftljós, eins og nafnið gefur til kynna, hanga úr loftinu. Oftast er skermur utan um ljósaperuna á endanum, en þó eru til hangandi loftljós þar sem ljósaperurnar eru berar. Hangandi loftljós koma í ýmsum stærðum og gerðum og því eru margir valmöguleikar í boði, hvort sem þú vilt hafa þau minni og einfaldari eða stærri og mikilfenglegri. Ljósaperan er oft sýnileg í hangandi loftljósum og því skiptir meira málið að vanda valið hvað varðar lögun og lit. Í BAUHAUS finnurðu gott úrval af ýmsum gerðum ljósapera.
Innfelld loftljós
Innfelld loftljós eru minni í ummáli og falla alveg inn í loftið svo það fer minna fyrir þeim. Innfelld ljós geta veitt rýminu betri og meiri birtu þar sem birtan virðist koma innan úr loftinu sjálfu. Gott er að hafa í huga að innfelld loftljós henta ekki öllum loftum og því er nauðsynlegt að hafa þykkt, staðsetningu og gerð loftsins á hreinu áður en fest eru kaup á slíkum ljósum.
Yfirborðslöguð loftljós
Yfirborðslöguð loftljós eru þau ljós sem liggja alveg upp að loftinu. Oft eru slík ljós í formi kúpuls, en nútímalegri gerðir eru margar þynnri og flatari. Yfirborðslöguð loftljós eru mjög vinsæl, enda henta þau í flest rými og taka lítið pláss.
Kastarar
Kastarar eru eitt eða fleiri ljós sem hægt er að snúa og færa til. Ljósaperan er fest á plötu í loftinu og hreyfist á öxli sem gerir þér kleift að breyta því hvert birtan beinist í rýminu.
Hvernig vel ég rétta loftljósið?
Áður en þú velur þér loftljós er gott að teikna upp rýmið sem ljósið fer í. Hvað er gert inni í rýminu? Hvar í rýminu eru hvaða athafnir framkvæmdar? Þetta eru spurningar sem er vert að hafa í huga til þess að fá sem mest út úr lýsingu rýmisins. Hér eru nokkrar tillögur um val á loftljósi:
- Stofa: Þegar það kemur að því að velja stofuljós, er gott að hugsa um mismunandi króka og kima stofunnar. Hangandi loftljós líta vel út fyrir ofan borðstofuborðið og veita huggulega birtu yfir kvöldmatnum. Í sjónvarpsholinu er þægilegra að hafa dimmanlegt ljós sem dreifir vel úr sér og stangast þá minna á við birtuna frá sjónvarpinu.
- Anddyri/gangur: Í anddyrinu eða á ganginum eru kastarar gott val, þar sem hægt er að beina þeim þannig að þeir nái að lýsa upp allt rýmið.
- Svefnherbergi: Í svefnherberginu hafa allar gerðir loftljósa sína kosti. Það fer bara eftir smekk hvers og eins hvað hentar best. Viltu tempraða birtu og afslappaðra andrúmsloft? Þá hentar hangandi loftljós vel. Viltu hressandi birtu sem nær vel yfir allt rýmið? Þá henta bæði yfirborðslöguð ljós og kastarar. Viltu eiga möguleika á því að skipta á milli þessara tveggja lýsinga? Veldu þér þá dimmanlegt loftljós og snjallperur þar sem þú getur breytt hitastigi birtunnar eftir eigin smekk.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Skoðaðu úrvalið af loftljósum eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið.